Rigning!!!

25. apríl 2008 klukkan 16:08
Það er eiginlega óhætt að segja að það hafi rignt yfir mig atvinnutilboðum Hlæjandi. Ég var eiginlega komin með í magann á tímabili því ég var að bíða eftir svari á einum stað og á meðan biðu þrjú önnur tilboð!

En nú ert allt komið í ró... eða þannig!
Ég fékk svar í dag um vinnuna sem ég vonaðist eftir og byrja þar á mánudaginn. Þetta er á snyrtistofu í Aabenraa sem heitir Ck kosmetisk klinik, þar leigji ég stól og aðstöðu þannig að nú er ég að vinna í því að stofna fyrirtæki, sækja um kennitölu og finna nafn o.þ.h.
Þarna eru líka hjúkrunarkona og naglafræðingur og við vinnum allar saman, þannig séð að ef önnur af okkur getur hjálpað kúnnanum betur þá bendum við á þá manneskju.
Og ég hlakka bara mikið til að byrja og er viss um að þetta verður góður skóli og mér er líka velkomið að fylgjast með því sem hinar eru að gera og gæti lært mikið af því. Framundan hjá mér eru námskeið í hinu og þessu og ég ætla að vera dugleg að kynna mér nýjungar sem ég get boðið kúnnum uppá Glottandi. Og annað sem er gott við þetta er að ég ræð mér og mínum vinnutíma algjörlega sjálf en nú er bara aðal atriðið að fá inn kúnna.

Helgin hjá okkur er orðin full bókuð! Binni fer á tónleika í kvöld og svo á karladaginn á morgun og svo eru tvö barnaafmæli um helgina, og svo á mánudaginn á Binni afmæli. Þannig að það verður mikið fjör hjá okkur Brosandi.

Það er nú eiginlega lítið annað að frétta af okkur!

Skrifa bara meira seinna.

Góða helgi Svalur.

Eða eitt enn...
Ef þið lumið á góðu nafni fyrir "snyrtistofuna mína" þá meigið þið alveg láta mig vita, samt eitthvað nafn sem útlendingar geta borið fram Glottandi.
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
þórunn frænka skrifar ...
Halló allir
Frábært að heyra með vinnuna til hamingjuog gangi þér sem allra best,og Binni til hamingju með afmælið.
Biðjum að heylsa öllum
kveðja af Faxabrautinni
25. apríl 2008 klukkan 21:04
Dísa skvísa skrifar ...
Glæsilegt til hamingju með vinnunna og skilaðu afmæliskveðju frá okkur til Binna.
Mér dettur ekkert í hug núna, en set inn eitthvað ef ég fæ hugljómum.
26. apríl 2008 klukkan 22:38
Sólveig Ásta skrifar ...
HÆ skvís til lukku með vinnuna..

A.G.A Spa & Beauty

heheh
knús gangi þér vel í nýju vinnunni
27. apríl 2008 klukkan 18:11
dagny s skrifar ...
 
til hamingju med binna i dag.
nafn... biddu thad er ad koma... rett bradum... Bergur... nei annars ekki Bergur...
biddu thad er ad koma annad... eftir sma stund! :)

til hamingju med vinnuna... frábært.
28. apríl 2008 klukkan 12:39
Dagný skrifar ...
 
Til hamingju með vinnuna Ágústs mín. Áður en þú veist af þá verður allt orðið fullt hjá þér. Alsekki slæmt að vera í dekri hjá þér :-) Knús til strákana, stóra og smá.
Kv úr Berjó
28. apríl 2008 klukkan 22:08
Bergþóra skrifar ...
 
hæhæ vildi óska þér til lukku með kallinn þinn í dag ........
frábært að þú sért komin með vinnu ...til lukku með það :)
humm nafn á stofuna ég er alveg tóm núna ....AGADÚ bauetysalon hehe:)
en hafið það sem allra best
kveðja frá grafarvogsgenginu
28. apríl 2008 klukkan 23:19
ragga skrifar ...
Til hamingju með þetta Ágústa mín:):) þú verður ekki lengi að fá til þín kúnnana:) það koma bara asnaleg nöfn upp í hausnum á mér... ætla ekkert að nefna þau neitt.. en ef það kemur eitthvað sniðugt þá læt ég þig vita;)
Þetta er ekkert smá spennandi allt saman:)
30. apríl 2008 klukkan 23:36

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan