Flutt!!

19. ágúst 2006 klukkan 23:41
Heil og sæl.
Þá erum við loksins flutt.  Erum búin að vera á fullu að koma okkur fyrir og versla endalaust smotteríBrosandi.  Íbúðin er bara mjög fín, ansi stór á okkar mælikvarðaGlottandi, strákarnir eru saman í herbergi og þar er nóg pláss.  Við erum ekki enn komin með símanr. og internet en það er búið að panta það svo þetta hlýtur að smella allt saman eftir helgi.

Strákarnir eru byrjaðir í leikskólanum, Ásbirni finnst þetta erfitt, sérstaklega vegna þess að hann getur ekki talað og heldur ekki skilið hina en íslensku krakkarnir eru mjög dugleg að vera með honum og Ásbjörn spyr þau hvað hitt og þetta þýðir á dönsku, svo sagði fóstran mér að hinir krakkarnir væru mjög áhugasöm um hann og hann var mjög ánægður að heyra það.   Þegar hann er búinn að aðlagast vel þá fer hann í dönskukennslu hjá einhverri konu í leikskólanum til að styrkja hann fyrir grunnskólann.
Jóhann Ingi er mjög ánægður og leikur og talar við hvern sem er, hann vildi meira að segja borða með annarri deild í ávaxtastundinni og fékk að gera það.

Við erum allavega öll mjög ánægð og verðum það vonandi áfram.
Læt vita af okkur þegar við erum komin með internet, 
 bestu kveðjur...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Berglind frænka skrifar ...
 
Gaman að heyra að allt gengur vel, Allt gott að frétta af okkur í Garðhúsum, vorum að koma heim af menningar"nótt" (klukkan er samt bara 20.20 !!!!!!!! þannig að nóttin er bara ung)Það verður spennandi að heyra hvernig strákunum gengur að ná tökum á dönskunni.

Kveðja Berglind og co.
20. ágúst 2006 klukkan 01:24
Lilja Guðrún skrifar ...
Frábært að allt gangi vel. Við erum komnar heim og litla sefur bara og drekkur....

gangi ykkur vel og við verum í samandi.

kv
Lilja og CO
20. ágúst 2006 klukkan 04:19
valla frænka skrifar ...
 
hæhæ gott að heyra að þið eruð búin að fa íbúðina , vorum að koma að vestan í gær amma og afi eru en þar(afi vill helst ekki fara heim,vill bara vera) en allavegana gott að vita að strákonum líður vel ,sakkna ykkar rosarosa mikið hlakka mikið til jóla bæbæ snúllur
20. ágúst 2006 klukkan 04:26
Rakel skrifar ...
 
Hæ hæ,

Æðislegt að sjá hvað allt hefur gengið vel hjá ykkur. Við hugsum mikið til ykkar.
Annars er Steinar búin að vera að vinna alla helgina. það var æðislegt hjá okkur í Búlgaríu. Mjög ódýrt og gott að vera þar. En við heyrum í ykkur sem fyrst
Bestu kveðjur,
Rakel :)
20. ágúst 2006 klukkan 19:53
ragga skrifar ...
Strákarnir eiga eftir að plumma sig vel:) þeir verða sko fljótir að ná þessu:)
21. ágúst 2006 klukkan 13:04
Maja skrifar ...
 
Hæ hæ

Það er gott að heyra að þið eruð ánægð og strákarnir verða örugglega fljótir að læra dönskuna, bið að heilsa ykkur kv Maja og fjölskylda
21. ágúst 2006 klukkan 18:36

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan