Frú Prússulína...

01. maí 2008 klukkan 12:07

Ég fékk fyrsta kúnnann minn í gær!
Og það er nú ekki frásögu færandi nema vegna þess að:

Þessi kona var að fá gervineglur og ég var að horfa á. Hún spurði mig síðan hvað litun og plokkun kostar... bíddu aðeins... hljóp í verðlistann og athuga!!!
Eftir neglur spurði hún hvort ég gæti litað hana og já no problemmó og fékk hana líka til að fá lit á augnhárin og í stað þess að hlaupa aftur fram og athuga hvað það kostar þá giskaði ég á verð. Augabrýrnar máttu ALLS ekki vera of dökkar þannig að ég þurrkaði litinn mjög fljótt af en endaði síðan á lita þær aftur því þær máttu vera aðeins dekkri.
Ég var alveg hrikalega skjálfhent, bara eitthvað stressuð með fyrsta kúnnann minn Skömmustulegur en liturinn fór samt á sinn stað!

Þegar konan var farin kíkti ég í verðlistann og sá að ég hafði rukkað greyið konuna of mikið Skömmustulegur og svo kom eigandinn æðandi til mín og spurði hvernig hafi gengið??? Og ástæðan var sú að þessi kona kemur reglulega til þeirra og þetta er týpa sem finnur að ÖLLU og er víst rosalega spes. Og svo hló hún bara að þessu... fysti kúnninn minn var Frú Prússulína og þakkaði fyrir að ég hafði ekki hugmynd um hvernig hún væri.
Hún kvartaði allavega ekkert yfir þessu, fannst brúnirnar pínu of dökkar en ég held hefði ekkert getað farið meiri milliveg. Svo er bara spurning hvort hún komi aftur???
Annars líkar mér bara mjög vel þarna. Eigandinn er æðisleg og það litla sem ég hef hitt af naglafræðingnum lofar góðu, hún er mjög fín.
Framundan er fullt af námskeiðum. Í næstu viku fer ég tvo daga til Árhús á námskeið hjá Murad og svo eru tvö námskeið í viðbót í mánuðinum, ég býst við að annað þeirra verði líka í Árhús.
Ég talaði við naglafræðinginn um nafn á "fyrirtækinu", hún er nafn á blómi á sínu fyrirtæki og sagðist ætla að breyta því og nota sitt nafn, því það er betri auglýsing, þannig að ég var að spá í að skíra mitt bara Agusta´s hudpleje. Mér finnst þetta reyndar mjög leiðinlegt nafn en... so what og það er líka erfitt að finna nafn sem er ekki til!

Í dag er frídagur og bara voða næs... sofið langt fram eftir. Óli vinur hans Ásbjörns gisti hjá okkur.
Við fengum síðan sms áðan um Jóhann Ingi var kominn í heimsókn til Brynjars sem er nágranni okkar. Minns var ekkert að láta okkur vita, tölti bara yfir á tásunum Svalur.
Svo er Ásbjörn búinn að eignast vinkonu sem býr í næsta stigagangi við okkur og er íslensk. Þau leika mjög vel saman og ég spurði Ásbjörn um daginn hvort honum þætti ekki gaman að leika við hana. Hann játti því og sagði síðan: Ef þú vogar þér að segja að hún sé kærastan mín... þá flyt ég að heiman. Hahaha...
En ég sagði nú bara að strákar og stelpur gætu alveg verið vinir án þess að vera kærustupar Glottandi.

Á morgun er grillveisla í Katrinelund og á laugardaginn koma Jóna og Haffi í heimsókn.
Strákarnir telja niður, þeir hlakka svo til að hitta Gabríel Brosandi.

Bless í bili...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Dísa skvísa skrifar ...
 
Hæ skvís
Mér finnst nafnið Agusta's hudpleje, mjög fínt. Fæ ég ekki tíma hjá þér í dekri þegar ég kem???
Það styttist þar til ég kem...hlakka svoooooo til. Aðeins 37 dagar....eða 5 vikur .
Hafið það sem allra best.

Kveðja Dísa
02. maí 2008 klukkan 08:15
Hrund skrifar ...
 
TIL HAMINGJU MEÐ DJOBBIÐ! náði ekkert að spyrja þig spjörunum úr í Katrinelund í gær...
Gangi þér vel í vinnunni nýju!
sumarkveðja
03. maí 2008 klukkan 22:50
Lára María skrifar ...
kvitt á bloggrúnti
06. maí 2008 klukkan 11:14
Elísabet frænka skrifar ...
 
hæhæ!!!
já mér líst vel á þetta nafn.. bara mjög hentugt held ég..;) ji hvað það væri skemmtilegt að koma út til ykkar...! ég er að klára síðasta prófið á miðvikudaginn í næstu viku, og byrja svo ekki að vinna fyrr en 30. mai! bara langt frí hjá mér....!
haha ásbjörn fyndinn að segja þetta, þetta er nú svo viðkvæmt á þessum árum ekkert skrýtið!
En langaði bara að kommenta smá, og láta vita að ég er á lífi.. hehe ;)
En hafið það gott, bið að heilsa öllum ;)
06. maí 2008 klukkan 22:51

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan