Súrir hrútspungar!!!!
27. janúar 2008 klukkan 19:40
Oooo... nú er fríið mitt bara alveg að verða búið! Bara örfáir klukkutímar eftir!
Ég nenni ekki í skólann!!
Ég fann mér nú ýmislegt til dundurs í eirðarleysinu í síðustu viku!
Ég t.d. mjakaði á mig sólaráburð og fór í ljós! Ég held ég hafi sett aðeins of mikið á mig, mér fannst ég varla hitna! Svo fór ég aftur í ljós á laugardaginn og ótrúlegt en satt, þá er ég komin með smá lit
.
Á föstudaginn fór ég til Þýskalands með Möggu Lukku og Elsu. Við fórum m.a. í H&M og þar keypti ég mér pils.. já undur og stórmerki gerast!! Síðan fórum við líka í fleiri búðir en ætluðum að leggja af stað heim í síðasta lagi kl.14... en okkur seinkaði aðeins... og síðan seinkaði okkur "aðeins" meira. Ég gleymdi nefnilega að taka eina beygju (því ég kjaftaði svo mikið!) og heimferðin tók ca. klst. ef ekki aðeins meira
.
Í gærkvöldi var síðan Þorrablótið.
Strákarnir gistu hjá Svan og Elsu.
Við hittumst nokkur hér heima hjá okkur fyrir blótið, smá upphitun. Og síðan var brunað í Dybböl forsamlingshus, þar sem blótið var haldið. Það var voða gott að fá hangikjöt, læri og harðfisk
. Og ég smakkaði meira að segja súran hrútspung! Fyrst fannst mér hann allt í lagi, svo tuggði ég hann aðeins lengur og þá langaði mig ekki að kingja honum.. varð bara pínu bumbult af tilhugsuninni við að fá þetta ofaní maga og skyrpti honum útúr mér
.
Það voru skemmtiatriði og hljómsveit og ég dansaði næstum allt kvöldið. Og ég var svo gáfuð... að ég var í nýjum stígvélum og ég var að drepast í löppunum. Ég hélt virkilega að ég kæmist ekki frá taxanum og inn til mín um nóttina. En það hafðist þó... ég hugsaði bara um söguna af stráknum sem fór á bryggjuna og var gefinn fullur poki af fisk. Strákurinn var lítill og pokinn níða þungur og strákurinn hugsaði alltaf að hann færi að næsta ljósastaur og hvíldi sig svo, og svo að næsta og næsta og loksinis komst hann heim með fisk í soðið fyrir fjölskylduna!!! En fyrir mér var sagan: ein hella í viðbót og enn ein og, og, og ein í viðbót og upp tröppurnar .... svo kæmist ég úr stígvélunum og í bólið
.
Í dag var sko legið í leti. Ég sótti ekki strákana fyrr en seint og síðarmeir... og mín var sko ekki saknað
. Það fyrsta sem ég heyrði er ég kom inn úr dyrunum var: ÉG ÆTLA EKKI HEIM NÚNA!!!!
Okkur var boðið í mat hjá Elsu og Svan, svínalundir með tilheyrandi
. Ekki amalegt að þurfa ekki að hugsa um matargerð á svona degi. Binni var nú bara heima og fékk sendan mat þangað, maginn var ekki alveg búinn að rétta sig af hjá sumum!
Nú styttist bara óðum í að við flytjum
. Ég er búin að finna garðborð og stóla sem mig langar að kaupa
... Oooo ég get bara ekki beðið.
Ég man ekki eftir fleiru eins og er. Kannski spurning um að hafa rænu á að fara snemma að sofa!
Bestu kveðjur í bili
...
Ég fann mér nú ýmislegt til dundurs í eirðarleysinu í síðustu viku!
Ég t.d. mjakaði á mig sólaráburð og fór í ljós! Ég held ég hafi sett aðeins of mikið á mig, mér fannst ég varla hitna! Svo fór ég aftur í ljós á laugardaginn og ótrúlegt en satt, þá er ég komin með smá lit
Á föstudaginn fór ég til Þýskalands með Möggu Lukku og Elsu. Við fórum m.a. í H&M og þar keypti ég mér pils.. já undur og stórmerki gerast!! Síðan fórum við líka í fleiri búðir en ætluðum að leggja af stað heim í síðasta lagi kl.14... en okkur seinkaði aðeins... og síðan seinkaði okkur "aðeins" meira. Ég gleymdi nefnilega að taka eina beygju (því ég kjaftaði svo mikið!) og heimferðin tók ca. klst. ef ekki aðeins meira
Í gærkvöldi var síðan Þorrablótið.
Strákarnir gistu hjá Svan og Elsu.
Við hittumst nokkur hér heima hjá okkur fyrir blótið, smá upphitun. Og síðan var brunað í Dybböl forsamlingshus, þar sem blótið var haldið. Það var voða gott að fá hangikjöt, læri og harðfisk
Það voru skemmtiatriði og hljómsveit og ég dansaði næstum allt kvöldið. Og ég var svo gáfuð... að ég var í nýjum stígvélum og ég var að drepast í löppunum. Ég hélt virkilega að ég kæmist ekki frá taxanum og inn til mín um nóttina. En það hafðist þó... ég hugsaði bara um söguna af stráknum sem fór á bryggjuna og var gefinn fullur poki af fisk. Strákurinn var lítill og pokinn níða þungur og strákurinn hugsaði alltaf að hann færi að næsta ljósastaur og hvíldi sig svo, og svo að næsta og næsta og loksinis komst hann heim með fisk í soðið fyrir fjölskylduna!!! En fyrir mér var sagan: ein hella í viðbót og enn ein og, og, og ein í viðbót og upp tröppurnar .... svo kæmist ég úr stígvélunum og í bólið
Í dag var sko legið í leti. Ég sótti ekki strákana fyrr en seint og síðarmeir... og mín var sko ekki saknað
Okkur var boðið í mat hjá Elsu og Svan, svínalundir með tilheyrandi
Nú styttist bara óðum í að við flytjum
Ég man ekki eftir fleiru eins og er. Kannski spurning um að hafa rænu á að fara snemma að sofa!
Bestu kveðjur í bili
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
knús*
Jóna
biðjum öll að heylsa
tóta frænka
Ég hef gert þessi mistök líka að fara út í nýjum skóm á djamm....ekki sniðugt...en maður lærir seint. ha ha ha
En gangi þér vel í skólanum
Knús í kotið
já það þetta með nýja skó, svona gerir maður ekki aftur ( segir maður núna og endurtekur þetta svo næst)
knus í kotið
http://picasaweb.google.dk/ifssdbg/OrrablT
Já og skórnir þínir.... þeir voru BARA flottastir ;) svo öll þessi þjáning var vel þess virði!