Letin að gera útaf við suma!
07. janúar 2008 klukkan 09:03
En það er víst kominn tími til að rífa sig upp á rassg.....! Ég fór á fætur kl. 7 í morgun og ætla ekki aftur að fara að sofa... þó það sé ansi freistandi
.
Skólinn á að byrja 28 jan. samkvæmt nýjustu fréttum. En ef ég segi alveg eins og er þá sé ég ekki frammá að það standist! Það voru fleiri þúsundir lítra af vatni dældir á skólann og því vatnsskemmdir á öllum 4 hæðum hússins + þak og efsta hæð brennd. Og miðað við þann vinnuhraða sem ég hef kynnst hér í Danmörku (hraði snigilsins), þá trúi ég ekki að það náist að klára viðgerðir fyrir 28 jan. Kennarinn sagði meira að segja að það yrði hringt út ef þetta yrði tilbúið FYRR... haha... en það er nú samt vonandi að þetta klárast sem fyrst.
Annars er nú ekki mikið að frétta hjá okkur.
Binni er á fullu í prófum. Hefur varla sést hér heima síðustu daga og þannig verður það út þessa viku, hann er uppí skóla að læra.
Við skruppum reyndar til Þýskalands síðasta fimmtudag. Strákarnir fóru í pössun á meðan. Við fórum að hitta Jóa, móðurbróðir hans Binna, konuna hans og systir hennar. Þau búa í Gautaborg og voru á leið til Hamborg og tóku smá pásu í Flensborg... þannig að við brunuðum þangað til að heilsa uppá þau og fórum svo að versla. Binni tók "vinkonu" sína með (leiðsögutækið). Það var nú meira ruglið! Við ætluðum að hitta þau á ákveðnum stað, en þetta er ný verslunarmiðstöð og því ekki inní "heilanum" á "vinkonunni". Og það endaði með því að við Binni enduðum einhversstaðar í rassgati og þau komu og fundu okkur! Og við settumst inná Burger King og fengum okkur heitt kakó og smá spjall og svo héldu þau áfram
. Ég verð nú að segja eins og er... ég er ekkert voðalega hrifin af svona tækjadrasli! En ok fínt að nota svona ef maður er að fara á nýjar, ókunnar slóðir... EKKI þangað sem maður RATAR næstum blindandi... bara til að nota þetta!!! Við fengum "vinkonuna" til að vísa okkur leið í afmæli sem Ásbjörn fór í, þetta var í einu þorpi hér við Sönderborg. Heyrðu! Hún sendi okkur í gegnum einhverja slóða og það var meira að segja bannað að keyra þar! Svo ætlaði hún að senda okkur sömu leið til baka en við tókum það ekki í mál... og "vinkonan" varð bara tjúll... snúa við... snúa við.... haha...
Á miðvikudag og fimmtudag í síðustu viku var svo hrikalega kalt hérna
, jeminn... ég hef varla vitað annað eins. Ég held það hafi samt ekki verið meira en -4°. Þetta var miklu kaldara en -4° á Íslandi. Strákarnir misstu málið í bílnum um morguninn á leið í skólann, þeir voru bara frosnir
. En það er búið að hlýna aftur, kom rigning og núna rétt áðan var smá snjókoma/slydda.
Ég er alveg farin að telja niður... að sumri. Ég sé garðinn minn alveg í hyllingum... Binni kófsveittur við að slá og ég að drekka hvítvín
.. haha... ég sagði þetta einu sinni við hann og hann varð svooo... fúll
, sagði að ég hafi lofað að sjá um garðinn ef við fengjum íbúð með garði. Já, já... ég skal alveg slá, var meira að segja að spá í hvernig sláttuvél ég ætti að fá mér á þetta grasfrímerki
.
Það er nóg að gera hjá mér í dag... snúast útí bæ, þrífa, hreyfa mig, læra, og íþróttaskóli.
Þetta er í annað skiptið í dag sem ég kemst með strákunum í íþróttaskólann, ég er nefnilega alltaf í skólanum á þessum tíma. Þannig að fríið mitt kemur sér alveg vel
. Get loksins tekið smá þátt í þeirra daglegu rútínu.
Jæja ætli það sé ekki komið nóg af bulli í bili!
Bestu kveðjur....
