Komin í Danaveldiđ.
30. júlí 2006 klukkan 01:16
Jæja þá erum við komin til Danmerkur, en þó ekki alveg á leiðarenda. Það gekk voðalega vel í skipinu, nema tíminn leið alveg hræðilega hægt. Það var fínt leiksvæði fyrir börnin sem var gert úr dýnum (frekar erfitt að meiðast þar), spilakassasalur og sjónvarp inná herbergi, cartonnetwork allan sólarhringinn, strákunum til mikillar gleði
. Jóhann Ingi kynntist stelpu sem er viku eldri en hann og þó náðu alveg ótrúlega vel saman. Það var mikill hiti í skipinu í gær og dag og allir úti í sólbaði, það var eins og að ganga á vegg að koma út. En hér í Danmörku er sólarlaust en um 20 stiga hiti. Við erum á gistiheimili í Álaborg (komumst loksins í netsamband), leikvöllur í garðinum og þvottavél, ekki veitti af henni
. Við verðum hér í 2 nætur, ætlum í dýragarð og tívolí á morgun og leggjum svo snemma af stað til Sönderborg á mánudag.
Ég ætla að láta þetta gott heita í bili, skrifa aftur við fyrsta tækifæri.
SAKNAÐARKVEÐJUR.... frá okkur öllum.
Ég ætla að láta þetta gott heita í bili, skrifa aftur við fyrsta tækifæri.
SAKNAÐARKVEÐJUR.... frá okkur öllum.
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Gangi ykkur allt í haginn
Kv Sibba og Co
verðum í bandi og ég sendi sms strax og eitthvað fer að gerast.
kv
Lilja
Frábært að allt gekk vel hjá ykkur á leiðinni út.
verður gaman að geta fylgst með ykkur hérna á síðunni.
kv. Ella Þóra