Rólegheit.

03. ágúst 2006 klukkan 14:01

Í gær var bara afslöppunardagur hjá okkur. Strákarnir voru á náttfötunum langt fram eftir degi en fóru svo í göngutúr með mér eftir kvöldmat.  Við ætluðum að leita að götunni þar sem íbúðin okkar er en fundum hana ekki.  En svo var hún víst þarna rétt hjá, við hefðum þurft að labba pínulítið lengur, þá hefðum við fundið hana.  Ég fór útí bæ í gærdag með Hafdísi.  Ég fann mér LOKSINS veski/tösku, er búin að leita af svoleiðis heillengi, en ég fann mér engin föt í þessari ferð, verð bara að gera aðra tilraun sem fyrst.  Við settumst síðan inná kaffihús og fengum okkur bjór og heitt Nachos, hrikalega gott.

Við erum loksins búin að tæma myndavélina inná tölvuna, en þá klikkar hún, gæti verið vírus eða eitthvað í henni, það er í athugun.  Þannig að ég get ekki sett myndir inná síðuna eins og er, því miðurFýldur.  Við notum tölvuna hjá Einari og Dagmar á meðan, þá get ég allavega skrifað/ bullað eitthvaðGlottandi.

Í dag ætlum við eitthvað í búðarölt, held ég.  Skoða útsölur á húsgögnum og svoleiðis.  Það er einhver kirkjumarkaður hér í bænum þar sem hægt er að kaupa notuð hræódýr húsgögn, ég kíkti þangað í gær og sá þar ágætis eldhúsborð, sá ekkert á því og kostaði ca. 2500 kr.  það koma ný húsgögn daglega þannig að það er ágætt að fylgast með þessu ef maður skildi detta inná eitthvað flott, en annars er frekar mikið af drasli þarna.  Við erum samt búin að finna sófasett sem okkur langar í 3+2 sófar, kremlitað og kostar u.þ.b 40,000 kr. það finnst mér ekki mikið verð fyrir nýtt sófasett.

Jæja ég held það sé nóg komið af bulli í bili, bless í bili...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Helena Rós skrifar ...
hæhæ frábært að geta keypt svona ódýr húsgögn úti og hvað þá bjór :)
kysstu núna strákana frá mér, söknum ykkar alveg rosalega :*

kv. Helena Rós og Katrín Fjóla lasarusar
03. ágúst 2006 klukkan 16:47
ragga skrifar ...
40.000 fyrir nýtt sófasett er nú bara ekki neitt!!!! en um að gera nýta sér þennan markað þarna, það finnst alltaf eitthvað flott inn á milli:)
03. ágúst 2006 klukkan 16:48
Bogga skrifar ...
Híhí, þú verður að senda mér mynd af þessari tösku svo ég trúi þessu. Þýðir þetta að þú sért hætt að nota Apótek-pokann?? Þetta hlýtur að vera rosalega flott taska fyrst þú fórnar pokanum fyrir hana!!!
Ég held að það sem við vorum að tala um um daginn sé að verða að veruleika: fólk er loksins að taka við sér hér í bæ og gengur með svona poka óspart við hvaða tækifæri sem er. Mér finnst ég bara verða að láta greyin vita að þetta sé ekki kúl lengur því sú sem fann upp trendið hefur keypt sér tösku!!! Hahahaha :)
Knús til ykkar allra :-*
Boggan
03. ágúst 2006 klukkan 17:45
Ragnheiđur frćnka og family skrifar ...
 
hæ hæ ég er hjartanlega sammála Boggu með töskuna til lukku með veskið kveðja Ragnheiður
04. ágúst 2006 klukkan 18:19

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan