Ný könnun!
Rétt svar kemur í næstu viku!!!
Annars ekkert að frétta.
Ég er byrjuð á ritgerðinni
... þá er bara að halda áfram með hana!
Var á kaffihúsi í dag með Jónu og Möggu Lukku. Fórum svo í eina líkamsræktarstöð til að tékka á verði á þeim staðnum. Það er hálfgert verðstríð í gangi hér hjá líkamsræktarstöðvunum. Þetta var frekar furðulegt, við spurðum sem sagt um verð þarna en konan sem var að VINNA þarna vissi það ekki!!! Og ég spurði þá hver vissi það! Og hún sagði að það kæmi kona á mánudaginn sem gæti sagt okkur það og stuttu seinna sagði hún að það væri önnur kona í fyrramálið sem gæti sagt okkur verðið! Og einhversstaðar í samtalinu missti hún útúr sér að hún mætti ekki segja okkur verð!!! Þetta þykir mér frekar fáránleg þjónusta.
Ásbjörn er farinn að æfa sig í dönsku með pabba sínum, en það má enginn vita það... ekki einu sinni ég! Þetta er bara þeirra "leyndarmál", hann sagði mér í dag að hann myndi segja mér leyndarmálið seinna og sagði pabba sínum að kennarinn hans mætti vita þetta þegar hann væri orðinn góður í dönsku
. Þá er bara að biðja og vona að þetta sé spor í rétta átt.
Við Binni fórum í búð í morgun og keyptum þrautabækur á dönsku fyrir strákana. Bækur með orðum fyrir Ásbjörn og tölur fyrir Jóhann Inga. J.I. er alltaf að leggja saman tölur og er reyndar líka mikið að spá í stafina en hann fær líka stafabók við tækifæri
.
Í kvöld fer ég á fund og síðan í hvítvín til Dagmar
, spurning um að fara labbandi!
Eitt enn... ég er byrjuð í megrun... eina ferðina enn, samt ekkert áramótaheit, bara einhver fastur liður eins og venjulega! Keypti mér Mini steps á mánudaginn, það eru einhverskonar tröppu-tæki. Ég prófaði það fyrst í gær, byrjaði á því að blóta klukkunni á tækinu! Marg ríndi á hana til að ath. hvort hún virkaði ekki alveg örugglega, mér fannst ég vera búin að vera svo lengi á þeim... en klukkan sýndi bara 5 mín. en hún var ekkert biluð... bara tímaskynið í mér eitthvað brenglað (og þolið
), en þetta tók alveg á.
Svo fór ég á körfuboltaæfingu á þriðjudaginn. Ég er búin að vera svo neikvæð með körfuboltann undanfarið, var orðin leið á honum fyrir nokkrum mánuðum og hef ekkert mætt. Ákvað samt að fara á þriðjudaginn -í síðasta skiptið, en það var bara svoo gaman og ég ætla aftur og aftur... Ég var að því komin að springa á fyrstu metrunum en lifði samt af þessa 4 leiki sem við spiluðum. Hlakkar bara til að fara á næstu æfingu
.
Jamm.. det var det... dass was für heute! (Veitir ekki af að æfa smá þýsku inná milli!)
Bestu kveðjur....
hilsen frá Esbjerg,
Jóna prjóna
Er enn að tala sjálfa mig til að fara koma mér af stað aftur, og breyta um mataræði....ha ha ha.
Saknaðarkveðjur
Þú ert smá dugleg að hreyfa þig, ég þarf sparka í rassinn og fara í hreyfa mig að viti. Langar mest til einkaþjálfara sem mundi þræla mér út ;)
gangi ykkur vel með ásbjörn, þetta kemur allt með dönskunna hjá drengnum :) bara vera þolinmóður :)
bið að heilsa í bili
Elísabet frænka
Gott ráð með megrunina. Þú ert ekki megrun, banað að huksa um megrun. Það er ljót og leiðnlegt orð sem hefur vond áhrif á mann. Þú ert bara að koma þér í þjálfun. Það er ekkert betra en að finna að maður er með vöðva undir öllu þessu sem dúar svona :-/ Síðan kemur það skemtilega, þegar maður er búin að vera duglegur að æfa. Jú ,,,,, vigtin fer kannski að standa með manni :-)
Gngi þér í köruni. Koma svo stelpa :-) :-)
Kv Dagný
og flott hjá þér að vera komin í megrun.. ekki veitti af...
DJÓK........
sjáðu bara hvað gerist ef maður fer ekkil reglulega í megrun.. maður endar eins og ég!!! en þú verður að segja mér hvaða líkamsræktarstöð vildi ekki gef upp verð???