Kannski kominn tími á blogg?
Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér undanfarið að ég hef ekki komist í að blogga! Ég skilaði ritgerðinni á síðasta föstudag... fjúff... þvílíkur léttir. Ég fæ líklega einkun í lok vikunnar. Annars byrjaði ég í skólanum í síðustu viku og mér finnst ég ekki hafa tíma í neitt og helgarnar... þær hverfa bara hviss, bæng! En ég verð MIKIÐ í skólanum næstu vikur og fer í skrifleg próf 3 og 10 mars og ætla að byrja að læra núna!
Auðvitað var það rétt hjá mér með skólann... hann er sko ekki tilbúinn! Og verður það líklega ekki fyrr en eftir ca. 6 mánuði. Hárgreiðslufólkið notar neðstu hæðina í skólanum og við snyrtufræðingar hírumst í ca. 10 fm herbergi í húsi við hliðina á skólanum og þar inni voru 5 nuddbekkir til að vinna á en það er búið að fjarlægja einn því við gátum varla athafnað okkur þarna inni. Og svo verðum við að hlaupa upp og niður stiga til að sækja vatn o.fl. og á milli bygginga!!! En þetta er svo sem allt í lagi... á meðan við erum ekki að vinna margar í einu, því þá verður ansi loftlaust inní herberginu. Og viti menn, ég útskrifast eftir 7 vikur.. ligga, ligga lá!
En yfir í annað:
Það er búið að vera frekar kalt hér síðustu vikur. Og það meira að segja snjóaði síðasta laugardag minnir mig. Ég fékk smá jólafiðring!! haha...
En hann var horfinn næsta dag og nú rignir bara.
Aðfaranótt síðasta laugardags gistu Harpa og Hrannar hjá okkur. Það gekk bara alveg rosalega vel. Það fór bara ekkert fyrir þeim. En það er frekar fyndið hvað maður er fljótur að gleyma! Eða okey.. það eru 4 ár síðan ég var með kríli síðast, það er frekar langur tími og góð afsökun fyrir að gleyma. En allavega... ég þurfti alveg að hafa fyrir því að muna að skipta um bleiur og ég þurfti líka að muna að tékka á barninu öðru hvoru (það heyrðist varla í honum) og fylgjast með hvort hann setti eitthvað í munninn og svoleiðis. Ég er orðin svo góðu vön! Strákarnir koma bara til mín ef þeim vantar eitthvað. En þetta var alveg skemmtileg upprifjun en í leiðinni... góð getnaðarvörn
.
Á sunnudaginn hélt ísl.félagið uppá öskudaginn. Allir áttu að mæta í búning. Ásbjörn var Star wars, Jóhann Ingi var Turtles, Binni var í fótboltafötum og ég var kúreki. Kötturinn var sleginn úr tunnunni og svo var boðið uppá kaffi, kakó og vöfflur. Mjög skemmtilegur dagur
og svo átum við líka á okkur gat af rjómabollum um helgina.
Ég veit ekki hverju meira ég á að ljúga að ykkur... mmmm.... nei man ekki eftir neinu fleiru.
Bestu kveðjur að þessu sinni............
Gott að sjá blogg og vita að það eru ekki allir eins lélegir bloggarar og ég!!
Knús í kotið :-*
Er ekki kominn tími til að láta sig dreyma um annað húsmæðraorlof til útlanda? Ég er allavega búin að búa til nýja bloggsíðu fyrir þessar pælingar: http://kvennaferd.blogspot.com/
Heyrumst!
Kv. Helga.
loksins að útskrifast... jess... það hlýtur að vera góóóð tilfinning...:) gangi þér vel með lokasprettin Ágústa:)
Svo er mig bara farið að langa fá ykkur heim!!!!! ha..;)
knús í kotið:)
Mátt koma og prófa að vera með mín í smástund, þau eru bæði bleyjubörn :)
Hlökkum til að sjá ykkur í sumar.
kv. fjölskyldan á deildartúninu
knússí mússí mojn