Skólinn á að byrja 28 jan. samkvæmt nýjustu fréttum. En ef ég segi alveg eins og er þá sé ég ekki frammá að það standist! Það voru fleiri þúsundir lítra af vatni dældir á skólann og því vatnsskemmdir á öllum 4 hæðum hússins + þak og efsta hæð brennd. Og miðað við þann vinnuhraða sem ég hef kynnst hér í Danmörku (hraði snigilsins), þá trúi ég ekki að það náist að klára viðgerðir fyrir 28 jan. Kennarinn sagði meira að segja að það yrði hringt út ef þetta yrði tilbúið FYRR... haha... en það er nú samt vonandi að þetta klárast sem fyrst.
Annars er nú ekki mikið að frétta hjá okkur.
Binni er á fullu í prófum. Hefur varla sést hér heima síðustu daga og þannig verður það út þessa viku, hann er uppí skóla að læra.
Við skruppum reyndar til Þýskalands síðasta fimmtudag. Strákarnir fóru í pössun á meðan. Við fórum að hitta Jóa, móðurbróðir hans Binna, konuna hans og systir hennar. Þau búa í Gautaborg og voru á leið til Hamborg og tóku smá pásu í Flensborg... þannig að við brunuðum þangað til að heilsa uppá þau og fórum svo að versla. Binni tók "vinkonu" sína með (leiðsögutækið). Það var nú meira ruglið! Við ætluðum að hitta þau á ákveðnum stað, en þetta er ný verslunarmiðstöð og því ekki inní "heilanum" á "vinkonunni". Og það endaði með því að við Binni enduðum einhversstaðar í rassgati og þau komu og fundu okkur! Og við settumst inná Burger King og fengum okkur heitt kakó og smá spjall og svo héldu þau áfram
Á miðvikudag og fimmtudag í síðustu viku var svo hrikalega kalt hérna
Ég er alveg farin að telja niður... að sumri. Ég sé garðinn minn alveg í hyllingum... Binni kófsveittur við að slá og ég að drekka hvítvín
Það er nóg að gera hjá mér í dag... snúast útí bæ, þrífa, hreyfa mig, læra, og íþróttaskóli.
Þetta er í annað skiptið í dag sem ég kemst með strákunum í íþróttaskólann, ég er nefnilega alltaf í skólanum á þessum tíma. Þannig að fríið mitt kemur sér alveg vel
Jæja ætli það sé ekki komið nóg af bulli í bili!
Bestu kveðjur....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
haha þetta er nú meiri ,,vinkonan" já ég segi það sama er ekkert hrifin af svona tækjarusli... :) haha en annars er allt fínt að frétta hér, var bara að ná í stundatöfluna mína áðan, hún er ágæt. skólinn byrjar á fimmtudaginn ;/ fríið búið, en já heppin þú að byrja ekki fyrr en 28. öss ekkert smá frí, en aumingja Binni að vera í prófum núna... :(
en annars bið ég að heilsa héðan úr kuldanum :)
Kveðja Elísabet frænka
En varðandi vinkonuna þá kunna þessi kallagrey sem fá sér vinkonu svona til hliðar bara betur að meta okkur sem þeir eiga fyrir þegar sú rafknúna fer að stjórna þeim um of í einhverja vitleysur hehe.... þó þeir berjist fyrir tilverurétti þeirra með kjafti og klóm híhí.
En vona að planið haldist með skólann svo þú verðir ekki langt fram á sumar með önnina því einhvern vegin get ég ímyndað mér að þú njótir þess betur að horfa á Binna sveittan með slátturvélina og þú hvítvínsglas í hendi en að sitja yfir skruddunum þegar að sólin fer að láta sjá sig meira. hehe en njóttu frisins á meðan það varir.
Kveðja úr sveitinni.
Ásta
knús**
Jóna og co.
Og Jóna! Binni yrði örugglega ánægður með að fá hjálp ;o) haha..
Meiri óhepninn með skólann. Það er vonadi að allar dagsetingar standist.
Það er bara næs að hafa "garðfrímerki". Tala af egin raun, það er hunleiðinlegt að slá :-)
Knús frá Berjó
hehe.. þessi blessuðu gps tæki geta verið hrekkjótt... mér fannst þetta samt nauðsyn þegar ég bjó úti.... enda ekki ratvís manneskja;)
Gangi þér vel með allt Ágústa mín:) bið að heilsa strákunum:)