Gleðileg jól.

23. desember 2007 klukkan 22:49
Nú styttist óðum í stóra daginn og allt að verða klárt. Sherryfrómasinn tilbúinn, sterkur og fínn Glottandi, steikin til í slaginn og næstum búin að þrífa, bara eitt herbergi eftir.
Strákarnir tóku að sér að skreyta jólatréð í morgun. Ásbjörn kallaði síðan í mig og spurði hvort þeir mættu nokkuð taka sér smá pásu!!! Það mætti halda að ég hafi verið að píska þeim út Brosandi.
Síðan fór ég í skötuveislu hjá ísl.félaginu. Var að hjálpa til í eldhúsinu og smakkaði síðan smá saltfisk. Og viti menn... hann var bara mjög góður með kartöflu og smjöri. Ég hef ekki smakkað saltfisk síðan ég var krakki!
Þegar heim var komið, var ég vinsamlegast beðin um að skipta um föt Ullandi og setja þau beint inní þvottavélina, ég fann enga lykt!
En potturinn minn angar enn Óákveðinn. Tefal pottur sem ég er búin að sápuþvo (ég veit það má ekki), síðan prófaði ég að sjóða matarsóta í honum (er hann ekki húsráð við öllu?) og síðan sápuþvoði ég hann aftur og það er ennþá fýla í honum Öskrandi.
Strákarnir eru búnir að vera þvílíkir englar í dag Saklaus. Án gríns þá hefur hvorki ég né Binni sé þá svona góða saman í HEILANN DAG og ekkert rifist né þrasað, bara leikið og hlegið!!! Það hlýtur að hafa verið einhvað töfraloft í prumpublöðrunni sem þeir fengu frá jólasveininum síðustu nótt??

Í gær lögðum við familían land undir fót.
Við tókum okkur rúnt til Esbjerg og heimsóttum Jónu Björk og fjölskyldu. Okkur fannst það litla sem við sáum af bænum bara mjög fínt og snyrtilegt. Það var líka mjög fínt að koma til Jónu og co. Við vissum ekki af strákunum allan tímann, (þetta var orðið hálf óþægileg tilfinning á tímabili), en þeir náðu allir bara svona voða vel saman þessar elskur. Það voru engar smá móttökur, hnallþórur og alles og svo var okkur boðið í mat líka. Strákarnir spurðu strax á leiðinni útí bíl hvenær við færum aftur að heimsækja þau Brosandi. Takk kærlega fyrir okkur Jóna og Haffi.

Já svo má ég nú ekki gleyma einu!!
Ásbjörn sagði fyrstu setninguna sína á dönsku í gær. Ég held hann hafi bara alveg óvart misst þetta útúr sér, örugglega verið lengi með þetta í hausnum en hann sagði: Hold da kjæft!!!  Hahaha....
Við Binni litum bæði á hann og spurðum hvað hann hafi sagt og hann sagði: ekkert! Og ég sagði við hann að hann hafi verið að tala dönsku en hann neitaði því í fyrstu... því hann fattaði það ekki fyrr en eftir á Glottandi.

Annars er það að frétta af strákunum að Ásbjörn er mjög duglegur að æfa sig að lesa, búinn með eina lesbók úr skólanum og kominn með aðra og hann ætlar að taka að sér að lesa á jólapakkana á morgun.
Jóhann Ingi var veikur alla síðustu viku. Eitt tók við af öðru! Ælupest, hiti og astmakast. En hann er orðinn eldhress og syngur: Já ég elska Jóhann, árans kjóann, jafnvel þó hann sé eins og hann er. Og svo syngur hann líka: Borðar þú orma fðoðma (frú Norma). Brjálað stuð á bænum Hlæjandi.

Að lokum við ég óska öllum gleðilegra jóla. Vonandi hafið þið það rosalega gott yfir hátíðarnar Brosandi.

Jólaknús og kremjur... hó..hó...hó...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Hrund skrifar ...
 
Snúllarnir! þekki ég það vel að systkynakærleikurinn er ekki alltaf jafn mikill.
Flott hjá Ásbirni, nú fer hann bara að missa út úr sér kunnáttuna sem pottþétt situr þarna inni og hefur aldrei hljómað upphátt.

Gleðileg jól kæra fjölskylda! sjáumst á jólaballinu geri ég ráð fyrir.
24. desember 2007 klukkan 00:56
Rakel og Steinar skrifar ...
 
Gleðileg jól og vona að jólamaturinn verði jafn góður og vanalega :) Vona að strákarnir verði glaðir með jólagjafirnar frá okkur. Steinar var alveg sjúkur í þetta hahha :)

Söknum þess að sjá ykkur ekki
Jólaknús
Rakel og Steinar
24. desember 2007 klukkan 14:57
Bogga og co skrifar ...
 
Prófaðu að setja edik í pottinn, það eyðir lykt.

Annars bara Gleðileg jól til ykkar kæru vinir! Vonandi hafið þið það sem allra best yfir jólin.

Jólakveðjur frá Esjubrautinni
24. desember 2007 klukkan 15:04
Skjóna skrifar ...
Segðu strákunum að þeir megi alltaf koma í heimsókn til mín hehe;) Takk fyrir komuna, það var æðislega gaman að fá ykkur;)
Gleðileg jól, hafið það gott!
knús og kram*
Jóna og co.
24. desember 2007 klukkan 23:11
Helena skrifar ...
 
Gleðileg jól elskurnar mínar. Vonandi hittumst við fljótlega :)
Knús á línuna
25. desember 2007 klukkan 15:23

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan