Skemmtilegur dagur.
03. ágúst 2006 klukkan 21:48
Þetta hefur nú verið fínn dagur hjá okkur, við fórum útí bæ og pappíruðumst aðeins og fórum svo á ströndina. Jóhann Ingi var skíthræddur við sjóinn til að byrja með en var svo kominn á fullt eftir smávegis aðlögun. Þeir bræður veltu sér í sandinum og skoluðu sig svo í sjónum til skiptis, þetta var voðalegt sport. Svo fór að rigna og þá létum við okkur hverfa.
Næst fórum við að skoða leikskólann, okkur leist öllum mjög vel á hann, og ætluðum ekki að ná strákunum aftur út. Ásbjörn fer líklega á deild með þremur íslenskum krökkum, þannig að þau ættu kanski að geta hjálpað honum að læra dönskuna. Þeir eiga að byrja 16 ágúst en meiga koma í heimsókn í næstu viku og sjá hólfin sín og og hitta krakkana, það voru svo margir í sumarfríi núna. Við erum alveg guðs lifandi fegin með það hvað þeim leist vel á þetta.
Í kvöld ætlum við bara að taka því rólega, við Dagmar ætlum að vígja nýju rauðvínsglösin og strákarnir eru að kæla sér bjór.
Já og á morgun fáum við að skoða íbúðina okkar
. Við fundum borðstofu/eldhússtóla í dag með háu baki úr leðri á rúmlega 2000 kr. stk., þeir eru á 50 prósent afslætti, erum að spá í að skella okkur á þá á morgun.
Jæja þá í þetta sinn.... knús og kossar
Næst fórum við að skoða leikskólann, okkur leist öllum mjög vel á hann, og ætluðum ekki að ná strákunum aftur út. Ásbjörn fer líklega á deild með þremur íslenskum krökkum, þannig að þau ættu kanski að geta hjálpað honum að læra dönskuna. Þeir eiga að byrja 16 ágúst en meiga koma í heimsókn í næstu viku og sjá hólfin sín og og hitta krakkana, það voru svo margir í sumarfríi núna. Við erum alveg guðs lifandi fegin með það hvað þeim leist vel á þetta.
Í kvöld ætlum við bara að taka því rólega, við Dagmar ætlum að vígja nýju rauðvínsglösin og strákarnir eru að kæla sér bjór.
Já og á morgun fáum við að skoða íbúðina okkar
Jæja þá í þetta sinn.... knús og kossar
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
kveðja Íris