Allir að hjóla!!

31. ágúst 2006 klukkan 00:39
Það er nú alltaf jafn rólegt hjá mér þessa daganaÓákveðinn,  ég fékk reyndar samþykki fyrir þessum "aumingjastyrk" sem ég sótti um (hann heitir á dönsku Starthjælp),  eftir ca. 2 vikur verð ég send í viðtal til að meta mig inn í málaskólann sem verður 3 daga í viku og svo á ég að vinna (sjálfboðavinnu) 2 daga í viku, það er til þess að ég læri að tala innan um fólk,  mér skilst að ég megi koma með einhverjar óskir um það hvar ég vil vinna en svo verður að koma í ljós hvort það gangi upp.  Til að halda þessum styrk verð ég að sýna framá að ég sé að sækja um vinnu.  Mér finnst það samt hálf hallærislegt að vera í skóla mestallan daginn og verð samt að sækja um vinnu, hvað ef ég yrði svo ráðin??, þá þyrfti ég náttúrulega að hætta í skólanum!!  En þetta kemur allt í ljós.  Jóhann Ingi er orðinn rosalega duglegur að hjóla,  ég skellti mér á línuskauta um daginn og strákarnir hjóluðu og það gekk bara súper vel, svo í gær hjóluðum við öll saman útí búð (5,5 km fram og til baka), það gekk alveg ótrúlega vel, strákarnir blésu ekki úr nös alla leiðina. En Jóhann Ingi er samt frekar mikið utan við sig og orðið "HA" er frekar mikið "inn" hjá honum (nema hann sé farinn að heyra svona illa!!),  Svo hjóluðum við saman í leikskólann í morgun, Jóhann Ingi rosa stoltur að vera á sínu hjóli en ekki í vagninum, það tók okkur ca. 20 mín. að hjóla þangað, venjulega erum við um 10 mín. eða minna.  En okkur liggur nú ekki mikið á, það er ekki eins og það sé eitthvað brjálað að gera hjá mérÓákveðinn.  Ég er búin að vera að dunda mér við baka brauð, gerði brauðbollur og gerlaust brauð og kanilsnúða, það tókst bara þokkalega, ætla að baka fleiri brauð á morgun.

Jæja þá í þetta sinn... bið að heilsa í biliKoss.
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Sibba skrifar ...
Hæ Sæta
Gaman að sjá hvað allt gengur vel og hvað þið eruð orðin "dönsk" heeh bara alltaf hjólandi og kaupandi bjór.
En ég fylgist með á síðunni og spjalla svo á msn bið að heilsa í bili .

Fjölskydan á Reynigrundinni
31. ágúst 2006 klukkan 01:47
gylfi skrifar ...
 
hæhæ hvað er msn-ið hjá þér??

eða ertu til í að adda mér inn á msnið hjá thér það er gylfiko@btnet.is og hjá selmu er það selmamargret@hotmail.com

vertu í bandi

hilsen Gylfi og Selma
31. ágúst 2006 klukkan 03:33
Ásta Laufey skrifar ...
Bara að fylgjast með // Nú áttu ekkert einkalíf - ef þú hefur einhverntíman átt það??
En aumingja-styrk segirðu .....væri alveg til í að skoða þann möguleika haha. HILSEN
31. ágúst 2006 klukkan 17:40
Ágústa skrifar ...
Það er um að gera að skoða það, betra en ekkert meðan maður er atvinnulaus og að komast inní málið:O)
31. ágúst 2006 klukkan 18:09
Dísin skrifar ...
Hæ dúllan mín .....ég er nú alveg samála Sibbu ...´þið eruð að vera svakalega dönsk ...svo svakalega dugleg að hjóla....gaman að´fylgjast með ....kveðja Dísa
01. september 2006 klukkan 02:19
Helena Rós skrifar ...
hæhæ, allt jan æðislegt að lesa bloggið hjá þér :) við mamma kíkjum alveg nokkrum sinnum á dag. en við boðjum að heilsa ykkur hjólreiðaköppunum.
Kv. minni fjölskyldan á melteignum
01. september 2006 klukkan 04:41
Ella Þóra skrifar ...
 
þetta er enginn aumingjastyrkur:) hehe alveg sammála þér, borgar sig að vera á bótum meðan maður er að koma sér inn í málið... hvernig væri svo að vera á msn svo maður getur talað við þig:) og endilega láttu mig vita er þú ert komin með heimasíma svo ég get hringt í þig. Það yrði sko alls ekki slæmt að geta tjattað við gelluna í símann:)

Frábært allt allt gengur svona vel hjá ykkur í Danaveldi:)
Bið að heilsa Binna og strákunum og auðvitað þér frænka:)

kveðja úr höfuðborginni.
Ella Þóra
03. september 2006 klukkan 04:29
Er orðið svona mikið að gera hjá þér eða ertu andlaus þessa dagana.....hvað er að gerast stelpa - það er alveg komin tími á nokkrar línur eða hvað?
14. september 2006 klukkan 14:23
Sé að það er enn allt rólegt hjá þér hehe ertu alveg dottin út ? Veit að bjórinn er ódýr í danmör,ku en common......
02. október 2006 klukkan 01:49

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan