Slæmur ávani.

20. maí 2008 klukkan 18:49

Ég var að lesa blaðagrein um daginn þar sem lesandi skrifaði til ráðgjafa.

Hún var að biðja um ráð varðandi kærasta síns. Eftir að þau fóru að búa saman komst hún að því að hann gengi með bleiu Hissa. Hann sagði ástæðuna fyrir bleiu notkuninni vera að hann fékk svo litla umönnun í æsku og þetta veitti honum öryggiskennd. Hún bannaði honum að ganga með bleiu þegar hún sá til og er búin að líta framhjá þessu í einhvern tíma því hún elskaði hann svo mikið. Svo fór hún að hugsa til framtíðar... t.d. þegar þau myndu eignast börn. Hvernig fyrirmynd yrði pabbinn börnunum  þegar hann notar sjálfur bleiur.

Greinin endaði þannig að henni var ráðlagt að fara frá honum ef hann myndi ekki hætta á bleiu.

 

En pæliði í því, að hitta kannski rosa flottan gæja Svalur og komast svo að því að hann gengi með bleiu, BWAHAHAHAHA...... Brosandi

 

Það hafa svo sem allir einhverja slæma ávana.

Ég á allavega nokkra. Og sá versti eins og er, er að ég get ekki haldið mér vakandi í strætó!!!

Þetta er orðið eiginlega alveg ferlegt því ég sef fastar og fastar með hverri ferð. Venjulega vakna ég við hvert stopp og reisi mig við meðan fólkið gengur inn og svo er ég alltaf vöknuð áður en keyrt er inní AAbenraa. En í gærmorgun vaknaði ég rétt hjá rútustöðinni og strætó fullur af nýju fólki. Svo sef ég sitjandi með hangandi haus og þegar ég vakna er slefið við það að leka út Skömmustulegur – NÆS.

Á heimleiðinni í dag þurfti ég virkilega að hafa fyrir því að halda mér vakandi og það tókst.

 

Annars er bara allt fínt að frétta...

Það hefur kólnað svolítið í veðri.

Strákarnir eru bara hressir.

Það er indíána vika í skólanum hjá Ásbirni og hann fer í skóginn á hverjum degi í indíánabúning og málaður í framan, þar er farið í allskonar leiki og voða gaman.

 

Fullt af nýjum myndum í myndaalbúmi.


 
      
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Lára María skrifar ...
Hæ sæta

Taktu með þér mp3 spilara sem er bara með pípi á 1 mínútu fresti, þá tekst þér að vaka ;)

knus
20. maí 2008 klukkan 20:49
Blessuð Ágústa!
Fann síðuna þína á bloggrúnti og laumaðist til að lesa smá. Mér finnst þetta nú frekar fyndið með hausinn hangandi og slefið alveg að fara að leka ;o), en mér þætti það kannski ekki fyndið ef þetta væri ég.
Frábært að heyra að það sé að aukast bókanir hjá þér í vinnunni, er alveg viss um að þú átt eftir að fá stóran hóp af föstum kúnnum eftir að þeir hafa komið til þín einu sinni.
Kv. Begga
21. maí 2008 klukkan 06:49
Dísa skvísa skrifar ...
Hæ sæta...
Lúllandi í stætó, það er nú ekki eins slæmur ávani eins og ganga með bleiju.

Flott nýja lookið á síðunni, nú eru bara 18 daga skvís......ji hvað er gaman að telja niður... fer að bjalla á þig bráðlega....kv. Dísin
22. maí 2008 klukkan 12:09

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan