Blogg,blogg,blogg,blogg...
01. janúar 2008 klukkan 22:51
Gleðilegt ár kæru vinir og ættingjar... nær og fjær
.
Nú eru nýjir eigendur teknir við skólanum mínum... og ekki byrjar það nú vel
. Skólinn brann síðustu nótt. Það fór raketta í þakið og það s.s. brann og efsta hæð skólans. Það tók 4 klst. að slökkva eldinn og því er mikið vatnstjón líka.
Kennarinn hringdi í mig áðan og sagðist fara til Kolding í fyrramálið til að skoða aðstæður og hringir svo aftur í mig á morgun. Þannig að eins og er er ekki vitað hvenær kennsla hefst aftur
. Vonandi sem fyrst... ég ÆTLA að útskrifast í mars og ég hafði hugsað mér að vera mikið í skólanum í janúar og febrúar. Ég fékk svo marga mínus tíma þegar ég fór í aðgerðina og á eftir að vinna þá upp!
Áramótin hjá okkur voru mjög fín. Veðrið yndislegt, maturinn góður og bara rólegheit. Við vorum heima hjá Árný og Stebba. Horfðum á fréttaannála á RÚV, skutum smá upp um kvöldið... til að friða krakkana, Ásbjörn spurði á ca. kortérs fresti hvað klukkan væri
. Um miðnætti var síðan farið aftur út og skotið upp restinni. Þetta var smá slatti sem við keyptum, alla vega miðað við það að við höfum aldrei áður keypt rakettur
. Keyptum stóran fjölskyldupakka sem var ágætur fyrir utan prumpið sem fylgir alltaf svona pökkum og svo annan með stærri rakettum sem voru bara nokkuð flottar. Ásbjörn fílaði þetta alveg í botn en Jóhann Ingi var frekar rólegur yfir þessu, var bara að dúlla sér í klifrugrindinni meðan við hin skutum upp.
Við fórum síðan heim um kl.1,30 enda strákarnir aðfram komnir af þreytu og þar horfðum við Binni á áramótaskaupið.
Allir hafa skoðun á blessaða skaupinu!! En ekki hvað
. Binna fannst það lélegt en mér fannst það bara alveg ágætt. Mér fannst aðeins of mikið af útlendingum í því og Lost dæmið pínu þreytandi en ég gat alveg hlegið af því, hahaha....
Í dag fór ég á fætur um kl.13,30 fékk pínu sjokk því ég ætlaði snemma að sofa í kvöld því ég ætlaði í skólann á morgun.
En ég dreyf mig út með strákana og við löbbuðum alla leið til Ulkeböl í heimsókn til Svans og Elsu og það tók okkur um klukkutíma að labba þangað. Svo sótti Binni okkur þegar við fórum heim aftur, enda komið svarta myrkur.
Á morgun er síðasti frídagurinn hjá strákunum og síðan byrjar vanalega rútínan aftur... snemma að sofa - vakna snemma.
Læt þetta duga í bili...
..... bestu kveðjur.
Nú eru nýjir eigendur teknir við skólanum mínum... og ekki byrjar það nú vel
Kennarinn hringdi í mig áðan og sagðist fara til Kolding í fyrramálið til að skoða aðstæður og hringir svo aftur í mig á morgun. Þannig að eins og er er ekki vitað hvenær kennsla hefst aftur
Áramótin hjá okkur voru mjög fín. Veðrið yndislegt, maturinn góður og bara rólegheit. Við vorum heima hjá Árný og Stebba. Horfðum á fréttaannála á RÚV, skutum smá upp um kvöldið... til að friða krakkana, Ásbjörn spurði á ca. kortérs fresti hvað klukkan væri
Við fórum síðan heim um kl.1,30 enda strákarnir aðfram komnir af þreytu og þar horfðum við Binni á áramótaskaupið.
Allir hafa skoðun á blessaða skaupinu!! En ekki hvað
Í dag fór ég á fætur um kl.13,30 fékk pínu sjokk því ég ætlaði snemma að sofa í kvöld því ég ætlaði í skólann á morgun.
En ég dreyf mig út með strákana og við löbbuðum alla leið til Ulkeböl í heimsókn til Svans og Elsu og það tók okkur um klukkutíma að labba þangað. Svo sótti Binni okkur þegar við fórum heim aftur, enda komið svarta myrkur.
Á morgun er síðasti frídagurinn hjá strákunum og síðan byrjar vanalega rútínan aftur... snemma að sofa - vakna snemma.
Læt þetta duga í bili...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Er ekki annars Binni að byrja í prófum? 'Sendum honum góðar kveðjur.
Tjá, ekki gott að byrja árið á því að kveikja í skólanum, vonandi reddast það sem fyrst.
Hér er verið að reyna að rétta af svefnruglið sem lagst hefur á fjölskylduna yfir hátíðarnar (zzzz) það gekk alla vega ekki vel í morgun (Sólin drattaðist afar skapstygg á fætur kl hálftólf, þá var ég búin að vekja hana á 10 mín fresti síðan kl 9...)
Svo byrjar leikskólinn í fyrramálið og þá er bara að taka á honum stóra sínum!!
Knús til ykkar og saknaðarkveðjur,
Bogga
leitt að heyra með skólann, héðan er allt gott, bara rok og rigning
biðjum öll að heilsa
kv.Þórunn
En ég er viss um að þú plummar þig vel hvað sem þú gerir.
Gleðilegt ár frá okkur á vallholtinu....knús