Íslendingasamkoma í dag.
06. ágúst 2006 klukkan 02:23
Jæja, dagsplanið breyttist nú eitthvað hjá okkur í dag, við ákváðum að fresta Legolandi til morguns og skruppum í staðinn til Þýskalands. Við ætluðum að reyna að finna húsgagnaverslanir á landamærunum en fundum enga í þessari ferð, strákarnir skruppu síðan aðeins á ströndina og svo fórum við á íslendingasamkomu útí skógi. Það kom hver með á grillið fyrir sig og þar var svakalega fínn leikvöllur fyrir börnin. Við hittum mjög fínt fólk og þetta var alveg virkilega gaman.
Í kvöld fóru Binni og Einar yfir til Óskars og Hafdís kom til okkar Dagmar, við fengum okkur hvítvín og spiluðum, voða kósí hjá okkur.
Þetta verður bara stuttur pistill fyrir þennan dag, bless í bili.....

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir