Blómið.
Strákarnir fengu blóm með sér heim fyrir páska, svona kryddblóm sem er hægt að borða. Ásbjörn kom reyndar með fræ heim sem áttu eftir að blómstra og það var svo yndislegt að fylgjast með hvað hann hugsaði vel um blómið. Hann var reyndar við það að drekkja því svo það fengi örugglega nógan vökva til að stækka og svo dró hann gardínuna upp á hverjum morgni svo blómið fengi sól og setti nokkur DVD hulstur undir það svo það væri nær birtunni
. Bróðir hans sá varla sitt blóm þannig að mamman reyndi að passa aðeins uppá hans en svo einn daginn kom hann til mín og sagði: Hver deyjaði blómið mitt??? En við náðum reyndar að lífga það aftur við.
Ásbjörn var með vin sinn og vinkonu í heimsókn í gær. Þau sátu inní eldhúsi og voru að leira og ég náttúrulega að hlera hvað þau voru að tala um.
Ásbjörn sagði þeim m.a. að það hafi komið svoldið klikkað fyrir skólann hennar mömmu! Það kviknaði í honum. Svo var það rætt fram og til baka og svo sagði hann: eins gott að mamma mín var ekki í skólanum þegar kviknað í! Því þá hefði hún dáið!!!
Þá sögðu þau öll: já það væri hrikalegt ef mamma manns myndi deyja! Og ræddu það eitthvað áfram.
Það komu allskonar gullkorn fram hjá þeim og það var virkilega gaman að vera eins og fluga á vegg í kringum þau
.
Síðasti skóladagurinn minn var í dag
. Bara prófið eftir á mánudaginn. Binni var svo almennilegur að bjóða fram hjálp sína um daginn! Hann spurði hvort ég þyrfti ekki að æfa mig fyrir verklega prófið? Neee... eða jú... mig vantar eiginlega að æfa að setja eye liner og leggja rautt lakk
. Minns varð grænn í framan og bað mig bara að gleyma þessu.. haha..
Annað kvöld ætlum við að hittast nokkrar vinkonur og ég og Jóna fáum að mála stelpurnar og naglalakka og svo ætlum við á kaffihús. Þannig að við getum æft okkur í make up og haft gaman af. Mér finnst nefnilega alveg hrikalega leiðinlegt að farða.
Og í gær var ég í fríi og fór á eina snyrtistofu og sótti um vinnu. Það eru einhverjar breytingar væntanlega á þessari stofu og þær ætla að bæta við fólki. Það eru fleiri búnar að sækja um en ég kem til greina og á að tala aftur við hana eftir 1-2 vikur. En vandamálið er að hún vil leigja út stól og ég veit ekki hvort ég sé tilbúin í það. Þá er ég eigilega bara á eigin fótum en mér finnst ég vanta reynslu til að geta það. Eina reynslan sem ég hef er úr skólanum. En eftir helgi ætla ég að sækja um á fleiri stöðum og skoða málið.
Það er búið að vera snjór hér undanfarið... hrikalegt, ég þoli ekki vetur en það er víst spáð hlýnandi... vona svo innilega að það gangi eftir.
Svo er ein afmæliskveðja:
Birta Marín litla frænka verður 2ja ára á morgun. Til hamingju með afmælið prinsessa
.
Annars bið ég bara vel að heilsa ykkur öllum
.
Over and out...
Gangi þér vel á prófinu á morgun.....iss þú tekur það með trompi eins og alltaf.....
Kv. Dísa skvísa