Fíkn!
15. apríl 2008 klukkan 19:14
Af hverju í ósköpunum verður maður fíkill?
Hvað ætli valdi því?
Ég er haldin fleiri en einni fíkn og ein af þeim er Bubbles
. Ég sem hélt ég væri löngu búin að afeitrast en.... annað kom á daginn. Ég gæti gleymt mér tímunum saman, kalin á puttum og tám (það er svo hrikalegur gólfkuldi og bara ískalt á illa einangruðum svölunum sem tölvan stendur á) ef ég þyrfti ekki að hugsa um aðra en sjálfa mig líka. Ég er meira að segja ekkert skárri en strákarnir: "bíddu aðeins, ég er alveg að koma" !!!! Svo er ég búin að ákveða að taka síðasta leikinn, nei, nei bara einn í viðbót eftir hann og ef sá leikur gengur illa... þá bara einn í viðbót. Frekar pirrandi
. Svo er ég haldin annarri fíkn: reykingum! Það eru allir að hætta að reykja í kringum mig EN mig langar bara ekkert að hætta. Ég skil bara ekkert í mér
.
Íslandsferðin var yndisleg... bara að hún hafi ekki liðið svona hratt
. Það vantaði alveg einn dag í viðbót (og helst fleiri).
Þetta var rosa span og ég náði ekki að hitta alla sem mig langaði að hitta. Ég skaust á milli húsa og sagði hæ einn daginn, fór svo á hestbak annan daginn og djammaði fram á næsta dag og svo skaust ég aftur á milli húsa og sagði bæ.
En ég vona að við komumst til Íslands í júní.
Ég sagði strákunum bara að ég væri að fara í ferðalag og þeir spurðu ekkert meira útí það en þeir eru búnir að fatta að ég var á Íslandi, ég kom með svo mikið nammi heim og svo fengu þeir gjafir frá ættingjum þannig að þeir kveiktu alveg á perunni
. Þeir hlakka til sumarsins og spurja oft hvenær það kemur, því þá eru þeir að fara til Íslands.
Þetta er frekar skrýtið. Ég er aldrei með heimþrá en þegar ég er búin að vera á Íslandi og fer aftur til Dk. þá fæ ég heimþrá!
En allavega þá var alveg yndislegt að hitta alla þó það hafi verið stutt
.
Í dag þurfti ég að mæta kl. 8,30 á kommúnuna og búa til atvinnuumsókn til kl. 14,30. Og þannig á það að vera næstu 2 vikur, þ.e.a.s. ef ég fæ ekki vinnu fyrir þann tíma. Og svo held ég að ég eigi að sækja um 3 vinnur á dag í gegnum netið! Brjálað stuð eða þannig.
Í síðustu viku fór ég á löggufundinn. Ég er enn með aldur eða til 31 árs í síðasta lagi en námið tekur 3 ár og helmingurinn af þeim tíma er skóli í Kaupmannahöfn, þannig að ég get bara gleymt þessu
.
Ekki á morgun, heldur hinn er Deutschland
. Ég á enn eftir að kaupa mér sundföt og er enn ekki farin að grennast þannig að ég verð bara að kaupa stóran sundbol
. Haha... en það kostaði nú ekkert að láta sig dreyma um minni stærð
.
Jæja, best að fara að hlýja puttana fyrir næsta Bubbles leik og sækja ullarsokka
.
Bless í bili...
Hvað ætli valdi því?
Ég er haldin fleiri en einni fíkn og ein af þeim er Bubbles
Íslandsferðin var yndisleg... bara að hún hafi ekki liðið svona hratt
Þetta var rosa span og ég náði ekki að hitta alla sem mig langaði að hitta. Ég skaust á milli húsa og sagði hæ einn daginn, fór svo á hestbak annan daginn og djammaði fram á næsta dag og svo skaust ég aftur á milli húsa og sagði bæ.
En ég vona að við komumst til Íslands í júní.
Ég sagði strákunum bara að ég væri að fara í ferðalag og þeir spurðu ekkert meira útí það en þeir eru búnir að fatta að ég var á Íslandi, ég kom með svo mikið nammi heim og svo fengu þeir gjafir frá ættingjum þannig að þeir kveiktu alveg á perunni
Þetta er frekar skrýtið. Ég er aldrei með heimþrá en þegar ég er búin að vera á Íslandi og fer aftur til Dk. þá fæ ég heimþrá!
En allavega þá var alveg yndislegt að hitta alla þó það hafi verið stutt
Í dag þurfti ég að mæta kl. 8,30 á kommúnuna og búa til atvinnuumsókn til kl. 14,30. Og þannig á það að vera næstu 2 vikur, þ.e.a.s. ef ég fæ ekki vinnu fyrir þann tíma. Og svo held ég að ég eigi að sækja um 3 vinnur á dag í gegnum netið! Brjálað stuð eða þannig.
Í síðustu viku fór ég á löggufundinn. Ég er enn með aldur eða til 31 árs í síðasta lagi en námið tekur 3 ár og helmingurinn af þeim tíma er skóli í Kaupmannahöfn, þannig að ég get bara gleymt þessu
Ekki á morgun, heldur hinn er Deutschland
Jæja, best að fara að hlýja puttana fyrir næsta Bubbles leik og sækja ullarsokka
Bless í bili...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Já djammið hjá okkur var skemmtilegt og það var ekkert skafið af því neitt, heldur bara rölt heim um 7. leitið... haha hvað það hefði verið fyndið ef við hefðum farið uppí stekkjó í morgunkaffi, bara svona fyir svefninn ;)
já vona svo innilega að þið komið í júni.. ;) þá gerum við e-h fleira skemmtilegt ;)
En bið að heilsa öllum og hafðu það sem allra best, og góða skemmtun í Deutschland ;)
Ég vildi óska að dvölin hefði verið lengri, en ekki ætla ég að kvarta! Ekkert smá skemmtilegt að hitta þig, hlæja, kjafta og djamma (þótt ég hafi nú ekki haldið þetta út jafn lengi og þið frænkurnar!).
Get ekki beðið eftir næsta hittingi :-*
knús og kossar frá mér og hlakka til að sjá þig aftur bráðum
Svo hittum við þig vonandi sem fyrst. Við erum að skoða með sumarið hvernig við ætlum að nýta okkur miðana.
Ég get farið úr vinnunni fyrstu vikuna í júní, svo er ég að byrja með leikjarnámskeið 9.júní og verð að vera til að starta því út júní og get þá farið í sumarfrí. En þú þá kannski kominn hjem??
Ætla að leggja þetta í hendurnar á honum bróðir þínum hvað hann vill gera :O)
Kv. Dísa
Get ekki beðið eftir að koma í heimsókn og drekka með þér mjög svo grennandi og spengilegt hvítvín;)
knús og kram;)
jóna