Rauð-glóandi!!!
18. janúar 2008 klukkan 09:57
Það er ekki símalínan sem er rauðglóandi... heldur er það ég
.
Ó já, mín skellti sér sko í ljós í gær, eftir ca. 10 ára pásu. Ég var samt BARA í 7 mínútur í einhverjum túrbó..dúrbó ljósabekk!!! Og keypti mér eitthvað krem til að bera á mig fyrir tímann og það bara virkaði svona vel, enda kannski ástæða fyrir því, ég held þetta hafi ekkert verið sólkrem heldur eitthvað brúnkukrem. Já maður er alltaf svo gráðugur.. allt á að gerast á einum degi! Svo var ég ekki með neitt til að skýla augunum og var með þau kreppt saman allan tímann því ljósið var svo sterkt og þegar slökknaði á bekknum og ég gat opnað augun voru þvílíkar hrukkur
.
Ásbjörn tók eftir hvað ég var glóandi í morgun og svo sýndi ég Jóhanni Inga það og hann tók bakföll og sagði svo: Vááá.... hvað þú ert með FEITAN maga!!!! Hehemmm og það kom svoo beint frá hjartanu!! Þessar vikurnar gengur allt útá fitu hjá honum, þó við höfum aldrei talað um neitt svoleiðis við hann eða réttara sagt aldrei verið með fitu-áróður við hann.
Síðustu tvo daga er ég búin að vera drullu slöpp, með kvef og eitthvað ógeð. Fór samt til Óðinsvé á miðvikudaginn í skólann. Þar voru þrjár íslenskar í skólanum. Við Jóna vorum einar frá okkar skóla og fengum kennslu með parafin maskann og svo fórum við í bóklegt með öllum hinum. Það var sem sagt um það hvað maður á að hafa í huga ef maður opnar stofu og hvernig maður reiknar skatt og vsk og þess háttar og svo tókum við próf í lokin og ég náði því. Þetta var svona idiot próf, spurningar úr því sem hann var búinn að tala um. Þetta var samt hrikalega leiðinlegt og það situr ekkert eftir eftir þennan tíma. Á tímabili var ég farin að heyra í honum í hálfgerðri móðu! En þetta var samt alveg skemmtileg ferð, gaman að hitta kennarana aftur og þær virtust bara glaðar að sjá okkur aftur
.
Í gær lá ég í rúminu allan daginn... eins og Rimpa tæt um hausinn.. eða þar til mér datt í hug að fara í ljós! Ég var komin út og á leiðinni útí bíl þegar ég fattaði að ég var ógreidd og hljóp því upp aftur og sótti derhúfuna
.
Í dag er ég að fara að passa Hrannar og svo á morgun er djamm....
25 ára afmæli hjá Jónu og svo er okkur líka boðið í innflutningspartý og næstu helgi er Þorrablótið... brjálað að gera!!!
Jæja, kominn tími til að rífa sig uppúr aumingjagírnum síðan í gær...
Þar til næst.... mússí múss...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
En þú ert svaka dugleg.
Hafið það sem allra best
kv Dísa
Roðinn verður örugglega farinn á morgun svo þú verður brún og sæt á djamminu :)
Sakna þín,
Bogga