Hahaha...
15. janúar 2008 klukkan 10:24
Enginn súludans á þessum bænum
. Súludansinn fékk flest atkvæði og svo Boot camp... en ég lét plata mig í Salsa
.
Ég fór í salsatíma í gærkvöldi og það var bara mjög gaman. Ég var búin að ímynda mér það versta... að ég yrði eins og mesti hálfvitinn þarna en eftir á að hyggja held ég að ég hafi ekkert skorið mig úr hópnum. Allavega var stigið oftar á tærnar á mér en ég á öðrum
. Þetta voru aðallega byrjendur en nokkrir lengra komnir og við lærðum grunnsporin. Dönsuðum í hring mest allan tímann og skiptum reglulega um dansfélaga, þannig gekk hringurinn fyrir sig. Og svo dönsuðum við líka í línu sem var mjög gaman. Ég ætla aftur á næsta mánudag en eftir að skólinn byrjar kemst ég ekki meir
. Þetta er alveg merkilegt.. allt sem mig langar að æfa er á mánudögum og miðvikudögum! En þá er langur skóladagur hjá mér.
Annars var helgin mjög fín hjá okkur.. nema kannski Binna, hann var í skólanum að læra alla helgina.
Jóhann Ingi gisti hjá Hörpu aðfaranótt laugardags... fannst það mjög gaman. Þau fundu sér smá prakkarastrik meðan Elsa svæfði Hrannar!! Ég spurði Jóhann Inga síðan útí það næsta dag, en hann vildi ekki segja mér það! En þegar ég sagðist ekkert verða reið þá lét hann vaða (eitthvað hræddur við mömmu gribbu!) Þau fundu sér hveiti og flórsykur og dunduðu sér með það inní herbergi, smökkuðu flórsykurinn og svoleiðis
. Ekkert alvarlegt. Óli vinur hans Ásbjörns gisti hjá honum meðan J.I var hjá Hörpu og svo á laugardagsmorgun hringdi mamma bekkjarbróður hans Ásbjörns og bauð honum í heimsókn. Hann þáði það... og á sunnudaginn kom bekkjarbróðir hans í heimsókn til okkar. Ásbjörn talaði ekki við hann EN hann talaði smá við mig fyrir framan vin sinn og það er nýtt!!! Hingað til hefur hann líkað bent og kinkað kolli til mín þegar einhver danskur er nálægt. Svo er Ásbjörn búinn að segja mér frá leyndarmálinu sínu og ég fékk að vera með þeim feðgum að æfa dönsku
.
Svo hafði ég það bara voða kósý um helgina. Yfirtók sjónvarpið með kerlingamyndum, þannig að Binni tók sveig framhjá því
en samt fussandi og sveiandi!!
Fórum svo til Elsu og Svans í mat í gærkvöldi... í lambalæri, það klikkar aldrei.
Á morgun fer ég til Óðinsvé í skólann. Það er aukakennsla... eða tímar sem við ráðum hvort við tökum. Það er um rekstur snyrtistofa eða eitthvað svoleiðis og svo eigum við að læra að nota parafinmaska, sem er heitur, fljótandi andlitsmaski. Það verður örugglega bara ágætis tilbreyting í fríinu.
Seinnipartinn í dag er Nyårsfrokost í skólanum hans Ásbjörns, allir eiga að koma með eitthvað og það verður hlaðborð. Síld og eitthvað álíka gúmmulaði
.
Í gær datt mér það í hug að ákveða að reyna að vera skipulagðari!!! Fór útí búð og ætlaði að kaupa dagatal sem heitir familiplan, þar getur maður skrifað inn hvað er um að vera hjá hverjum! En það var uppselt svo ég keypti mér töflu til að tússa á, hólfuð niður eftir dögum og vikum... og hún er næstum útkrotuð, strax í gær. Ég er alltaf með miða um hitt og þetta og alltaf svo hrædd um að vera að gleyma einhverju en nú get ég skrifað það á töfluna mína
og hún er fyrir framan nefið á mér í hvert skipti sem ég kem inní eldhús!
Jæja, best að fara að gera eitthvað að viti...
Adios........
Ég fór í salsatíma í gærkvöldi og það var bara mjög gaman. Ég var búin að ímynda mér það versta... að ég yrði eins og mesti hálfvitinn þarna en eftir á að hyggja held ég að ég hafi ekkert skorið mig úr hópnum. Allavega var stigið oftar á tærnar á mér en ég á öðrum
Annars var helgin mjög fín hjá okkur.. nema kannski Binna, hann var í skólanum að læra alla helgina.
Jóhann Ingi gisti hjá Hörpu aðfaranótt laugardags... fannst það mjög gaman. Þau fundu sér smá prakkarastrik meðan Elsa svæfði Hrannar!! Ég spurði Jóhann Inga síðan útí það næsta dag, en hann vildi ekki segja mér það! En þegar ég sagðist ekkert verða reið þá lét hann vaða (eitthvað hræddur við mömmu gribbu!) Þau fundu sér hveiti og flórsykur og dunduðu sér með það inní herbergi, smökkuðu flórsykurinn og svoleiðis
Svo hafði ég það bara voða kósý um helgina. Yfirtók sjónvarpið með kerlingamyndum, þannig að Binni tók sveig framhjá því
Fórum svo til Elsu og Svans í mat í gærkvöldi... í lambalæri, það klikkar aldrei.
Á morgun fer ég til Óðinsvé í skólann. Það er aukakennsla... eða tímar sem við ráðum hvort við tökum. Það er um rekstur snyrtistofa eða eitthvað svoleiðis og svo eigum við að læra að nota parafinmaska, sem er heitur, fljótandi andlitsmaski. Það verður örugglega bara ágætis tilbreyting í fríinu.
Seinnipartinn í dag er Nyårsfrokost í skólanum hans Ásbjörns, allir eiga að koma með eitthvað og það verður hlaðborð. Síld og eitthvað álíka gúmmulaði
Í gær datt mér það í hug að ákveða að reyna að vera skipulagðari!!! Fór útí búð og ætlaði að kaupa dagatal sem heitir familiplan, þar getur maður skrifað inn hvað er um að vera hjá hverjum! En það var uppselt svo ég keypti mér töflu til að tússa á, hólfuð niður eftir dögum og vikum... og hún er næstum útkrotuð, strax í gær. Ég er alltaf með miða um hitt og þetta og alltaf svo hrædd um að vera að gleyma einhverju en nú get ég skrifað það á töfluna mína
Jæja, best að fara að gera eitthvað að viti...
Adios........
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
En hlakka ógó til þegar þú kemur heim næst....er ekki þá hægt að plata þig að taka mann í dekur....höfum svona spes stelpukvöld....
Saknaðarkveðjur
Og jú ég er alltaf til í dekurkvöld:o) ... með hvítvíni!!!
Miss u to...
já er sammála því að það er nauðsinlegt að vera skipulagður :) ég er nú frekar skipulögð sko, allir mínir pappírar eru í möppum, krakkarnir líta á það stórum augum :) gaman af því..
en bið bara að heilsa í bili.. sakna ykkar ekkert smá :)
p.s umm dekur og kalt hvítvín :)
Gott að Ásbjörn tekur framförum, hann er örugglega að bíða eftir því að verða góður í dönskunni. Þá lætur hann bara vaða:)
Knús og kveðjur úr snjónum!
Bogga
knús*
Jóna og co.
Og svona töflur fást í Bilka og dagatöl örugglega þar líka og í bókabúðum, ég nennti bara ekki að þvælast á milli búða til að leita að þessu!!
Verðum í bandi.
Knús..