Kannski kominn tími á smá blogg!

18. maí 2008 klukkan 11:10
Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur að undanförnu.

Á síðasta laugardag komu Jóna Björk og fjölskylda í heimsókn og gistu eina nótt. Það var mjög gaman og krakkarnir náðu svo vel saman. Þegar þau fóru aftur var strax farið að rukka um næstu heimsókn Brosandi.
Takk fyrir heimsóknina Hlæjandi.

Á sunnudeginum skellti ég mér í Go Kart með Ísl. félaginu. Hehemmm....
Ég held það sé nóg að lýsa því hvernig mér gekk með því að segja:
Ef þetta hefði verið traktorakeppni þá hefði ég KANNSKI komist í úrslit Skömmustulegur... en þetta var samt mjög gaman... nei, nei ég er ekkert tapsár... gengur bara betur næst Svalur.
Á sunnudagskvöldið komu Lísa systir hans Binna og fjölskylda í heimsókn. Við vorum að reyna að rifja upp hvenær við hittumst síðast og það eru örugglega komin ca. 3 ár, en þau búa í Noregi.
Á mánudeginum fórum við öll saman í Legoland og Elsa og Svanur líka. Það er nú alltaf gaman að koma þangað Brosandi. Það er komið sjóræningjaland þar líka og við fórum útá bát og sigldum einhverja leið og áhorfendur gátu sprautað á okkur vatni og við á þá, EN áhorfendur sprautuðu niðurávið en við uppávið og það var gjörsamlega ekki þurr þráður á okkur eftir þessa siglingu, en við vorum fljót að þorna í blíðunni Brosandi.

Ég er búin að vera mikið í vinnunni síðustu viku. Var á námskeiði fram á kvöld og svo er svolítið happ og glapp að ná strætó Óákveðinn.
En það er orðið aðeins meira að gera hjá mér. Ég finn nú ekki dagamun, heldur kannski vikumun á því að það sé að aukast hjá mér... þolinmæði takk Brosandi.
Ég fékk síðan mail á síðasta fimmtudag og var boðin vinna á snyrtistofu hér í Sönderborg. Það voru bara 10-15 tímar í viku og svo myndi það aukast með haustinu.
Ég bauðst reyndar til að vinna hjá henni einn dag í viku og svo kannski annan hvern laugardag meðan það væri svona lítið að gera hjá mér en svo sá ég eftir því því ég tók eftir að það er að bókast meira og meira inn hjá mér. En ég hef ekki fengið svar frá henni aftur, vona eiginlega að hún taki því ekki.

Á föstudaginn kom Einar hingað færandi hendi. Hann var á skytteríi og gaf okkur Bambakjöt. Ummm...
Í kvöld verður bambapottréttur í matinn, spennandi að sjá hvernig það smakkast Brosandi.
Það er ekki nóg með að bambi sé lítill og sætur, heldur bragðast hann líka vel!
Við Binni vorum einmitt að ræða það að við getum nú ekki sagt strákunum að við séum að borða bamba! Segjum frekar að þetta sé lamb! Það hljómar eðlilegra. Þeir spá alveg í hvernig kjöt við erum að borða hverju sinni. Jóhann Ingi var einu sinni að telja upp uppáhalds matinn sinn og m.a. nefndi hann: dauð hæna sem búið er að brenna! (hann hefur örugglega meint sem búið er að elda! Hann er nú ekki vanur að fá brenndan kjúkling! Glottandi ).

Veðrið er búið að vera yndislegt hjá okkur og strákarnir sjást varla inni. Það eru fullt af krökkum hér í nágrenninu til að leika við og svo erum við komin með litla sundlaug í garðinn og trampólín... og svo eru þeir voða duglegir að drullumalla Ullandi.

Ásbjörn fór með vinkonu sinni í Katrinelund síðustu helgi og kom heim með Salemöndru í flösku. Honum fannst þetta voða sport en vissi ekkert hverju hún nærist á og bað mig að kaupa bók svo við gætum lesið okkur til um það! Greyið Salamandran var enn lifandi á fimmtudaginn og þá tókum við Ásbjörn rúnt í Katrinelund og skiluðum henni til "vina" sinna. Ég fékk bara meira og meira illt í hjartað með hverjum deginum að vita af greyið dýrinu og drepast úr hungri og leiðindum í plastflösku Gráta. Ásbjörn varð síðan bara líka sáttur við að sleppa henni Brosandi.

Þessi helgi er bara algjör letihelgi. Ég hef verið á leiðinni að sauma gardínur í svefnherbergið í 2 vikur!! En bara kem mér ekki í það. Það er nóg að hugsa 7 metrar af efni... æææ... geri það á morgun Skömmustulegur. Svo er bara alltof gott veður til að sitja inni og sauma.
Ég klippti trén í garðinum í gær og við Jóhann Ingi kíktum í göngutúr og svo lá ég í allt gærkvöld að glápa á sjónvarpið og nennti ekki að hreyfa mig Óákveðinn.

Jæja... kannski óþarfi að eyða deginum í dag í tölvunni!!!
 Farin út í góða veðrið Svalur
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
skjóna skrifar ...
æji það er svo gott að eiga leti helgi!!!
knús frá Esbjerg*
Jóna
18. maí 2008 klukkan 11:55
Elísabet frænka skrifar ...
hæhæ...! Ji hvað þið hafið það gott í þessu blíðskaparverði.. Ég er enn í þykku dúnúlpunni minni hérna og það er drep kuldi...!
Salamandra minnir mig samt bara á e-h bíómynd, veit ekkert hvernig það lítur út einu sinni ;/
En já myndi einmitt sleppa því að segja strákunum að þið séuð að borða bamba.. það er saklaust og fallegt dýr og að þið séuð að borða það í pottrétti hljómar ekki mjög vel í þeirra eyrum ;) hehe!!
En hafið það alveg rosalega gott, bið að heilsa ykkur í bili..;)
18. maí 2008 klukkan 12:51
Dísa skvísa skrifar ...
 
Loksins nýtt blogg.....sko ekki það hafi liðið neitt svakalegur tími á milli...ég bara bíð alltaf spennt eftir bloggi. hehe
Gaman að heyra hvað gengur vel í vinnunni, en Ágústa ..það eru bara 20 dagar þar til ég kem :-) Get varla beðið ....sí jú soon ...knús í kotið
20. maí 2008 klukkan 08:09

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan