Je dúdda mía...
09. maí 2008 klukkan 16:28
Það er svo hrikalega heitt úti að það er ekki verandi þar!
Binni keypti sundlaug handa strákunum í dag þannig að nú eru þeir úti að busla... og laugin að verða að drullupolli eða endar örugglega þannig
.
Jóhann Ingi er búinn að vera veikur mest alla vikuna, fékk astma og svo var hann heitur og slappur. En það var frekar asnalegt að banna honum að fara út, því það var miklu hlýrra þar heldur en hér inni. En hann var sem sagt bæði úti og inni í veikindunum
.
Ég keyrði til Árhús á þriðjudag og miðvikudag. Hræðilega leiðinlegt að keyra svona langt... alein í steik. En námskeiðið var fínt, ég ætti að geta bjargað mér með ansigtsbehandlinger núna.
Svo kom blaðamaður í gær og tók viðtal við mig og tók myndir... ég hata myndatökur og ég bara hreinlega festist ekki á filmu. En það verður spennandi að sjá greinina.
Það er búið að bóka smá inn hjá mér og svo eru samningsviðræður í gangi um að auglýsa í vikublaðinu í bænum.
Binni fór í hjólatúr áðan í nýju bleyjubuxunum sínum... haha... strákarnir gáfu honum þær í afmælisgjöf og þeim finnast þær svo fyndnar. Þetta eru hjólabuxur með púða í klofinu, alveg eins og sjúkrahús-beyja í stærð
. En hann er orðinn voða duglegur að fara út að hjóla.
Ég hef nú ekkert merkilegt að segja!!!
Það væri örugglega ekkert vitlaust að setjast aðeins út, áður en allt verður vitlaust í buslinu hjá krökkunum og kannski brenna smávegis eða vonandi fá smá lit!

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Heyrðu, þú verður að setja hingað slóðina að greininni, ef hún birtist á netinu það er að segja!
*sakna þín*
Allt gott að frétta af okkur. Steinar er að klára próf núna 13.maí. Fer svo að vinna í Securitas í sumar. Ég er að dafna vel, við erum búin að fara í sónar og mæðraskoðun. Allt lítur rosa vel út. Hvenær kemur þú heim??
Söknum ykkar mikið
þín Rakel
Oh sól og sæla í Danaveldi. Innilega til hamingju með vinnuna og fyrirtækið:)
Er einmitt á leið í sólina, þann 22 maí fer ég í viku til Alicante:)
kv. Ella
Hlakka geðveikt til að koma í heimsókn.....knús í kotið
knús og kram frá Esbjerg*
Jóna og co.
En ég er nú samt að fara í sólarferð 21 mai, er að fara til alicante ;) já við jökull ákváðum að skella okkur..! hlakka voða mikið til :) fyrsta sólarferðin mín... ;)
En já fyndið að sjá Binna í svona smart buxum :) hehe
En hafið það alveg rosalega gott, og bið innilega að heilsa ykkur öllum. koss koss ;)
Ég væri sko alveg til í að fá smá sól hér takk. Endilega að senda nokkra geisla til okkar. Hlakka til að fá ykkur heim í sumar.
kv. Ásta
http://www.e-pages.dk/bgmonline_au/89/section.html bls. 41 (Blaðinu er flétt með því að fara í hornið og ýta á músina!!)
En það eru nokkrar vitleysur í greininni og ? hvort það komi ný.