Komin til Sönderborg.

31. júlí 2006 klukkan 20:43

Jæja þá erum við komin á áfangastað - loksinsGlottandi.  Þetta gistiheimili er þónokkuð betra en það sem við vorum á í Álaborg, snyrtilegra og svo er sjónvarp og internet inná herberginu.  Við fórum í smá verslunarferð áðan, ég keypti mér buxur og bol og Binni keypti sér sandala.  Svo skoðuðum við húsgögn í leiðinni.  Á eftir ætlum við að redda okkur korti af bænum og leita að tilvonandi húsnæðinu okkar.  Svo ætlum við að hitta Einar og Dagmar og fá okkur saman kvöldmat.  Strákarnir skemmta sér konunglega, bæði við að slást og svo er leikvöllur hér fyrir utan.  Þeir voru gjörsamlega búnir á því eftir gærdaginn, steinrotuðust og við gátum ekki vakið Ásbjörn í morgun, bárum hann bara út í bíl og hann vaknaði á leiðinniBrosandi.  Á morgun þurfum við svo að finna skrifstofu þar sem við getum skráð okkur inní landið og þess háttar.
Jæja nú ætlum við að fara að rúnta um, bless í bili....

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Sibba skrifar ...
 
Til lukku með að vera komin á áfangastað . Já ertu ekki byrjuð að versla þér föt.... það er svoo gaman :-)

En gangi ykkur vel .

kv. Sibba sem er alltaf að kíkja á bloggsíðuna
31. júlí 2006 klukkan 22:09
Bergţóra skrifar ...
 
hæ hæ Danmerkurfarar....
flott að þið séuð komin á áfangastað.... gaman að getað fylgst með ykkur á blogginu
gangi ykkur sem allra best með það sem framundan er......
knus , kossar og saknaðarkveðjur úr Flétturimanum....:)
01. ágúst 2006 klukkan 02:24
Ragnheiđur frćnka og family skrifar ...
 
Elsku fjölskylda mikið er gleðilegt að allt gekk vel ,héðan af skaga er allt gott að frétta biðjum innilega að heilsa hafið það sem allra best heirumst fljótlega kæra frænka kveðja Ragnheiður
01. ágúst 2006 klukkan 03:27
íris skrifar ...
 
Gott að vita að allt hafi gengið vel
kveðja Íris
01. ágúst 2006 klukkan 03:29
Bogga skrifar ...
Ekki ónýt byrjun á nýjum stað:
nr.1 Kaupa föt
nr.2 Fara á rúntinn!!!!
Æði, svona á þetta að vera :)
Hrikalega stórt *faðmlag* til ykkar allra, þið eruð dugleg :-D
Kveðja, Boggan
01. ágúst 2006 klukkan 13:23
Dísin skrifar ...
Gaman að vita að þið eruð komin á leiðarenda og að ferðin gekk vel.... Kveðja Dísn
01. ágúst 2006 klukkan 16:16
Lilja Guđrún skrifar ...
 
ooo mig langar til útlanda:) og Í HM....
voðalítið að frétta... krílið er enn á sínum stað.... fór í skoðun á skaganum í gær... á að koma aftur á morgun... vonandi að þetta komi nú um helgina.

bið að heilsa ykkur og skilaðu kveðju til Dagmars.

kv
Lilja og co
02. ágúst 2006 klukkan 16:54

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan