Blessuð blíðan...

16. mars 2008 klukkan 20:20
O... það var svo yndislegt veður þegar ég drattaðist á fætur í morgun Glottandi. Og er ég búin að sitja úti í dag við nýja borðið mitt með kaffibolla og "ferska loftið". Og náði meira að segja að hengja út þrjár vélar!

Annars er helgin búin að vera fín. Eða byrjaði reyndar ekkert agalega vel!
Á föstudaginn skrópaði ég í skólann Skömmustulegur. Og ákvað að nota daginn og sækja um vinnur. Ég dressaði mig upp og lagði af stað í bílnum... byrjaði að fara í bankann og bíllinn var hálf skrítinn en ég hélt bara áfram. Eftir bankann varð bíllinn enn skrítnari og drap á sér nokkrum sinnum, m.a. útá miðri götu en ég náði að dröslast á fáfarnari götu og þar gaf hann alveg upp öndina Öskrandi. Einar ætlaði að koma og redda mér en þá fór bíllinn í gang og ég náði að dröslast heim og bað til þess að enginn yrði á vegi mínum svo ég þyrfti ekki að hægja á mér... og það gekk eftir og ég komst í hlað og ekkert varð úr atvinnuleit þennan daginn Fýldur. Ég gat ekki hugsað mér að fara hjólandi og koma svo laf móð inná snyrtistofurnar með horið lekandi Ullandi.
Síðan fór ég bara í vinnugallann og fór að hjálpa Einar og Dagmar að flytja.
Laugardagurinn var bara rólegur. Ásbjörn fór snemma til skólabróður síns og gisti hjá honum í Broager. Síðan komu þeir hingað í dag og léku sér saman.
Ég var voða dugleg í dag og bakaði skúffuköku og kanilsnúða og fékk heimsóknir.
Síðan kenndi Einar mér að laga bílinn... hann lagaði hann fyrir mig á föstudagskvöldið en ef það kemur eitthvað uppá á leiðinni í skólann þá get ég allavega reddað mér. Þetta er nú ekkert flókið, bara losa eina skrúfu til að taka rafgeymirinn úr sambandi!!

Svo er bara stutt vika framundan Brosandi og stutt í páskaeggin Glottandi, ég vona allavega að ég fái eitt.
Svo er páskabingó hjá Ísl.félaginu á föstudaginn og íslensk egg í vinning.. en ég vinn aldrei Óákveðinn.

Kveðjuhornið:

Elsku mamma, til hamingju með afmælið í gær  Koss.

Og elsku Ásta María, til hamingju með ferminguna Koss.

Ég man þegar ég fermdist, það var þvílíkt sport að vera komin í "fullorðinna manna tölu", þá var ég sko ekkert barn lengur og enginn réði yfir mér nema ég sjálf Svalur (eða það hélt ég allavega! hehe..).

Jæja.. læt þetta gott heita í bili.

Adios...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
skjóna skrifar ...
 
ohh.... leiðinlegt svona bílavesen:/ Hlakka til að sjá fínu íbúðina með garðinum;)
knús og kram,
Jóna prjóna
17. mars 2008 klukkan 07:50
Hrund skrifar ...
 
já það er gott að eiga svona bilaða bíla, því þá höfum við konurnar tækifæri á að læra að gera við þá..... ég er til dæmis búin að læra að losa handbremsuna undir bílnum ef hún festist.... já og skipta um bensínsíu vegna svipaðra einkenna og þú lýstir..........
17. mars 2008 klukkan 09:33
Þórunn frænka skrifar ...
 
Hæ frænka og strákarnir gaman að heyra frá ykkur, við vorum í frábæru boði hjá mömmu og pabba þínu á afmælisdaginn með góðu fólki. ég hitti Binna aðeins, leit vel út karlinn
kveðja af Faxabrautinni
17. mars 2008 klukkan 15:08
Dísa skvísa skrifar ...
Blessuð ...jæja búin að panta farið.....og kem til þín þann 9 júní :-)
20. mars 2008 klukkan 13:17

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan