Bara....
02. mars 2008 klukkan 18:48
Að láta vita að við erum á lífi!!!
Ég hef ekki haft mikinn tíma til að tölvast síðustu viku og þannig verður það víst áfram næstu viku. Ég fer í eitt lokapróf á morgun og svo annað næsta mánudag, 10 mars.
Ég fór líka í próf síðasta miðvikudag í líffræði og einhverju svoleiðis (veit ekki alveg hvað þetta heitir á ísl.) en ég fékk 9 í því prófi og var bara nokkuð sátt. Fyrir ritgerðina sem ég gerði um Bláa lónið fékk ég 10.
Og nú er ég byrjuð að vera stressuð fyrir morgundaginn
.
Annars gengur lífið sinn vana gang hér hjá fjölskyldunni.
Við erum mjög ánægð hér í nýju íbúðinni... mig vantar bara að komast í að þrífa
, en ég hef látið lærdóminn ganga fram fyrir það verkefni.
Ég er nú enn að venjast þessari íbúð, því hún er alveg spegilmynd við íbúðina sem við vorum í. Ég er enn að grípa í tóma veggi til að slökkva og kveikja ljós, hinum megin voru slökkvararnir á öfugum veggjum miðað við hér! Og svo er ég allavega tvisvar búin að ganga á hurðina á litla baðherberginu... veit ekki af hverju!!! Ég er bara eitthvað skrítin
.
Eitt kvöldið fór ég með hjól inní kjallara og fór upp í stigagang eins og venjulega (í gamladaga!) byrjaði að hamast á póstkassanum og bölva af hverju í ósköpunum hann opnaðist ekki, svo las ég á kassann og sá að ég var í vitlausum stigagang! Sem betur fer rést ég ekki inná greyið fólkið sem býr á "sama stað og ég" nema í hinum stigaganginum!
Svo finn/heyri ég alveg hvernig er að búa á neðri hæð. Ekki að það trufli mig neitt en það heyrist vel þegar fólk trampar og krakkarnir á efri hæðinni slást!
Og greyið fólkið sem bjó fyrir neðan okkur: Jónki Tröll trampar svo hrikalega þegar hann labbar og þegar hann hleypur... hljómar það eins og fílahjörð.
Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna.... ætla að lesa "aðeins" yfir glósurnar.
Þar til næst..........

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Ekkert smá flott hjá þér :)
Það er stutt í að prófin klárist og þá geturðu farið að ÞRÍFA!! Geggjað :)
Til hamingju með nýju íbúðina, láttu strákanna bara þrífa!! hehe :) annars ætti ég bara að koma til þín eftir áramót sem au per.. er þá útskrifuð úr skólanum.. svona þar til ég er búin að ákveða hvað ég ætla að læra svo :) hehe nei bara svona hugmynd ;)
en ég bið allavega innilega að heilsa öllum... ;)
p.s er að láta mér leiðast á kvöldvakt á Eyr... :/
En já bless bless :)
Var að vinna hjá Galito í vikunni sem leið, skemmtilegir strákar þar, bara verst að þeir voru nýbúnir að ráða kokk en maður situr bara um plássið og vinnur auka hjá þeim þangað til, það væri fínt að sleppa við að keyra kl.06.00 alla virka daga í bæinn og eitthvað minnkaði áhugin á vinnustaðnum eftir að þeir voru svona ánægðir með barnseignafríið :) :) .
Farðu að láta heyra í þér það biðja allir að heilsa af Háholti 7
Brósi
Hlakka ógó til að koma í heimsókn.
Kveðja Dísa
Gangi þér vel í prófinu á mánudaginn ;)
Áður en þú veist af þá heyrir þú ekki trampið frá efrihæðinni. Hef reynslu :-)
Knús á línuna
Kv Dagný
knús og kram frá Esbjerg**
Jóna prjóna
knus