Lítið að frétta!!
25. ágúst 2006 klukkan 15:29
Hæ, hæ!!
Það er nú ósköp lítið að gerast hjá okkur þessa dagana. Við strákarnir hjólum alla morgna í leikskólann og það gengur alveg súper vel, nema Jóhann Ingi er frekar fúll með að þurfa að sitja í vagninum og Ásbjörn fær að hjóla, en hann lætur sig samt hafa það á endanum. Í morgun var fyrsti dagurinn sem Ásbjörn sleppti mér strax í leikskólanum, hann fór bara að leika sér og var voða glaður
, en þá þurfti hinn náttúrulega að taka við og vildi ekki sleppa mér
, en hann átti það svosem inni, búinn að vera rosalega duglegur hingað til, en hann var fljótur að gleyma sér, það liðu varla 5 mín., þá var hann farinn að leika sér og ég gat bara farið með góðri samvisku þennan daginn
.
Á morgun verður nóg að gera hjá okkur, okkur er boðið í heimsókn til Ísabellu sem er með strákunum á leikskóla, svo er eitthvað um að vera hérna útí garði, Kammerfest heitir það, þar verða leiktæki fyrir börn og fullt af sölubásum og svo um kvöldið koma Einar og Dagmar í mat til okkar, við ætlum að vígja borðstofuborðið!!
Og á sunnudaginn slöppum við örugglega bara af, förum í hjólatúr og eitthvað svoleiðis skemmtilegt.
Ég og Dagmar fórum í bæjarferð áðan, kíktum í búðir náttúrulega, það er alltaf svo gaman og viti menn, ég keypti mér peysu, það er alltaf svoleiðis að þegar maður ætlar ekkert að kaupa sér þá finnur maður alltaf eitthvað flott
.
Bless í bili.. og góða helgi...
Það er nú ósköp lítið að gerast hjá okkur þessa dagana. Við strákarnir hjólum alla morgna í leikskólann og það gengur alveg súper vel, nema Jóhann Ingi er frekar fúll með að þurfa að sitja í vagninum og Ásbjörn fær að hjóla, en hann lætur sig samt hafa það á endanum. Í morgun var fyrsti dagurinn sem Ásbjörn sleppti mér strax í leikskólanum, hann fór bara að leika sér og var voða glaður
Á morgun verður nóg að gera hjá okkur, okkur er boðið í heimsókn til Ísabellu sem er með strákunum á leikskóla, svo er eitthvað um að vera hérna útí garði, Kammerfest heitir það, þar verða leiktæki fyrir börn og fullt af sölubásum og svo um kvöldið koma Einar og Dagmar í mat til okkar, við ætlum að vígja borðstofuborðið!!
Og á sunnudaginn slöppum við örugglega bara af, förum í hjólatúr og eitthvað svoleiðis skemmtilegt.
Ég og Dagmar fórum í bæjarferð áðan, kíktum í búðir náttúrulega, það er alltaf svo gaman og viti menn, ég keypti mér peysu, það er alltaf svoleiðis að þegar maður ætlar ekkert að kaupa sér þá finnur maður alltaf eitthvað flott
Bless í bili.. og góða helgi...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
venlig hilsen
hi hi