Zzzz....
24. janúar 2008 klukkan 08:47
Nú fer að líða að því að skólinn byrji aftur. Ég kvíði nú svolítið fyrir ef segji alveg eins og er! Það er búið að vera svo næs hjá mér undanfarinn mánuð
. En það eru nú bara 8 vikur eftir og þá er þetta búið
. Það á reyndar að vera bara næs hjá okkur á mánudaginn, ég held ég hafi einn kúnna og svo er bara upprifjun allan daginn og svo fáum við mikið bóklegt það sem eftir er.
Mér finnst kominn meiri hugur í Ásbjörn á að byrja að tala í skólanum. Hans bíða svo mörg verðlaun sem eru farin að freista hans! Í gær sagði hann að einn skólaliði (starfsmaður í skóladagvistuninni) hafi sagt að hann ætti að spyrja mig hvort Ásbjörn mætti koma heim til hans einhvern daginn og spila tölvuleik, þegar hann væri farinn að tala! Þetta er ungur strákur sem minnir okkur svo á Dóra skrýtna frænda hans. Ásbirni finnst mjög gaman af þessum starfsmanni og reyndar öllum hinum líka en hann er mjög duglegur að djöflast í honum og venjulega er Ásbjörn að hamast eitthvað í honum þegar ég kem að sækja hann eða að hann situr í fanginu á honum.
Ég sagði við Ásbjörn í gær að byrja á því að prófa að svara í skólanum, bara með já eða nei og þá myndi hann finna að þetta er ekkert mál, það væri bara erfitt að byrja og svo kæmi restin og hann mótmælti því ekki. Svo nú er bara að bíða og sjá
.
Í gær voru keyptir grímubúningar á bræðurna. Jóhann Ingi valdi sér Turtles, hann fékk reyndar svoleiðis í fyrra líka en þessi er flottari og Ásbjörn valdi sér Star Wars og fékk síðan geislasverð með. Svo það var agaleg spenna hér í gær þegar búningarnir voru vígðir
.
Ég veit ekkert hverju ég á að ljúga að ykkur, ákvað að skrifa bara nokkrar línur. Það er ansi freistandi að fara bara aftur að sofa!! En nei, ég verð að venja mig við fyrir skólann... ég er svo hrikalegur letingi.
Var reyndar að spá í að skella mér bara í ljós!!! Láta vaða aftur... þetta gæti orðið svolítið spennandi... verð ég bleik eða brún? Deffenetli bleik eins og síðast!!! Ég væri nú líka alveg til í að skreppa til Þýskalands! Ég held að það séu enn útsölur þar og mig langar svo að kaupa mér föt
. Það er miklu flottara H&M þar heldur en hér. Æi hvað það er leiðinlegt að vera svona eirðarlaus
. En ég hlýt að finna út úr því.
Bless í bili...
. En það eru nú bara 8 vikur eftir og þá er þetta búið
. Það á reyndar að vera bara næs hjá okkur á mánudaginn, ég held ég hafi einn kúnna og svo er bara upprifjun allan daginn og svo fáum við mikið bóklegt það sem eftir er.Mér finnst kominn meiri hugur í Ásbjörn á að byrja að tala í skólanum. Hans bíða svo mörg verðlaun sem eru farin að freista hans! Í gær sagði hann að einn skólaliði (starfsmaður í skóladagvistuninni) hafi sagt að hann ætti að spyrja mig hvort Ásbjörn mætti koma heim til hans einhvern daginn og spila tölvuleik, þegar hann væri farinn að tala! Þetta er ungur strákur sem minnir okkur svo á Dóra skrýtna frænda hans. Ásbirni finnst mjög gaman af þessum starfsmanni og reyndar öllum hinum líka en hann er mjög duglegur að djöflast í honum og venjulega er Ásbjörn að hamast eitthvað í honum þegar ég kem að sækja hann eða að hann situr í fanginu á honum.
Ég sagði við Ásbjörn í gær að byrja á því að prófa að svara í skólanum, bara með já eða nei og þá myndi hann finna að þetta er ekkert mál, það væri bara erfitt að byrja og svo kæmi restin og hann mótmælti því ekki. Svo nú er bara að bíða og sjá
.Í gær voru keyptir grímubúningar á bræðurna. Jóhann Ingi valdi sér Turtles, hann fékk reyndar svoleiðis í fyrra líka en þessi er flottari og Ásbjörn valdi sér Star Wars og fékk síðan geislasverð með. Svo það var agaleg spenna hér í gær þegar búningarnir voru vígðir
.Ég veit ekkert hverju ég á að ljúga að ykkur, ákvað að skrifa bara nokkrar línur. Það er ansi freistandi að fara bara aftur að sofa!! En nei, ég verð að venja mig við fyrir skólann... ég er svo hrikalegur letingi.
Var reyndar að spá í að skella mér bara í ljós!!! Láta vaða aftur... þetta gæti orðið svolítið spennandi... verð ég bleik eða brún? Deffenetli bleik eins og síðast!!! Ég væri nú líka alveg til í að skreppa til Þýskalands! Ég held að það séu enn útsölur þar og mig langar svo að kaupa mér föt
. Það er miklu flottara H&M þar heldur en hér. Æi hvað það er leiðinlegt að vera svona eirðarlaus
. En ég hlýt að finna út úr því.Bless í bili...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
En gangi þér vel í skólanum......ég sendi þér góða strauma.
Kveðja Dísa rafvirkjafrúin :-)