Of gömul???

05. apríl 2008 klukkan 13:25
ÉG!!!! Nei ég bara trúi því ekki!!!

Svona hljómaði hugsunin hjá mér um daginn er ég las atvinnuauglýsingarí dagblaðinu.

Ég er búin að vera að sækja um vinnur á snyrtistofum... það lítur ekkert sérstaklega vel út, allavega ekki hér í Sönderborg. Ég á eftir að fara til Aabenraa en ætla nú samt að skoða betur í kringum mig hér í nágrenninu.
Auðvitað langar mig helst að vinna sem snyrtifæðingur en  ef það gengur ekki upp þá finn ég mér bara eitthvað annað - en ekki hvað?

Já ég sá sem sagt atvinnuauglýsingu í blaðinu frá löggunni. Hummm... það gæti alveg verið gaman að prófa það.
Aldurstakmark 21 árs... las áfram... umsækjendur meiga vera 27 ára en samt litið framhjá því ef þeir eru 28 ára!!!
Sem þýðir örugglega að ég sé of gömul!! Og fyrir utan það þá er ætlast til þess að umsækjendur séu í góðu formi, hehemm Skömmustulegur.. sumir búnir að sitja á rassgatinu í heilt ár og geta ekki gengið framhjá nammiskápnum án þess að gæjast "aðeins".
Kannski spurning um að hætta að velta sér uppúr þessu... eða kíkja á kynningarfundinn næsta miðvikudagskvöld og svo að hætta að velta sér uppúr þessu!!

Ég er búin að sækja um aumingjahjálp.. aftur.
Ég á að fara á fund næsta mánudag og þá á ég að vera búin að sækja um 3-4 vinnur. Og ég verð að sanna að ég hafi sótt um vinnu annað hvort með því að prenta út umsókn af netinu eða biðja um undirskrift á þeim stöðum sem ég fer sjálf á og sæki um.
Og ég á bara ekki til orð yfir hvað ég er fúl yfir því.
Ég bara veit ekkert HALLÆRISLEGRA en að ganga á stað, sækja um vinnu og fá kannski nei og þurfa svo að biðja um undirskrift/staðfestingu á að ég hafi verið þarna. Mér finnst þetta svo LOW.
Ég gerði þetta á einum stað en geri þetta aldrei aftur, ég skammaðist mín svo mikið að mig langaði að grafa mig ofaní gólfið. Hvað heldur þetta fólk á kommúninni að maður sé???

Og til að geta skilað mínu þá prentaði ég út umsóknir af netinu bara til að geta sýnt blessaðri konunni sem ég á að tala við.

Ég fer aftur í næstu viku á stofuna sem ég gæti hugsanlega leigt stól og svo á ég að skila inn upplýsingum um hvað ég hef unnið með á aðra stofu og hún sagðist ætla að hafa mig í huga ef henni vantaði einhverntímann!

Strákarnir hafa það bara fínt.
Ásbjörn er í tölvubanni og unir sér bara vel!!
Hann verður í banni þar til hann segjir eitthvað á dönsku í skólanum! Og minns er bara SVO duglegur að leika úti í staðinn. Hann meira að segja spurði mig um daginn hvort ég hafi nokkurntímann séð hann leika svona mikið úti! Ég sagðist nú halda ekki. En það er búið að vera fínasta veður undanfarið og tilvalið að vera úti að leika með bolta og drullumall.

Ég er líka að reyna að vera aktíverari úti! Fór í hjólatúr eitt kvöldið og kíkti við á Dagmar. Ég fór næstum á innsogið við að hjóla þangað en ekki alveg Hlæjandi og var voða ánægð með það! Svo verð ég að fara að drullast að kaupa kort í ræktina. Helst fyrir Þýskalandsferðina (verst hvað er stutt í hana) og ég ekki enn búin að megrast svo ég geti keypt minni sundbol! Skömmustulegur.

Jæja nóg komið af bulli...

See u soon...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Dísa skvísa skrifar ...
 
Of gömull...hvaða bull er þetta....maður er ekki degi eldri en manni líður....sko ég er enn 24 ára og fíla mig vel. Það versta er að þessi vinnuveitendur vilja vita hinn rétta aldur. Ég hélt að vinnuveitendur vildu frekar fá manneskju sem er grown up...í staðin fyrir einhverjar sem eru rétt að byrja að fóta sig. En ég myndi sko ráða þig á stundinni.....hvað bull er þetta vera í formi, hvað er átt með því??? Ji ég á bara ekki til auka tekið orð....kannki ætti bara auglýsa eftir einhverri sem er undir 150 kílóum í staðin... fólk er nú misþungt og allir vita að VÖÐVAR eru þyngri en fita hehe....

Elsku Ágústa mín....þú átt eflaust eftir að slá í gegn þegar þú fær vinnu. Ég panta að vera fasta kúnni númer 1.

Ég kem í dekur þann 9 júní ....knús og kossar Dísa
08. apríl 2008 klukkan 11:23
skjóna skrifar ...
 
það er nú aldeilis orðið hart ef að maður er orðinn of gamall rétt í kringum þrítugt?!?!?!?! Þetta er eins og þegar maður var átján og litlir krakkar sögðu, sjáðu konuna? Maður var bara í andlegu áfalli!!! Piss.... þessir baunar, þeir eru bara eitthvað ruglaðir held ég;) Hlakka til að sjá ykkur í maí sæta*
Knús og kram
Jóna
08. apríl 2008 klukkan 12:45
dagny sylvia skrifar ...
 
hehe ja thu komst laglega upp um thig um daginn thegar thu fannst ekki íþróttaskónna... frekar fyndið...
viltu verða lögga...? hver á þá að "ordne" lookið á mér?
góða skemmtun á íslandi
kv. dagný
11. apríl 2008 klukkan 06:45
Bogga skrifar ...
 
Druslan þín!!!
Ég held ég hafi aldrei komist nær því að fá hjartaáfall og í gærkveldi :)
Ætlaði aldrei að geta sofnað fyrir æsingi!!!
Ooooo, hvað ég hlakka til helgarinnar sæta mín!
11. apríl 2008 klukkan 12:21
Elísabet frænka skrifar ...
 
hæhæ kæra frænka..!!
þakka þér innilega fyrir helgina ;)
Það var ekkert smá gaman!
kær kveðja Elísabet
14. apríl 2008 klukkan 14:02
Hrund skrifar ...
 
Gangi þér vel í atvinnuleytinni!
(ég sem hélt þú værir 25...)
15. apríl 2008 klukkan 12:30
Ágústa G. ÁsbjörnsdóttirTakk Hrund mín :o) hehe...
15. apríl 2008 klukkan 19:15

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan