Farin að hjóla.
22. ágúst 2006 klukkan 03:15
Jæja nú erum við búin að koma okkur ágætlega fyrir. Ég er búin að dusta rykið af hjólinu mínu, ég hef ekki hjólað í mánuð og er gjörsamlega þollaus
. Ég hjólaði með strákana í leikskólann í morgun, þeir voru í hjólavagninum og ég var næstum búin á því og það hjálpaði ekki til að ég var í peysu (til að byrja með!!). Strákarnir fóru að hjóla hér fyrir utan í gær, Ásbjörn settist bara uppá hjólið sitt og hjólaði af stað án hjálparadekkja og hjólaði eins og hann hafi aldrei gert neitt annað, ekkert smá duglegur. Hann ætlar að hjóla í leikskólann á morgun eða hinn, það er ekkert mjög langt í burtu, 5-7 mín. að hjóla.
Svo klikkaði flotta þvottavélin okkar
, hún vatt ekki og við skiluðum henni og fengum aðra, tölvan í vélinni var víst ónýt og við fengum AEG lavamat í staðinn, hún er vonandi ágæt. Verður bara að duga í 4 ár!!
Á síðasta laugardag fórum við á landamærin að versla, versluðum í matinn og misstum okkur aðeins í áfengiskaupum
, það var bara ekki annað hægt!!
En annars var helgin bara róleg og afslöppuð, hvíldum okkur eftir flutningana.
Skál í botn....
Svo klikkaði flotta þvottavélin okkar
Á síðasta laugardag fórum við á landamærin að versla, versluðum í matinn og misstum okkur aðeins í áfengiskaupum
En annars var helgin bara róleg og afslöppuð, hvíldum okkur eftir flutningana.
Skál í botn....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
kveðja af klakanum
Ella
Það eru sex bjórar á verði eins!!!!! Verður varla betra en það ;)
Gott að heyra að þið eruð að koma ykkur fyrir, hugsa til ykkar á hverjum degi :-*
Kveðja, Boggan
Berglind, frænkan í Garðhúsum.
Kveðja Ágústa.
Vanta þig ekki snyrtingu á laugardaginn, solla klippikló kemur í bæinn
hér er allt í góðu valgerður er upp í Skorholti og biður að heilsa strákunum.
Mamma og pabbi eru enn fyrir vestan, voru á Ísafirði í dag fóru á kaffihús og í gönguferð um gamla bæinn.Þau koma heim á fimmtudaginn
Allir biðja að heilsa
Tóta frænka
Hef ekki verið dugleg að skoða bloggin....en það fer nú að bætast úr því fyrst að skólinn byrjar á morgun....hugsa oft til ykkar.....æðislegt að allt gengur svona vel hjá ykkur ...kossar og knús Dísin
p.s fer að bæta mig í blogginu.... :)
http://visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20060824/FRETTIR02/60824011
Annars er búið að vera blautt hérna líka svo þið hefðuð orðið alveg eins blaut hjólandi hér um bæinn eins og þarna úti ;)
Knús og kremjur,
Boggan
En hitinn bætir þetta upp:O)