Kominn tími á nýja færslu..

22. febrúar 2008 klukkan 17:23
Nú er allt farið að róast hjá okkur. Búin að koma okkur ágætlega fyrir og ekkert margir kassar eftir til að tæma.
Flutningarnir gengu mjög vel, við fengum góða hjálp hjá góðum vinum, KÆRAR ÞAKKIR ÖLL SÖMUL Brosandi.

Við höfðum síðan helgina og mánudaginn til að ganga frá hinni íbúðinni. Ó my god, það var nú meira brjálæðið... en það hafðist... fjúfff...
Hér kemur sagan af svaðilförinni:
Binni fór að kaupa málningu á föstudaginn... en það lokaði kl. 15,00 og við fengum enga málningu. Þannig að það var hamast við að þrífa skápa og skúffur og gólflista og allt það.
Á mánudeginum hömuðust Binni og Elsa við að mála en svo kláraðist málningin sem átti að fara á herbergin... Binni keypti nýja og hélt áfram að mála og komst þá að því að hann fékk vitlaust gljástig OG það var búið að loka búllunni þannig að 60% af herberginu var með gljástig 5 en 40% með gljástig 10 og það var ekki hægt að laga því Binni fór í upptökupróf á þriðjudagsmorgninum og enginn tími til að mála aftur. Á meðan hömuðumst við Elsa við að skrúbba upp málningarslettur af gólfinu og gólflistum og við skúruðum okkur út korter í sýningu á íbúðinni Óákveðinn. Það var allt samþykkt í íbúðinni nema herbergið með vitlausa litnum og þurfum við að borga málningu og vinnu á því herbergi Óákveðinn. Binni hafði ekki tíma til að kíkja í bók alla helgina en fékk síðan að vita í dag að hann náði prófinu Hlæjandi.

Ég ákvað í dag að vera rosa góð kærasta!!! Keypti gjöf handa karlinum.
Hann er endalaust búinn að vera að tala um topplyklasett... ég spurði hann fyrir jólin hvað okkur vantaði til að geta gefið hugmyndir um jólagjöf handa okkur... þá var svarið t.d. alltaf TOPPLYKLASETT...

Ok ég keypti þetta fína topplyklasett í gjöf fyrir hann á leiðinni heim úr skólanum. Kom heim, lagði bílnum, steig út, leit inní skottið á bílnum... það fyrsta sem ég sá var kassi af NÁKVÆMLEGA eins topplyklasetti og ég var að kaupa Öskrandi..... hvað með allt þetta topplyklatal???
Ég gaf honum þetta nú samt og hann verður bara að skipta því og velja eitthvað sem hann á ekki!!! En ég fékk nú samt punkt fyrir viðleytni!!!

Binni fór til bæklunarlæknis í gær. Læknirinn sagði löppina ekki líta vel út og sagði að það væri best fyrir hann að fara í aðgerð og láta stytta sinar eða eitthvað og það á að draga úr verkjum eða losa hann við verkina en á móti kemur að hann getur þá minna hreyft hana. En það er örugglega allt betra en svona endalausir verkir.

Það er brjálað að gera í skólanum hjá mér, ég er þar alla daga þessar vikurnar og fer í þrjú próf á næstu þremur vikum og 31 mars verður verklegt lokapróf og útskrift.

Jæja læt þetta gott heita í bili...

Risa knús....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bergþóra skrifar ...
 
hæ hæ
ég er nú ekki sú duglegasta að kvitta fyrir komuna hingað inná síðuna hjá þér en ég reyni að bæta fyrir það núna :)
en mér finnst þú nú eiga heiður skilið fyrir að kaupa þessa fínu gjöf fyrir hann Binna þinn :)
en hafið það sem allra best þarna í danaveldinu ....en ég þarf að fara að heyra í þér kannski við tækifæri:)
kveðja Bergþóra
24. febrúar 2008 klukkan 22:44
Sibba skrifar ...
 
hæhæ ohh hvað mig hlakkar til að koma í nyju íbúðina ....... ég hef ennþá góðan tíma hehe
já gjöfin er sko mjög flott og hvað er ´nu betra en að fá topplyklaset....Ja maður spyr sig :-)

En vonan di minnka verkirnir hjá Binna við þessa aðgerð.
heyri í þér skvís

Adios Sibba
24. febrúar 2008 klukkan 23:32
Dísa Skvísa skrifar ...
Hæ hæ skvís
Gaman að heyra að allt small saman á endanum að skila íbúðinni.

Voða ertu góð kærasta....alltaf gaman að gefa þeim eitthvað sem þeir vilja (en hafa þegar keypt, hahahaha)

Verð nú að fara heyra í þér bráðlega skvísa..er að vinna í því að skipuleggja ferðina mína út í Júní...verð að fá að vita hvenær hentar þér að ég kíkji í heimsókn.

Kveðja úr kuldanum og snjónum
25. febrúar 2008 klukkan 09:26
Hrund skrifar ...
 
til hamingju með flutningana!
26. febrúar 2008 klukkan 10:59
Sólveig Ásta skrifar ...
Hæ sæta mín takk fyrir kveðjuna..

Gangi þér vel á lokasprettinum þú massar þetta

knús
26. febrúar 2008 klukkan 17:30
ELísabet frænka skrifar ...
 
komið þið sæl og blessuð...!
Binni innilega til hamingju með prófið :) og þið öll til hamingju með nýju íbúðina..! já ég trúi því sko að þetta er allt annað líf..:) en vandræðin með þessa blessuðu málningu, ji ég hefði staðið á garginu.. ;) hehe..!
en hér gengur allt sinn vanagang, vona svo heitt og innilega að við komum öll í heimsókn til ykkar fljótlega eða í sumar ;)
bið að heilsa öllum, hafið það gott í nýja húsinu og komið ykkur nú vel fyrir.. ;)
26. febrúar 2008 klukkan 18:19
Helena skrifar ...
 
Til hamingju með námsárangurinn Brynjar..
Gott að heyra að þið séuð að mestu búin að koma ykkur fyrir. Ég lenti einu sinni í því að mála hálft eldhúsið með röngum lit... æi.. var mér sagt.. tók ég ranga dós?
27. febrúar 2008 klukkan 18:14
Sveina Peta skrifar ...
Sveina PetaHÆHÆ og takk fyrir hjálpina á föstudaginn
hefðum ekki getað gert þetta án þín
þú varst og ert frábær
02. mars 2008 klukkan 15:35

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan