Karlinn á Klakanum.
13. mars 2008 klukkan 22:00
Binni fór sem sagt til Íslands í dag... og ég er pínu abbó
, ég væri sko alveg til í að vera með honum þarna -þó það sé snjór!
Þvílíkur léttir að bóklegu prófin séu búin. Ég er samt ennþá heilaþvegin eftir lesturinn, er ennþá að hlýða mér yfir í huganum en ég hef svo sem gott af því.. ég væri samt alveg til í eitthvað skemmtilegri dagdrauma
.
Síðustu tvær vikur hef ég ekki átt mér spennandi líf. Vinna, læra, éta og sofa. Ég hlakkaði svo til að setjast niður á þriðjudaginn og horfa á sjónvarpið en þá var auðvitað ekkert spennandi í því.
Sama kjaftæðið með þennan skóla.. hann er aftur að verða að þrælabúðum og búið að reka kennarann minn. Endalaus vitleysa í gangi þarna og ég er alveg að verða BÚIN
.
Nýji kennarinn okkar útskrifaðist í september í fyrra og var því með mér í skólanum fyrsta hálfa árið. Mér finnst þetta frekar spes en er fegin að ég er búin með allt bóklega núna.
11 apríl fer ég í partý til "fyrrverandi" kennara míns, kveðjupartý. Henni var bannað að kveðja okkar þegar hún var rekin og má ekki koma nálægt skólanum! En þetta verður rosa stuð. Við verðum 8 eða 9 stelpur og ætlum að borða saman og drekka, og drekka og dr.. hehemm ein alveg að missa sig! Hún býr í Nordborg sem er bær innst á Als eyjunni. Það verður kannski gaman að kíkja í bæinn þar (efast samt um hann sé spennandi!). Þær ætla flestar að gista hjá henni en við Jóna búum svo stutt frá þannig að við brunum bara heim þegar fjörið er búið.
Ég fór líka í partý síðasta laugardag, útskriftarpartý hjá Stínu. Það var rosa fjör og auðvitað var kíkt í bæinn líka. Það var mjög gáfulegt... kom heim kl. 5 um nóttina og var dottandi yfir bókunum allan sunnudaginn
.
Annars er nú ekkert krafsandi í fréttum!
Strákarnir eru bara hressir. Við Jóhann Ingi fórum í foreldrakaffi í skólann til Ásbjörns í dag. Þeir fengu græna köku með bleiku kremi sem bar nafnið Eitur, frekar ógirnileg að sjá, en krakkarnir voru vitlausir í hana.
Á morgun ætla ég að vera í fríi og er að spá í að ganga á staði og leita mér að vinnu. Mér kvíður fyrir bara við tilhugsunina. Mér finnst svo óþægilegt að sækja um vinnu. Standa fyrir framan bláókunnuga manneskju og ropa einhverju útúr mér og allt hitt starfsfólkið lítur við og hlustar
.
En maður verður víst að gera þetta, víst maður þarf að lifa á peningum!
Svo er nú eitt enn...
Við eigum von á heimsóknum. Steinar og Rakel koma 14 maí og Dísa kemur í byrjun júní. Þannig að nú get ég talið fleira niður en bara skólalokin
. Hlakka SVOoo.. til að fá þau
.
Jæja best að hætta þessu "blaðri".
Risa knús...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Risa knús