Íslenskt þema.

30. desember 2007 klukkan 18:19
Síðustu tvö kvöld erum við Binni búin að vera að horfa á íslenskar bíómyndir. Horfðum á myndina Astrópía sem okkur fannst mjög skemmtileg. Ég fór að spá: Ætli það séu virkilega til svona nördar?
Og í gærkvöldi horfðum við á Mýrina. Okkur fannst hún nokkuð góð en ekkert brilliant! Frekar þung og aðalpersónan einum of húmorslaus. Og mér finnst það orðið frekar þreytandi við íslenskar myndir að það er alltaf kórsöngur í myndunum!! Ég hef ekkert á móti kórsöng, finnst hann venjulega mjög fallegur en það er til fullt af góðu tónlistarfólki á Ísl. Af hverju ekki að breyta til? Maður gerir ekki annað en að hækka og lækka í sjónvarpinu, kórinn yfirgnæfir allt og því þarf að lækka svo maður ærist ekki og hækka svo aftur til að heyra talið!
En hvað um það!!

Það er búið að vera þvílíkt letilíf á mínum bæ.
Ég er komin í vítahring Óákveðinn, sef alltof lengi og er svo andvaka á kvöldin og þar af leiðandi þreytt næsta morgun og sef frameftir...
Við höfum ekki farið út úr húsi í allan dag, ég rétt skrapp útí búð! En það er svo sem ágætt að fá einn og einn svona dag, sérstaklega ef maður nær að fæla frá sér samviskubitið um að halda strákunum svona inni!
En þeir kvarta ekkert. Við fórum með þá útí búð í gær... þeim finnst það BARA leiðinlegt. Ef við erum að fara eitthvert þá erum við varla komin útúr innkeyrslunni þegar J.I. spyr: erum við ekki að vera komin? Svo förum við í búð þá kemur: Æ ekki þessa búð! Og ef við slysumst til að keyra framhjá sömu búð aftur kemur: Æ nei, ekki aftur í þessa búð! Og svo: Erum við ekki að verða búin? Hvenær förum við heim?? o.s.frv. En þeir græddu vel í gær, fengu sitthvorn tölvuleikinn Brosandi.

Á föstudaginn fórum við á jólaball hjá Ísl.félaginum. Það var mjög gaman, allir komu með eitthvað meðlæti með sér á hlaðborðið. Svo var dansað í kringum jólatré og svo komu tveir jólasveinar... og það er saga til að segja frá....
Brynjar tók að sér að vera jólasveinn. Fór í búning og fékk skegg og kinnalit. Ásbjörn var nú fljótur að fatta plottið! Sagði öllum sem "ekki" vildu heyra að þetta væri ekki jólasveinn, heldur pabbi hans! Jóhann Ingi hafði þetta upp eftir honum en var samt alveg á báðum áttum. Það var frekar fyndið að fylgjast með honum, hann var svo stjarfur og spenntur en samt svo hugsi og fylgdist vel með pabba sínum en ég reyndi samt að halda honum hjá hinum jólasveininum, honum Kertasníki og hann hefur ekkert meira talað um þetta. En sá eldri heldur því statt og stöðugt fram að þetta var ekki jólasveinn og frekar ómögulegt að snúa útúr fyrir honum og þagga niður í honum Glottandi. Já þessi börn eru ekki eins vitlaus og þau líta út fyrir að vera... ho..ho...ho....

Í gærkvöldi var okkur boðið í mat til Dagmar og Einars. Fengum íslenskt lambalæri... mmmm... klikkar aldrei Brosandi.

Og svo var ég áðan að úrbeina læri í pottrétt sem verður í áramótamatinn. Við ætluðum reyndar að hafa kalkún en hann bara fæst ekki! Hvorki hér né í Þýskalandi Óákveðinn. En pottrétturinn er bestur í heimi og reddar því málunum Brosandi.

Steinar bróðir minn á afmæli í dag... til hamingju brósi Hlæjandi.

Að lokum vil ég óska öllum gleðilegs árs... takk fyrir það sem er að líða..

Gangið hægt um gleðinnar dyr Svalur.
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bogga skrifar ...
 
Ég fattaði jólasveinadæmið einmitt svona, þegar bróðir minn var fenginn að leika einu sinni. Ég þekkti jólafötin hans sem stóðu undan búningnum því hann var svo illa girtur!

Hafið það gott um áramótin, það verður sko ekkert síðra að fá pottréttinn geggjaða en kalkúninn :)

Miss ya,
Bogga
30. desember 2007 klukkan 19:42
Ágústa skrifar ...
 
hahaha...... ég vona samt að Ásbjörn verði búinn að gleyma þessu á næsta ári, eða haldið að Binni hafi leyst jólasveininn af. Mér finnst hann heldur ungur til að vita þetta :o/

Miss u to..
30. desember 2007 klukkan 21:45
Ella Þóra skrifar ...
 
Gleðilegt ár kæra fjölskylda, vonandi sjáumst við nú á nýja árinu eitthvað :)
Annars er alltaf gaman að fylgjast með ykkur á blogginu:)

kveðja Ella Þóra
30. desember 2007 klukkan 22:05
Elísabet skrifar ...
 
æææ. já er nú sammála því að Ásbjörn ætti nú ekkert að vita um þetta jólasveinadæmi ennþá...!
en vona að þið hafið það gott í kvöld... :)
Gleðilegt nýtt ár, og takk kærlega fyrir árið sem er að líða ;)

kær kveðja Elísabet frænka..!
31. desember 2007 klukkan 12:57
ragga skrifar ...
GLEÐILEGT ÁR ELSKU FJÖLSKYLDA..:)

hafið það gott..:)

love you..
01. janúar 2008 klukkan 21:30
Helena skrifar ...
 
Gleðilegt ár elskurnar og takk fyrir það liðna. Nú verðum við að hittast á nýja árinu!!!
Var sagt frá árlegu sundi íslendinga í Sönderborg.....voruð þið eitthvað viðriðin það??? :)
knús til ykkar og kærar þakkir fyrir strákana!
01. janúar 2008 klukkan 21:58
Ágústa skrifar ...
 
Nei Helena, við vorum ekki í sundinu... við vorum að dröslast á fætur þegar það var að byrja *roðn*.
01. janúar 2008 klukkan 22:22

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan