Spurning um að lotta!!!

21. mars 2008 klukkan 20:03

Mig dreymdi nefnilega svo skemmtilegan draum í fyrrinótt. Hann hljómar þannig að ég skeit á mig!!! Í orðsins fyllstu merkingu og það fyndna er að ég skammaðist mín bara ekkert fyrir það Glottandi og hafði ekki einu sinni tíma til að þrífa hann!!  En sem betur fer vaknaði ég nú hrein og fín og þurr... hjúkk... það hefði sko verið pínlegt Skömmustulegur, fullorðin manneskja að drulla uppá bak.
En ég hef heyrt að svona draumar boði peninga Gráðugur og það kom reyndar skemmtilega á óvart daginn eftir að ég fékk til baka frá skattinum og það besta við það er að þá sleppum við við að taka út peninga frá Íslandi, það er svo helvíti slæmt gengið núna Fýldur. En það væri nú gaman að prófa að gera lottó!!! (Ein að missa sig í græðginni). Ég kann bara ekkert að spila lottó, veit ekki einu sinni á hvaða sjónvarpsstöðvum það er og kl. hvað!
En hvað um það.

Binni kom heim frá Íslandi á miðvikudagsmorgun. Hann átti að vera kominn heim rúmlega eitt um nóttina en það var sprengjuhótun á lestarstöðinni í Köben og endaði hann á að taka tvær rútur og tvær lestar til Sönderborg og var kominn heim milli kl. 5 og 6 með rifna ferðatösku og þrjú brotin páskaegg Óákveðinn. Þannig að þetta varð hálfgerð svaðilför hjá honum.

Við erum öll í páskafríi núna og höfum bara tekið því rólega. Fórum í göngutúr í gær og Einar, Dagmar og Örn komu í mat til okkar. Svo er ég búin að sauma gardínur í herbergin hjá strákunum og braut BARA 5 nálar í saumavélinni Öskrandi. Á fyrstu nálinni hélt ég það þetta væri klaufaskapur í mér en auðvitað er ég enginn klaufi!! Ég var næstum búin að fá mér rafsuðugleraugu þegar vélin tók af stað með áfram-saum og bakki því þá brotnuðu nálarnar en svo inná milli virkaði vélin bara fínt... bölvað drasl. En svo átti ég bara tvo vængi eftir þegar síðasta nálin brotnaði svo Edda nágranni minn lánaði mér sína vél og nú eru gardínurnar komnar upp og vélin mín komin í kassa og vonandi á leið í viðgerð því ég á eftir að sauma gardínur í mitt herbergi.

Í dag fór ég með strákana á páskabingó hjá Ísl.félaginu... skítadraumurinn virkaði nú ekki þar en Ásbjörn vann samt ein verðlaun, fékk kassa af súkkulaðikanínum Brosandi og hann var svo duglegur að merkja tölurnar á sitt bingóspjald sjálfur. Jóhann Ingi var ekki eins þolinmóður og endaði á að fara bara út að leika sér.

Á morgun er Monster Truck sýning og erum við að spá í að kíkja. Þetta eru alveg huges bílar og þeir keyra yfir bíldruslur og alles, örugglega gaman að sjá þetta.

Og svo til gaman má geta þess að ég á bara eftir að fara 3 daga í skólann fyrir utan prófdaginn Hlæjandi. Ekki fleiri gistingar í Fredricia og ekki meiri keyrsla heldur meiri tími með fjölskyldunni Hlæjandi.

Ég ætla að gera aðra tilraun með að sækja um vinnur næsta fimmtudag... vona að það gangi upp.

En annars:

                     Gleðilega páska.

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bergþóra skrifar ...
 
hæhæ
vildi bara óska ykkur dönsku fjölskylduni gleðilegra páska og vonandi rætist peningadraumurinn:)
kveðja Bergþóra ,Hannes og afleggjarar
21. mars 2008 klukkan 22:25
skjóna skrifar ...
 
Gleðilega páska elskurnar, hlakka til að koma og gista í lok apríl;)

*knús*
Jóna
22. mars 2008 klukkan 08:50
Bogga skrifar ...
 
Úff þvílíkur draumur! Vonandi veit hann á gott:)
Gleðilega páska öll sömul,
knús og krams,
Bogga
22. mars 2008 klukkan 12:26
Valgerður skrifar ...
 
hææ, bara ár síðan ég var hjá ykkur guð hvað tímin er fljótur að líða, verð að fara að koma aftur sakna ykkar svo mikið. Var í aðgerðinni á föstudaginn og má hvorki hlaupa né hoppa í mánuð svo:( en missi af leikfimi haha held að það sé að eina góða við þetta. En skemmtilegur draumur.
Skila kveðju til strákana
GLEÐILEGA PÁSKA og njótið eggjana ;) það eru ekkert smá mörg egg hér, sara á nú samt mest allt (einsog alltaf haha).
22. mars 2008 klukkan 12:43
Hrund skrifar ...
 
draumar geta verið mjög merkilegir og saumavélar líka...
En geggjað að skólinn sé að verða búin að þú getir verið í sønderborg alla 7 daga vikunnar ;) frábært alveg hreint!
Góða páskarest
;)
24. mars 2008 klukkan 10:14
Helena skrifar ...
 
Gleðilega Páska!
24. mars 2008 klukkan 17:58

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan