Verđ ađ fara ađ pakka:O/
11. júlí 2006 klukkan 14:56
Jæja nú gengur þetta ekki lengur, ég verð að fara að klára að pakka þessu drasli. Ég hef enga afsökun lengur
, Jóhann Ingi er orðinn hress og kominn á leikskólann, grenjandi rigning úti og ég bíllaus, þannig að.... ég hef bara ekkert betra að gera!! Ég fór hjólandi á leikskólann áðan í svoleiðis hellidembu og var á floti þegar ég kom þangað
, fór í foreldraviðtal v/J.I. það gengur allt vel hjá honum, duglegur að dunda sér, fara á koppinn og mikil framför í tali og orðaforða. Ég fór líka nýlega í foreldraviðtal v/Á.J. og hann fékk líka mjög góða dóma, m.a. duglegur, rólegur og félagslyndur. Og ég er auðvitað bara svooo stolt af ormunum mínum tveimur
.
En yfir í aðra sálma. Ég get ekki sett myndir inná bloggið fyrr en við komum út, því allar myndirnar okkar eru í hinni tölvunni sem er komin ofaní kassa. Svo ég bæti bara úr því seinna.
En ætli það sé ekki best að fara að gera eitthvað í þessu pakkerí i !!!

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Vildi bara láta þig vita að þín verður SÁRT saknað elskan!! Vonandi gengur ferðin vel hjá ykkur og þið getið slakað aðeins á á leiðinni :)
Knúús og kossar til ykkar allra (og smá snökt...)
Boggan