Búin ađ bóka!

27. maí 2008 klukkan 19:18

Jæja við erum loksins búin að bóka flugmiðana heim.
Binni og strákarnir koma 23. júní og ég kem 24 júlí og við förum öll saman heim 12. ágúst.
Ég náði að teygja mitt frí í 3 vikur, hélt ég næði bara 2 vikum!
Strákarnir hlakka mikið til og við búin að skrifa daginn inná dagatalið Brosandi.
Strákarnir eru stundum að rifja upp skemmtilegar minningar frá Íslandi og þá finnur maður alveg fyrir heimþránni í þeim, þó þeir séu alls ekki grátandi yfir þessu.
Um daginn var ég að skera í pylsu fyrir þá og gerði alveg eins og afi þeirra, setti remolaði og tómatsósu í pylsuna og þá koma frá Jóhann Inga:" Ég sakna svo ömmu og afa".

Ooo... það verður svo gaman í sumar Svalur.

Ég verð síðan EIN heima í heilan mánuð... hvað í ósköpunum á ég eiginlega að gera af mér??
Þetta verður örugglega smá sport fyrsta og svo kannski annan daginn en svo verður þetta örugglega orðið lonly.

Á síðasta fimmtudag ákvað ég að fara fyrr heim úr vinnunni og ég og Ásbjörn fórum í leikskólann hans Jóhann Inga því þar var vinnudagur.
Foreldrar komu saman og hjálpuðust að við að sansa garðinn, skiptum um spýtur sem liggja meðfram öllum trjárunnum, sópað, eitthvað mokað upp og kofi rifinn niður. Allir fengu ís til að kæla sig niður og svo voru pylsur fyrir alla, djús fyrir krakkana og öllari fyrir þá eldri. Mér finnst þetta frekar fyndið, að drekka bjór í leikskóla, en svona er þetta víst hér í Dk.

Við fórum svo í tvöfalt barnaafmæli á laugardaginn í Katrinelund. Veðrið var æðislegt og mér tókst að brenna... en fékk samt engan lit .. like always Óákveðinn.

Svo fór ég heim og þreif ALLT... fjúff þvílíkur léttir Brosandi.

Um kvöldið var mér síðan boðið í mat og Eurovisionpartý til Hjördísar og Ingvars.
Binni ákvað að vera heima og nota helgina í lærdóm. En hann og strákarnir kíktu samt yfir til Sighvats og Eddu fengu þar dýrindis grillaða pizzu Ullandi.
Við Hjördís kíktum svo aðeins útá lífið og viti menn ég var komin heim fyrir kl. 7 Glottandi, ég var meira að segja komin kl. 3 það var voða rólegt í bænum og við kíktum bara á einn stað en það var samt mjög gaman hjá okkur.

Á sunnudaginn hjóluðu ég og strákarnir í heimsókn til Hörpu, Hrannars og Elsu. Það var voða fjör, þau léku sér inni og úti og voða gaman.

Það eru miklar speguleringar hjá Ásbirni þessa dagana um skógarlús!
Þegar indíánavikan var í skólanum hjá honum voru þau úti skógi alla daga og þegar hann kom heim eftir skóla var hann tékkaður í bak og fyrir af skógarlús.
Skógarlús sest á líkamann, helst á staði eins og bak við eyru, bak við hnéskelina, nára o.þ.h. hef ég heyrt og þar stingur hún sér inn og sígur blóð og belgist út eftir því hvað hún nær miklu blóði. Og maður verður að passa að taka hana varlega út með sérstakri töng svo hún kremjist ekki eða brotni ekki með halann inní húðinni því þá getur komið smit sem leiðir til lömunar. En allavega... þá ákvað ég að "hræða"/ eða bara segja Ásbirnir rétt frá þessu svo hann færi ekki að kroppa í þetta ef hann fengi svona. Sagði honum að leita til einhvers fullorðins ef hann fyndi eitthvað. Og nú eru hann og vinir hans þvílíkt að velta sér uppúr þessu - sem er bara gott, að ég held!
Ég veit ekki hvernig þessi vera lítur út og hef bara heyrt um hana, en allur er varinn góður Brosandi.

