Ég og tölvur:O/
07. júlí 2006 klukkan 03:52
Ég var búin að skrifa slatta áðan en svo týndist það bara, frekar pirrandi
. En allavega... þá er nú ósköp lítið að frétta. Ég og Ásbjörn fórum í "borg óttans" í dag í 10 ára afmæli hjá Sólveigu frænku. Það var mjög fínt og auðvitað alltaf gaman að fá gott að borða:O). Jóhann Ingi fór í pössun hjá afa sínum og var bara meira en sáttur við það. Hann fór nefnilega í nefkirtlatöku í gærmorgun og þurfti því að hafa hægt um sig. Aðgerðin gekk mjög vel og hann hefur verið eiturhress eftir þetta. Það var reyndar alveg ótrúlega fyndið að fylgjast með honum eftir að hann fékk svæfinguna í sig, ég þurfti alveg að hafa fyrir því að hlæja ekki að honum. Hann yrði örugglega skemmtilegur djammfélagi
.
Ég læt þetta duga í bili..... bæjó!!!
Ég læt þetta duga í bili..... bæjó!!!
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir