Verslunarferð!!

12. ágúst 2006 klukkan 15:30

Jæja nú erum við byrjuð að versla okkur húsgögn!!  Í gær keyptum við sófasett 3+2, cappochinobrúnt og 6 borðstofustóla.  Og í morgun fóru Binni og Einar til Vejle að kaupa borðstofuborð, það er 90x200, úr massívri eik, fékk það á ca. 12-13,000.  Svo erum við líka búin að finna sjónvarp en eigum eftir að kaupa það.  Við fáum sófann og stólana á næsta miðvikudag.  Svo förum við annaðhvort í dag eða á morgun að skoða þvottavél og eldhúsborð, fundum það notað á netinu.  Ég var búin að finna voða flotta hillusamstæðu en svo var hún seld þegar við fórum að ath. með hanaÓákveðinn.
Í gærkvöldi skelltum við okkur út að borða á Mongólískan veitingastað. Umm.. það var hrikalega gott og við borðuðum á okkur gat.  Maður velur bara ferskt grænmeti og hrátt kjöt á disk, velur svo sósur sem notast sem krydd, réttir manni diskinn og hann steikir þetta fyrir framan mann, svo voru þarna djúpsteiktar rækjur (ég er nýfarin að borða svoleiðis!!), djúpst. kjúklingur, fiskur o.fl. og hrísgrjón. Og maður mátti borða eins mikið og maður gat í sig látið Brosandi.
Við Dagmar kíktum aðeins í búðir áðan með strákana og fórum svo smá rúnt, fundum stríðsminjasafn um fyrri heimsstyrjöldina, þ.e. þegar danir fengu þennan landshluta (Sönderborg og eh. hér í kring) aftur til baka eftir að þjóðverjar höfðu náð honum af þeim.  Okkur langar að skoða það við tækifæri, örugglega mjög spennandi.

Læt þetta gott heita í bili, bless, bless...................

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Maja skrifar ...
 
Hæ hæ

Það er flott hvað það gengur vel hjá ykkur, gott að strákunum leist vel á leikskólann, það er gaman að geta fylgt með ykkur hér á blogginu, flott hjá þér Ágústa, jæja bið að heilsa í bili Maja á skaganum
12. ágúst 2006 klukkan 16:05
ragga skrifar ...
Hlakka til að sjá öll nýju húsgögnin..;) hehe... ég ætla líka kaupa allt úti.. enda á ég nú ekki mikið hérna heima;);) æh líka bara gaman kaupa nýtt... enda smekkurinn orðin smá öðruvísi;)
Gott að allt gengur vel:):)
13. ágúst 2006 klukkan 15:36

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan