Singing in the rain:o/
14. ágúst 2006 klukkan 15:03
Undanfarna daga hefur bara rignt, það er svosem ágætt að fá pásu frá hitanum en þetta er eiginlega einum of. Í fyrradag keyrðum við til Padborg, sem er við landamæri Þýskalands og keyptum þvottavél, það voru svört ský yfir okkur og þrumuhljóð og svo kom hellidemba. Í gær fóru ég, Binni og Jóhann Ingi til Tönder og keyptum skenk, og auðvitað var hellidemba á heimleiðinni, maður varla sá út.
Við förum að skoða eldhúsborð í kvöld og ef við kaupum það þá erum við búin í húsgagnainnkaupum í bili. Við keyptum sófasettið á síðasta föstudag og í gær var það búið að lækka um 12000 kr., við ákváðum að fara í búðina og athuga hvort við fengjum það ekki á þessu verði því við erum ekki einu sinni búin að fá sófasettið og það var bara ekkert mál. Við ætlum að safna okkur eikarhúsgögnum í stofuna og kaupa bara eitt og eitt í einu því þau eru frekar dýr. Ég held við séum búin að gera mjög góð kaup hingað til, við erum búin að kaupa sófasett, borðstofuborð + 6 stóla, skenk, sófaborð, eldhúsborð + 4 stóla og þvottavél fyrir tæplega 111,000 kr.
Við flytjum svo í okkar íbúð á morgun
og hinn daginn byrja strákarnir í leikskólanum, þeim er farið að hlakka mikið til, komnir með hálf leið á hvort öðrum. Þeir splittuðust í fyrsta skiptið í tvær vikur í gær. Þá var Ásbjörn hjá Dagmar og Einari á meðan við hin fórum að kaupa skenkinn. Og þeir nutu sín báðir svo vel, sérstaklega Ásbjörn, honum fannst æðislegt að fá að vera hjá þeim.
Ég held ég verði nú að minnast á það hvað "sænski eðalvagninn" okkar hefur staðið sig vel, það er gjörsamlega hægt að flytja næstum allt í honum. Hann var stappaður af drasli á leiðinni hingað til Danmerkur svo er búið að flytja í honum 2m langt borðstofuborð, þvottavél og stóran skenk og meðaleyðslan hefur minnkað um næstum helming þrátt fyrir alla þessa níðslu. Vona bara að hann haldi áfram að vera svona duglegur
(allavega fram að næsta sumri)..
Bless í bili................
Við förum að skoða eldhúsborð í kvöld og ef við kaupum það þá erum við búin í húsgagnainnkaupum í bili. Við keyptum sófasettið á síðasta föstudag og í gær var það búið að lækka um 12000 kr., við ákváðum að fara í búðina og athuga hvort við fengjum það ekki á þessu verði því við erum ekki einu sinni búin að fá sófasettið og það var bara ekkert mál. Við ætlum að safna okkur eikarhúsgögnum í stofuna og kaupa bara eitt og eitt í einu því þau eru frekar dýr. Ég held við séum búin að gera mjög góð kaup hingað til, við erum búin að kaupa sófasett, borðstofuborð + 6 stóla, skenk, sófaborð, eldhúsborð + 4 stóla og þvottavél fyrir tæplega 111,000 kr.
Við flytjum svo í okkar íbúð á morgun
Ég held ég verði nú að minnast á það hvað "sænski eðalvagninn" okkar hefur staðið sig vel, það er gjörsamlega hægt að flytja næstum allt í honum. Hann var stappaður af drasli á leiðinni hingað til Danmerkur svo er búið að flytja í honum 2m langt borðstofuborð, þvottavél og stóran skenk og meðaleyðslan hefur minnkað um næstum helming þrátt fyrir alla þessa níðslu. Vona bara að hann haldi áfram að vera svona duglegur
Bless í bili................
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Það verður ekki mikið mál að flytja á morgun fyrst þið búið svo vel að eiga þennan eðalvagn ;) Hvað verður langt þangað til þið fáið síma og netið í íbúðina ykkar?
Kveðja,
Bogga
Frábært að þið eruð að fá ykkar eigið heimili :-)
Hvenar fara myndir inn á síðuna?
Síminn verður rauðglóandi þegar hann loks kemur. Það langa öllum að heyra í ykkur.
Kv Dagný
Myndirnar koma þegar við fáum netið. LOFA ÞVÍ :O)
Gangi ykkur vel
kveðja af reynigrundinni