Rólegheit.

11. ágúst 2006 klukkan 02:29
Hæ, hæ!!
Ég er nú búin að taka smá pásu frá skrifunum, enda hefur ekkert verið að gerast hjá okkur.  Við strákarnir bíðum bara eftir að dagurinn líði og Binni er í skólanum.  Ég dunda mér við að lesa auglýsingabæklinga, fylgist vel með tilboðum, sérstaklega á húsgögnumHlæjandi.  Í dag fóru ég og strákarnir í heimsókn á leikskólann, þeir voru alveg jafn ánægðir og vildu ekki fara heim.  Þeir byrja næsta miðvikudag.  Leikskólinn er opinn frá kl.06,30 - 16,45 og þeir þurfa helst að vera komnir fyrir kl. 9 en það má sækja hvenær sem er, það er ekki ætlast til að það sé notaður allur dagurinn (enda ansi margir klukkutímar), en það má samt alveg ef þess þarf.  Svo þarf að smyrja nesti sem þeir taka með sér og einn ávöxt.  Það er ekki skaffaður neinn matur þarna.  Svolítið skrítið miðað við "lúxusinn" á Íslandi.  En svona er þetta víst bara!!
Það styttist í að við fáum íbúðina okkarBrosandiGlottandi, það verður æðislegt og ég hlakka svo til.  En við höfum það samt mjög fínt hérna hjá Dagmar og Einari og sambúðin gengur alveg ótrúlega vel, framar björtustu vonum.
Við Dagmar fórum í bæinn í dag, fórum að sækja eyðublöð fyrir húsaleigubótum og panta viðtal hjá bænum til að komast á tungumálanámskeið og til að fá ýmsar upplýsingar, tókum svo rölt um miðbæinn og kíktum í búðir.  Við gerðum nýja uppgötvun, þ.e. við fundum nýja leið í bæinn og vorum bara ca. 2-3 mín. að keyra, hrikalega klárarGlottandi.

Bless í bili...... og saknaðarkveðjur................
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bogga skrifar ...
phew hvað ég er ánægð að heyra frá þér. Var sko búin að ákveða að fara ekkert að sofa fyrr en þú værir búin að skrifa hérna... þurfti sem betur fer ekkert að vaka fram á nótt neitt :) Hefði samt alveg gert það!!!
Héðan er allt fínt að frétta, er að fara í bústað á morgun til Dísu. Það stefnir í svaka afmælisfjör hjá henni, standandi partý alla helgina bara! Vildi samt óska að þú værir með :(
Verð að segja þér eitt, ég var að dúlla mér eitthvað hérna heima um daginn og heyrði þá einhver læti fyrir utan. Bíll rann í hlað og einhverjir krakkar voru að kallast á... í smá stund varég alveg viss um að þú værir að koma í heimsókn með strákana!!! Varð svo bara smá klökk þegar ég mundi að þið væruð farin út og þetta gætuð alls ekki verið þið :( Svona er þetta bara!
Bið að heilsa Binna og strákunum, vonandi líður tíminn fljótt þar til þið komið aftur :)
Kveðja,
Boggan
11. ágúst 2006 klukkan 03:57
Dísin skrifar ...
Hæ skvísa..... ég segi það sama og Bogga. Ég vildi óska þess að þú kæmist í afælisteitið hjá mér.....ég verð með stelputeiti á föstudagskvöldið og svo verður vinahópurinn á laugardagskvöldið...það á sko að vakna í þynnku báða dagana ha ha.... annars allt gott að frétta og héðan er ykkar sárt saknað....bæó Dísin
11. ágúst 2006 klukkan 14:49
ragga skrifar ...
Hæ:) frábært að sambúðin gangi svona vel:) maður hefði haldið að þetta yrði dáldið mikið erfitt.. en þetta er greinilega að virka:) frábært;)

Bara svo þú vitir Ágústa þá er ég að fara flytja til Aarhus:) ef allt gengur vel þá fer ég eftir 2 mánuði:) flyt í úthverfi sem heitir Trige og þar búa um 3000 manns:)

Bara að gefa smá infó;)
kveðja Ragga.
11. ágúst 2006 klukkan 16:09

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan