komin með bráðabirgðaheimili:O)
Núna erum við flutt inná Einar og Dagmar og verðum hér í 2 vikur. Við erum öll bara að reyna að koma okkur fyrir en þetta er bara voða kósí hjá okkur. Við skráðum okkur inní landið í gær og fórum svo til þýskalands. Við fórum með Einari og Dagmar og Óskari og Hafdísi. Við Binni villtumst aðeins á leiðinni og þá fékk ég að dusta rykið af þýskunni minni til að geta spurst til vegar, ég er nú orðin ansi ryðguð í þýskunni en tókst samt að gera mig skiljanlega og við fundum staðinn sem við vorum að leita að. Við versluðum í matinn í Þýskalandi og svo alveg helling af áfengi. Það eru verslanir á landamærunum og þar er verðið algjör brandari
. Þar var m.a. hægt að kaupa 3 kassa af bjór á ca. 1600 kr. Við birgðum okkur upp á léttvíni og bjór og sátum svo langt frameftir og sötruðum á þessu og það var bara mjög gaman hjá okkur. Við ætlum svo bara að taka því rólega í dag (sumir þunnir og svoleiðis, he,he
). En ég, Dagmar og Hafdís ætlum að fara "stelpuferð" útí bæ í dag, kíkja í H&M og eitthvað fleira skemmtilegt.
Ég verð nú að minnast á það hvað ég er ánægð með hvað allir eru duglegir að skrifa í athugasemdir og í gestabókina, ég hlakka alltaf til að kíkja á bloggið og sjá hvort einhver hefur skrifað
, (gott að mér leiðist ekki, he,he...)
Ég læt þetta gott heita í bili.
Saknaðarkveðjur.....![]()
Þetta hljómar eins og draumur í dós fyrir mér :-D Þið getið þá kælt ykkur niður í öllum hitanum með þessum ódýra og góða svaladrykk. Ég fór í ríkið í gær og keypti eina kippu á 1.190 kr.... 3 kassar kosta þá....rúmlega fjórtánþúsundkall!!! Jiii hvað þið hljótið að hafa það gott þarna.
Sakna þín ótrúlega mikið :-*
Boggan
Þín er sárt saknað héðan....bið að heilsa í bili...
Dísin
voðalítið að frétta... krílið er enn á sínum stað.... fór í skoðun á skaganum í gær... á að koma aftur á morgun... vonandi að þetta komi nú um helgina.
bið að heilsa ykkur og skilaðu kveðju til Dagmars.
kv
Lilja og co
Jáhá þið getið aldeilis legið í bjórnum og haft það gott.
En ég væri sko alveg til að kíkja til þín í H&M leiðangur alltaf gaman að versla þar.
En gaman að sjá hvað allt gengur vel og við biðjum að heilsa öllum
Skagakveðjur Sibba og CO
Já þetta með bjórinn er alveg hreint magnað ég held að ég myndi lifa í draumalandi þarna úti;) tíhí.. Hlakka til að heyra í ykkur aftur en passaðu þíg nú á bjórnum þótt ódýr sé;)
held þetta sé nóg í bili..... heyrumst sem syrst og við biðjum að heilsa :*
Frábært hvað allt gengur vel og gaman að geta fylgst með ykkur á þessari síðu:)
kveðja úr höfuðborginni
kveðja Tóta frænka