Hið ljúfa líf...
26. desember 2007 klukkan 23:21
Nú er sko komin pása á kjötáti!!! Næstu daga verða súpa og brauð og kannski fiskur í matinn. Ásbjörn ætti sérstaklega að vera glaður með það, hann þolir ekki kjöt!! Greyið pýndi í sig jólasteikinni án þess að mótmæla og var orðinn grár í framan af flökurleika
. En hann fékk steiktan fisk á jóladag meðan við hin borðuðum hangikjöt.
Við erum búin að hafa það rosalega fínt síðustu daga.
Á aðfangadag var okkur boðið í heitt súkkulaði og smákökur til nágranna okkar Sighvats og Eddu.
Um kvöldið var nóg að gera hjá strákunum við pakkaupptekningar -fúff... þvílíkt flóð. Ásbjörn ætlaði að lesa á pakkana en hann var svo ákafur að hann hafði bara tíma til að lesa: Til Ásbjörns eða: Til Jóhanns Inga en ekki frá hverjum, þannig að hann fékk smá aðstoð
.
Síðan hef ég verið að spila við Ásbjörn.... það er bara ekki hægt að vinna barnið, hann alveg rústaði mér skipti eftir skipti, þó ég hafi lagt mig alla fram við að vinna hann. Við vorum að spila UNO. Svo eru hann og Binni búnir að byggja úr Lego. Ásbjörn fékk risa kassa af tæknilego í jólagjöf frá okkur og þeir eru búnir að byggjar heljarinnar krana og vinnuvélar.
Á jóladag var okkur boðið í kaffi til Svans og Elsu og svo komu þau í kvöldmat til okkar, og í dag var okkur boðið í kaffi til Möggu Lukku og Jóa. Og svo komu Árný, Stebbi og Monika Rós í mat til okkar í kvöld.
Þannig að okkur hefur sko ekki leiðst
.
Árný og Stebbi tóku Trival spil með sér og fórum við því í smá hugarleikfimi eftir matinn
. Og hver haldið þið nú að hafi unnið????
Ikke jeg! Heldur einn náungi sem er uppfullur af nitlausum fróðleik!!! Ég er ekkert tapsár
.... þó ég hafi skíttapað í orðsins fyllstu merkingu. Ég gat svarað einni spurningu rétt og giskaði síðan á eina sem var rétt
. Síðan verður maður nú alltaf að spila sig pínu fróða!! Uuuu... ég á að vita þetta..... ég veit þetta alveg en bara man ekki nafnið... svo kemur svarið... já auðvitað, einmitt sem mig langaði að segja
. Æ já!! Það er alltaf gaman að fá að vera með!!! hehe...
Framundan hjá mér er að fá Trival spilið lánað og læra spurningarnar utanað.
Og framundan hjá okkur er jólamessa og jólaball á föstudaginn.
Kaupa rakettur og undirbúa áramótin. Og já... ekki má gleyma að senda jólakortin
.
Er að vinna í að setja inn nýjar myndir frá desember. Kannski hefst það hjá mér í kvöld... kannski ekki!
Knús á línuna...
Við erum búin að hafa það rosalega fínt síðustu daga.
Á aðfangadag var okkur boðið í heitt súkkulaði og smákökur til nágranna okkar Sighvats og Eddu.
Um kvöldið var nóg að gera hjá strákunum við pakkaupptekningar -fúff... þvílíkt flóð. Ásbjörn ætlaði að lesa á pakkana en hann var svo ákafur að hann hafði bara tíma til að lesa: Til Ásbjörns eða: Til Jóhanns Inga en ekki frá hverjum, þannig að hann fékk smá aðstoð
Síðan hef ég verið að spila við Ásbjörn.... það er bara ekki hægt að vinna barnið, hann alveg rústaði mér skipti eftir skipti, þó ég hafi lagt mig alla fram við að vinna hann. Við vorum að spila UNO. Svo eru hann og Binni búnir að byggja úr Lego. Ásbjörn fékk risa kassa af tæknilego í jólagjöf frá okkur og þeir eru búnir að byggjar heljarinnar krana og vinnuvélar.
Á jóladag var okkur boðið í kaffi til Svans og Elsu og svo komu þau í kvöldmat til okkar, og í dag var okkur boðið í kaffi til Möggu Lukku og Jóa. Og svo komu Árný, Stebbi og Monika Rós í mat til okkar í kvöld.
Þannig að okkur hefur sko ekki leiðst
Árný og Stebbi tóku Trival spil með sér og fórum við því í smá hugarleikfimi eftir matinn
Ikke jeg! Heldur einn náungi sem er uppfullur af nitlausum fróðleik!!! Ég er ekkert tapsár
Framundan hjá mér er að fá Trival spilið lánað og læra spurningarnar utanað.
Og framundan hjá okkur er jólamessa og jólaball á föstudaginn.
Kaupa rakettur og undirbúa áramótin. Og já... ekki má gleyma að senda jólakortin
Er að vinna í að setja inn nýjar myndir frá desember. Kannski hefst það hjá mér í kvöld... kannski ekki!
Knús á línuna...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
En gaman að heyra hvað þið höfðuð það gott um jólin.....mun sakna þess að hafa ykkur ekki hérna um áramótin....en kanski næst..... kveðja Dísa og co
knús frá Esbjerg*
Jóna og co.