Legoland.
07. ágúst 2006 klukkan 20:00
Í gær skelltum við okkur í Legoland, þetta var örugglega heitasti dagur sem við höfum upplifað og miðstöðin í "sænska eðalvagninum" okkar var ekki alveg að ráða við þetta, við vorum gjörsamlega að stikna á leiðinni
. Við vorum að í rúmlega 6 klst. í Legolandi, þetta er ekkert smá flott þarna og mörg skemmtileg tæki bæði fyrir börn og fullorðna, þó aðallega fyrir börn. Mér tókst að fá far undan hlýrabolnum! Er við það að vera skaðbrennd, mig svíður samt ekkert núna í dag, vona bara að ég fái einhvern lit
. Við tókum alveg helling af myndum og látum þær líka inn við fyrsta tækifæri.
Klukkan var rúmlega 8 þegar við fórum úr Kubbalandi (eins og Ásbjörn kallaði það), þá drifum við okkur að fá okkur að borða og héldum svo heim á leið. Heimferðin tók 1,5 klst. og strákarnir steinsofnuðu á leiðinni og sváfu alveg til morguns.
Binni byrjaði í skólanum í dag og líkaði bara vel, fannst þetta frekar auðvelt svona fyrsta daginn
, vonandi verður þetta allt bara frekar auðvelt.
Við strákarnir vorum bara að dúlla okkur í dag. Fórum aðeins á róló í morgun. Þeir gátu því miður ekki notað rennibrautina því þeir brenndu sig bara á henni og svitinn var farinn að leka niður bakið á mér, ég var voða fegin þegar Ásbjörn bað um að fara heim, komast inn í kælingu!! Svo kíktum við aðeins á kirkjumarkaðinn, sá þar eldhúsborð sem ég væri til í að kaupa, en ætla að sjá til. Nú erum við bara heima í róleg heitum og ætlum kanski að kíkja aftur á róló á eftir, það er allavega kominn smá vindur núna (aldrei nokkurntímann hefði mér dottið í hug að ég færi að tilbiðja vindinn!!!!), það er 25 stiga hiti í forsælu núna, hitinn fór yfir 40 stig í sólinni í gær
.
Jæja þá enn og aftur... bless í bili...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
kv.Ella Þóra
Ég væri alveg til í að fá smá af þessum hita hingað á Skerið. Gott að þið skemmtið ykkur vel :)
Kveðja,
Bogga
Og það væri nú ágætt að fá smá að hitanum hingað heim.
En við fylgjumst með ykkur
Kveðjur af Reynigrundinni
Núna fer ég að fara koma til danmerkur:) hlakka svoo til:) þá kem ég pottþétt til ykkar í heimsókn.. ehm.. ef ég rata..!!!
;)