Róleg helgi!!
09. júlí 2006 klukkan 15:35
Heil og sæl!!
Nú eru írskir dagar að líða undir lok. Við fórum öll í götugrill á Jaðarsbrautinni á föstudagskvöldið. Mamma og pabbi komu líka og Steinar og Rakel. Það var ekkert voðalega hlýtt en alveg þolanlegt og alveg rosalega gaman. Þegar ég var á leiðinni heim eftir götugrillið þá tókst mér að detta í tröppunum á leiðinni upp og gjörsamlega steinlá
. Þetta varð til þess að ég varð að sleppa lopapeysuballinu á laugardagskvöldið því ég var bólgin og hel aum í löppinni. Aðfaranótt laugardagsins fékk Jóhann Ingi hita, þannig að við vorum bara heima í róleg heitum allan laugardaginn en Ásbjörn var svo heppinn að fá að fara með Valgerði, Söru Katrínu, Sólveigu og Ásgeir uppá Jaðarsbakka í tívolí og eitthvað tilheyrandi. Mér sýnist Jóhann Ingi allur vera að hressast, þannig að vonandi komumst við út á morgun.
Nú eru írskir dagar að líða undir lok. Við fórum öll í götugrill á Jaðarsbrautinni á föstudagskvöldið. Mamma og pabbi komu líka og Steinar og Rakel. Það var ekkert voðalega hlýtt en alveg þolanlegt og alveg rosalega gaman. Þegar ég var á leiðinni heim eftir götugrillið þá tókst mér að detta í tröppunum á leiðinni upp og gjörsamlega steinlá
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Kíki á þig fljótlega,
Bogga