Jæja best að hætta núna. Ég er búin að vera svo lengi að skrifa þetta og vona því að færslan þurrkist ekki út!

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bogga skrifar ...
 
Ojjj bjakk. Skógarlús?
Þetta eru laglegar lýsingar á kvikindinu hjá þér!

Þú hittir laglega á sumarfríið mitt, ég verð nýbúin með sumarfríið mitt þegar þú kemur :( En jæja, hlakka samt hrikalega mikið til :D
27. maí 2008 klukkan 23:16
skjóna skrifar ...
hey.... förum við þá samferða heim??? Fljúgið þið til og frá Billund??? Við fljúgum heim 12.ágúst frá Billund;) Já maður er skíthræddur við þessar skógarlús.... er reyndar ekki búin að kaupa mér sérstaka töng... má maður ekki bara nota plokkara???:o)
28. maí 2008 klukkan 07:49
Ágústa skrifar ...
 
Æi tíbískt ad thú verdur búin med sumarfríid :o/
Ég verd thá bara hangandi á glugganum hjá thér í vinnunni.. hehe..

Og nei Jóna vid fljúgum frá Køben :o/
Ég kann heldur ekkert á thessar skógarlýs! Veit bara ad madur verdur ad taka thær varlega út ;o)
28. maí 2008 klukkan 09:38
Dísa skvísa skrifar ...
Hæ skvís
Líst ekkert á þessar skógarlýs, ég held að ég haldi mig bara frá öllum skógum.

En nú eru sko bara 12 dagar þar til ég kem.....ertu búin að plana eitthvað fyrir okkur?


Hlakka ógó til að sjá ykkur ...kveðja Dísin
28. maí 2008 klukkan 20:37
dagny sylvia skrifar ...
 
skógarlýs eru pínulitlar... eisn og dökkt kusk... en fer ekki af... ekki einu sinni þegar maður þurrkar ser með handklæði... höfum alveg orðið fyrir þeim... en ég hef bara einu sinni fengið... og þá á löppina... sem gerði það að verkum að ég næstum lamaðist... og fann ofboðslega til... alveg að deyja... en gat samt hjólað upp á sjúkrahús... og bað eina þar um að taka þetta í burtu... (var að fara á vagt)... get víst ekki hjúkrað sjálfri mér ;)

annars er þetta ekkert svo ógeðslegt!

kv. dss (loðna)
29. maí 2008 klukkan 12:30
Ágústa skrifar ...
 
Haha.. tækin hlýtur nú að fara að koma Dagný :o)
Það er komin rúmlega vika síðan ég pantaði það!
29. maí 2008 klukkan 18:43
Rakel skrifar ...
 
Hæ,

Gat ekki kommentað á hina síðun. En við höfum ekkert talaðu um þetta ennþá. Steinar nýbyrjaður að vinna og ég fer í sumarfrí 7.júlí til 5.ágúst. Við förum vestur 25.júlí í eina viku. Þurfum bara að drýfa í að negla eitthvað niður. Við verðum í sambandi við ykkur hvað verður gert. :)
Knús til ykkar. Hlakka mikið til að sja strákana
kv Rakel
30. maí 2008 klukkan 18:36
Elísabet Stefáns skrifar ...
 
hæhæ...!
ég er í vaktavinnu þannig að við getum sko alveg gert e-h sniðugt, eins og síðast þegar við hittumst ;)
OOOJJJJ skólalus? skrítið nafn á þessari blóðsugu!
En hafið það gott áfram, bið að heilsa ykkur í bili
Elísabet frænka ;)
03. júní 2008 klukkan 17:48
Ágústa skrifar ...
 
HAhaha... Þetta heitir Skógarlús en ekki skólalús!!! Finnst útí skógi eða háu grasi en ekki í skólum :o)

En já væri sko alveg til í eh. skemmtilegt í sumar... djamm... hestbak... fjallgöngur :o)
04. júní 2008 klukkan 06:39

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan