Í nýja-gamladaga!

21. janúar 2008 klukkan 10:18
Það er oft erfitt að vera yngstur Gráta. Og mikið spáð og spekúlerað í því hvað stóri bróðir er gamall þegar lillinn er þetta og þetta mikið gamall!! Og það versta var þegar Ásbjörn sagði við hann að í gamla daga þegar Ásbjörn var lítill, þá var Jóhann Ingi ekki til!! Inginn var nú samt ekki lengi  að búa sér til fortíð, hann kallar hana bara nýja-gamladaga Glottandi. Kemur stundum til mín og segir: Heyrðu mamma! Manstu í nýja-gamladaga, þegar ég var lítill.....?  Fyrir mér er gamla daga þegar ömmur og afar voru börn! Já það er ótrúlegt hvað börnum dettur í hug að velta sér uppúr Brosandi.

Svo er eitt frekar fyndið. Jóhann Ingi er venjulega vanur að tala útí eitt, þó enginn sé að hlusta (nóg að segja já og aha.. inná milli), en nú er hann farinn að taka eftir þegar ekki er verið að hlusta á hann og oft lendir hann í því að þurfa að bíða á meðan einhver annar er að tala. Svo gerðist það -í fyrsta skiptið... hann var að bíða eftir að komast að og þegar kom að honum að tala þá var hann búinn að gleyma hvað hann ætlaði að segja og hann var svo miður sín að hann fór að hágráta Gráta og var hundfúll útí okkur að hafa látið sig bíða. Svo í gærkvöldi þegar hann átti að fara að sofa þá þurfti hann að tala svo mikið og ég bað hann að segja mér það á morgun og fara að sofa en þá sagði minn: þá verð ég búinn að gleyma því hvað ég ætla að segja! Æ, mér finnst svo krúttlegt að sjá þegar börnin eru að læra á lífið! Upplifa eitthvað í fyrsta skiptið og læra svo að takast á við það Brosandi.

Annars er bara allt fínt í fréttum.
Það var rosa gaman í afmælinu á laugardaginn, tíminn flaug frá okkur og við fórum ekki í bæinn fyrr en kl. 3 og ég var komin heim kl. 4 og síðan rifin upp kl. 11 um morguninn því ferðinni var heitið til Þýskalands í Mr. Scandis Funpark, þar var hamast og svitnað allan daginn á tramólínum, klifrugrindum, rafmagnsbílum og fleiru spennandi dóti. Áður en við fórum heim fengum við okkur að borða á Burger King. Strákarnir steinsofnuðu á heimleiðinni og við Binni alltaf jafn bjartsýn: bárum þá sofandi inn og vonuðumst til að þeir svæfu til morguns...hahahaha... góður þessi!! Þeir voru vaknaðir klukkan 20,00 og sofnuðu ekki aftur fyrr en kl. 23,00 og þá var ég búin að liggja heillengi hjá þeim, ætlaði snemma að sofa sjálf. Svo voru þeir dauðþreyttir í morgun Óákveðinn.

Svo erum við familían að fara í reisu í apríl. Ætlum til Þýskalands á stað sem heitir Weissenhäuserstrand, þar verðum við í íbúð og þar er baðparadís með fullt af rennibrautum og svoleiðis Brosandi. Við förum með allavega 3 öðrum pörum þannig að það verður voða fjör.

Jæja...jæja...jæja....

Bið að heilsa í bili....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bogga skrifar ...
 
Oooo, hvað strönd hinna hvítu húsa hljómar vel!! Væri sko alveg til í að skella mér með :)

Kannast við Gamla daga-skortinn hjá yngri systkinum. Maður verður að passa sig á Sólinni, ef maður er að tala um e-ð sem gerðist áður en hún fæddist, þá biður hún um að fá að heyra sögu af sjálfri sér þegar hún var lítil! Bara svona til að fá að vera með :)
21. janúar 2008 klukkan 15:07
Helena skrifar ...
 
haha.. Jóhann Ingi dúlla :) Þegar einn frænda hans hér var á sama aldri spurði daginn út og inn um allt á milli himins og jarðar. Ef við komum með svarið áður en hann náði að klára spurninguna.... byrjaði hann bara uppá nýtt... maður grípur ekki fram í...
21. janúar 2008 klukkan 19:34
Steinar skrifar ...
 
Weissenhäuserstrand
Er þetta einhver nektarnýlenda?
22. janúar 2008 klukkan 20:27
Ágústa skrifar ...
 
Já Steinar, við Binni höfum mjög gaman af að spóka okkur á nektarnýlendu og við höfum líka fundið okkur vini með sömu áhugamál ;o)
Langar þig að koma með???
22. janúar 2008 klukkan 20:54
Disa skrifar ...
Hí hí hí......góður Steini :-)

Sem betur fer er þetta tímabil búið hjá mínum drengjum, en á þetta eftir með prinsessuna.
En kannast við þetta með masið...er enn svoleiðis á mínum bæ og já það er sko bannað að svara fyrr en barnið er búið að romsa allri spurningunni út. Sem getur sko tekið tíma. En þetta kennir mann þeim yngstu ...bannað að grípa fram í.

Hafið að sem allra best
saknaðaðarkveðjur
23. janúar 2008 klukkan 10:04

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan