Home sweet home!
Fríið var alveg yndislegt. Þetta var svona eins og lítið þorp og þar var allt til alls, verslun, bakarí, slátrari, leiksvæði o.fl. og auðvitað sund. Íbúðin var líka mjög fín
. Við eyddum ca. 3 klst. í sundi á dag!! Þetta var mjög flottur baðgarður og nokkrar rennibrautir þar. Ég byrjaði á að skella mér í eina sem ég hélt að væri ekkert svo slæm... en ó my god! Það var ekki fræðilegur möguleiki að hægja á sér á leiðinni og undir það síðasta var ég farin að halda inní mér andanum, en það voru bara nokkrar sekúndur (eða sekúndubrot!), ég ætlaði ekki að þora í næstu... ég er orðin svo mikill kjúklingur með aldrinum
, en lét mig hafa það og þurfti eiginlega að ýta mér áfram þar og strákarnir fóru líka í þá rennibraut marg oft. Jóhann Ingi fór einu sinni einn í þá rennibraut en fór svo hægt að það tóku tveir frammúr honum á leiðinni!!! Svo var margt annað skemmtilegt þarna. Það var bara ein íbúð á milli okkar og Möggu Lukku og co. og voða næs hjá strákunum að geta hlaupið á milli íbúða og leikið og svo var líka voða gott á kvöldin, þá vorum við öll saman í annarri íbúðinni og krakkarnir fóru bara að sofa og svo bárum við þau bara á milli.
Við vorum komin heim um kl.15 í dag, þetta er ekki nema 2 klst. keyrsla héðan. En það er alltaf gott að koma heim í raunveruleikann
.
Og eitt enn! Við smökkuðum ógeðslegasta hamborgara EVER þarna! Þetta var eins og Mc Donalds brauð með kjöti (farsi), steiktum lauk, súrum gúrkum með lekandi safa, káli, tómatsósu og remolaði
, þvílíkur vibbi!
Það er búin að vera þvílíkt gott veður hér í dag og var víst þannig alla helgina. Við sátum hér úti alveg að stikna. Strákarnir komust í Tarzan fílinginn sem fylgir sumrunum, þ.e.a.s. þeir voru bara á naríunum úti. Og það er víst spáð áframhaldandi blíðu
.
Ég var agalega bjartsýn fyrir kvöldmat! Var að hugsa um að fara út að skokka...hahahaha... ég veit... fyndið!!!!!
Eftir mat var ég að springa svo ég endaði í góðum hjólatúr, með viðkomu hjá Dagmar. Ég hjólaði örugglega í klst. en varð að drífa mig heim því það var farið að dimma og ég gleymi næstum alltaf að taka með ljós á hjólið ![]()
En mig dreymir ennþá um að koma mér í gott form og ÆTLA að gera það. Ég ætla að labba yfir Leggjabrjót í sumar og þá er örugglega gott að vera í góðu formi
og svo er náttúrulega möst að fara upp Glym og Akrafjallið má ekki verða útundan. Það verður greinilega nóg að gera hjá mér í sumar
.
Á morgun fer ég til Aabenraa að sækja um vinnur. Ég ætla að labba á snyrtistofur þar í bæ, gaman, gaman.
Ef ég fer ekki að fá vinnu þá held ég að það endi með að ég fari til Íslands að vinna! Það er bara svo flókið...
.
En það er óskandi að ég fari að komast í vinnu.
Ég er líka búin að vera að sækja um á sambýlum og elliheimilum en það virðast aðallega vera ráðið þar inn faglært fólk!
Jæja.....
Bið að heilsa í bili...
Over and out!!!!!!
ji ég hef aldei prófað að fara í svona rosalega rennibraut, verð að prófa það e-h..!
já ég kem nú með þér þegar þú ferð í e-h gönguferðirnar í sumar.. það er nú ekki mikið mál (vona ég) erum nú búnar að labba á nokkur fjöll saman.. ;) það er voða gaman sko.. ;)
en gangi þér vel að finna þér vinnu í fyrramálið, en það bíður þín starf þarna e-h staðar ;) þarf bara að finna það !!!
En hafið það rodalega gott og ég bið að heilsa ykkur öllum..
Skaga- kveðjur Elísabet frænka
Gangi þér vel í vinnuleitinni!
kv. dagny
Við familijan lentum í því út á spáni að fá svona ógeðslegan borgara....tók okkur smá tíma að geta borðað borgara aftur eftir þessa upplifun.
Það syttist í heimsóknina mína ...bara 47 dagar...hehe ég sko farin að telja niður.
Hafið þið það sem allra best og gangi þér vel á vinnu veiðum :-)
Gangi þér vel í atvinnuleitinni góða mín
Kv úr Berjó
hafið það gott í bongoblíðunni(finnst samt oggulítið svalt ennþá...)
hilsen Hrundsen