Gaman í gćr!!

27. ágúst 2006 klukkan 14:16

Hæ, hæ!!
Við skemmtum okkur bara alveg konunglega í gærHlæjandi
Ég og "gaurarnir" mínir hjóluðum til Ísabellu, þar fórum við útí garð og fengum kaffi og með því og krakkarnir róluðu, og hoppuðu á risa trampólíni, þeim fannst alveg rosalega gaman.  Á heimleiðinni hjólaði Ásbjörn "aðeins" of hratt og datt alveg hrikalega illa, hjólið var í hálfgerðri kássu (gátum samt rétt úr því aftur) og Ásbjörn allur rispaðurGráta, en tilhugsunin um Súpermanplástur græðir öll sár og hann var fljótur að jafna sig og hjóla aftur af stað.
Binni fór svo með strákana á þetta kammerfest hér fyrir utan, þetta voru víst hálfgerðir sígaunar að reyna að selja eitthvað og okruðu svo á spennandi leiktækjum fyrir börn, en strákarnir skemmtu sér allavega konunglega og komu heim með risastóra uppblásna hamra og það tístir í þeim þegar það er lamið með þeim, æðislega skemmtileg leikföngÓákveðinn.
Um kvöldið komu svo Einar, Dagmar og Örn í mat til okkar og við vígðum borðstofuborðið!!  Maturinn var rosalega góður (þó ég segi sjálf fráSkömmustulegur), ég bjó til nýjan link: uppskriftir, þar setti ég inn uppskriftina af kjúklingnum sem ég gerði, þið verðið að prófa, þetta er GEÐveikt gott.  Eftir matinn fengum við okkur osta, vínber og hvítvín og höfðum það huggó.  Það er frekar erfitt að finna góða osta hérna, ég fann Camembert og svo einhvern annan sem endaði í ruslinu!! Við verðum bara að vera dugleg að prófa okkur áfram í þessu.  Það er líka erfitt að finna gott brauð hérna, ég er alltaf á leiðinni að fara að baka brauð sjálf, ég vona að ég láti verða að því fljótlega.

Jæja, nú er nóg komið af bulli í bili...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Ella Ţóra skrifar ...
 
Æi greyið, vill til að hann er sterkur strákurinn:)

Frábært að þú ætlir að setja nýjan vef með uppskriftum, verður gaman að gera prufað réttina þína sérstaklega þar sem ég elda rosalega mikið:) hehehe en ég elda einmitt þá helst kjúklingarétti:)

kveðja af klakanum
Ella frænka
27. ágúst 2006 klukkan 16:36
Dagný skrifar ...
 
Duglegur "ermannfrændi" :-)
Kv Dagný frænka
27. ágúst 2006 klukkan 20:54

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan