Útskrifuđ!

01. apríl 2008 klukkan 15:31
Jibbí... þá er þetta búið! En samt var tilfinningin frekar skrýtin er ég labbaði útúr skólanum í gær. Nú er bara óvissan framundan! Sækja um vinnur... spurning um að fá vinnu!! Allavega við þetta, ég gæti örugglega fengið hvaða vinnu sem er en mig langar að vinna sem snyrtifæðingur.

Dagurinn í gær var frekar hrikalegur!!!
Ég svaf illa nóttina fyrir prófdaginn, síðan breyttist klukkan um nóttina í sumartíma þannig að í rauninni fékk ég sofa klst. minna en venjulega og svo tóku prófin 6 klst. og stress allan tímann.
En þetta hafðist allt saman Hlæjandi.

Við útskriftina sem var heldur tómleg (bara 3 stelpur að útskrifast!) var skálað í kampavín og við fengum allar rós og Diploma.
Við fengum ekki einkun fyrir hverja og eina meðhöndlun sem við gerðum í gær, heldur var tekið meðaltal af öllu árinu sem mér fannst frekar fúlt því mér hefur gengið miklu betur seinni helminginn af árinu og sérstaklega í því bóklega (enda var danskan frekar takmörkuð þegar ég byrjaði í skólanum). En auðvitað er ég samt ánægð með að hafa náð öllu.

Binni, Jóhann Ingi og Gunni hennar Jónu mættu síðan á svæðið og við fórum saman út að borða í Kolding, á Mexíkanskan stað og fengum mjög góðan mat.
Ég var svo útkeyrð þegar ég kom heim að ég stein rotaðist þegar ég lagðist á koddann... það hefði getað hlaupið fílahjörð framhjá mér án þess að ég hefði rumskað Hissa.
Og svo svaf ég til hádegis í dag! Fékk alveg sjokk þegar ég vaknaði... það var sko ekki ætlunin að sofa hálfan frídaginn!!

Á morgun ætla ég síðan að ganga á staði og leita að vinnu... gaman, gaman.
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Helena Rós skrifar ...
til hamingju með útskriftina :) hlökkum til að sjá ykkur í sumar.
kv. fjökskyldan á Deildartúninu
01. apríl 2008 klukkan 15:37
Bogga skrifar ...
 
Innilega til hamingju með útskriftina!!! Og gangi þér vel að finna gott jobb við þitt hæfi :)
*Knús*
Bogga
01. apríl 2008 klukkan 16:45
Lilja Guđrún skrifar ...
 
Innilega til hamingju með útskriftina.
Ég er viss um að þú finnir frábæra vinnu. Sendi þér baráttukveðjur :-)

kv
Lilja
01. apríl 2008 klukkan 22:21
Lára María skrifar ...
til hamingju dúllan mín
knus
02. apríl 2008 klukkan 10:21
Ragnheiđur frćnka skrifar ...
 
Kæra frænka ,innilega til lukku með þennen merka áfanga í lífinu. Vegni þér ávallt vel kv Ragnheiður
02. apríl 2008 klukkan 13:53
Valgerđur skrifar ...
 
Til hamingju, vona að þú fáir vinnu eða vona þú færð hana auðvita 8) bið að heilsa, sjáumst ;) ;)
kv. Valgerður
02. apríl 2008 klukkan 18:44
ELísabet frćnka skrifar ...
 
Ji innilega til hamimgju með þennan stóra áfanga...!! Gangi þér alveg rosalega vel og jú auðvitað finnur þú þér vinnu, nú ef ekki þarna úti þá væri nú ekkert verra að fá þig bara heim ;)
En bið innilega að heilsa ykkur öllum og hafið það rosalega gott.
Kveðja heiman að úr kúldanum..
Elísabet frænka
02. apríl 2008 klukkan 19:53
Ţórunn frćnka skrifar ...
 
Flott hjá þér frænka og til hamingju sjáumst fljótlega.
kveðja af Faxabrautinni
02. apríl 2008 klukkan 19:59
Sibba skrifar ...
 
til lukku með útskriftina sæta ohh hvað mig hlakkar til að fara í allskonar andlitsdekur þegar þú flytur heim þá fer ég loksins að líta sómasamlega út

sjáumst og heyrumst
kv Sibba
02. apríl 2008 klukkan 20:41
Bergţóra skrifar ...
 
til lukku með útskriftina .....þetta er glæsiilegt hjá þér og vonandi færðu bara vinnu við hæfi og sem næst heimilinu:)
hlakka til að sjá þig/ykkur í sumar
kv Bergþóra og co
02. apríl 2008 klukkan 22:59
skjóna skrifar ...
 
Innilega til hamingju með þetta! Hlakka til að sjá ykkur;)
knús og kram*
Jóna
03. apríl 2008 klukkan 11:39
Dísa skvísa skrifar ...
Innilega til hamingju Skvísa.....
03. apríl 2008 klukkan 13:10
ragga skrifar ...
innilega til hamingju með þetta elsku Ágústa:):) ég er ekkert smá stolt af þér.. þú færð alveg vinnu... ekki spurning..:) vildi óska að þú kæmir heim.. flyttir til rvk;) þú myndir opna snyrtistofu.. og ég kæmi og ynni hjá þér með svæðanuddið.. og cellómeðferðirnar... og jú airbrushið;)
Góð hugmynd?? uu.. JÁ..
:p
03. apríl 2008 klukkan 17:38
Ágústa skrifar ...
 
Takk fyrir þetta allar saman :o)
Haha.. ég væri sko alveg til í þetta Ragga :o) Við skoðum þetta bara þegar ég flyt heim (eftir nokkur ár!) Er þaggi??
03. apríl 2008 klukkan 20:34
Dagný skrifar ...
 
Til hamingju Ágústa mín. Jibbý ,,,,,,,,,, áfanganum næað. Ég get gefið þér góð meðmæli. Meiri háttar að setjast í stólin hjá þér :-) Gangi þér vel að fá vinnu :-)
Knús Dagný
03. apríl 2008 klukkan 22:59
Ella skrifar ...
 
SKil ekkert í því hvað varð að kveðjunni sem ég skrifaði á síðuna þína:)
En innilega til hamingju með útskriftina. Verður gaman að komast í dekur hjá þér :)

kv. Ella Þóra
06. apríl 2008 klukkan 19:24
Helena skrifar ...
 
Til hamingju Ágústa!!!
10. apríl 2008 klukkan 10:28

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan