Allir að hjóla!!
Jæja þá í þetta sinn... bið að heilsa í bili
Hæ, hæ!!
Við skemmtum okkur bara alveg konunglega í gær
.
Ég og "gaurarnir" mínir hjóluðum til Ísabellu, þar fórum við útí garð og fengum kaffi og með því og krakkarnir róluðu, og hoppuðu á risa trampólíni, þeim fannst alveg rosalega gaman. Á heimleiðinni hjólaði Ásbjörn "aðeins" of hratt og datt alveg hrikalega illa, hjólið var í hálfgerðri kássu (gátum samt rétt úr því aftur) og Ásbjörn allur rispaður
, en tilhugsunin um Súpermanplástur græðir öll sár og hann var fljótur að jafna sig og hjóla aftur af stað.
Binni fór svo með strákana á þetta kammerfest hér fyrir utan, þetta voru víst hálfgerðir sígaunar að reyna að selja eitthvað og okruðu svo á spennandi leiktækjum fyrir börn, en strákarnir skemmtu sér allavega konunglega og komu heim með risastóra uppblásna hamra og það tístir í þeim þegar það er lamið með þeim, æðislega skemmtileg leikföng
.
Um kvöldið komu svo Einar, Dagmar og Örn í mat til okkar og við vígðum borðstofuborðið!! Maturinn var rosalega góður (þó ég segi sjálf frá
), ég bjó til nýjan link: uppskriftir, þar setti ég inn uppskriftina af kjúklingnum sem ég gerði, þið verðið að prófa, þetta er GEÐveikt gott. Eftir matinn fengum við okkur osta, vínber og hvítvín og höfðum það huggó. Það er frekar erfitt að finna góða osta hérna, ég fann Camembert og svo einhvern annan sem endaði í ruslinu!! Við verðum bara að vera dugleg að prófa okkur áfram í þessu. Það er líka erfitt að finna gott brauð hérna, ég er alltaf á leiðinni að fara að baka brauð sjálf, ég vona að ég láti verða að því fljótlega.
Jæja, nú er nóg komið af bulli í bili...
Jæja nú erum við byrjuð að versla okkur húsgögn!! Í gær keyptum við sófasett 3+2, cappochinobrúnt og 6 borðstofustóla. Og í morgun fóru Binni og Einar til Vejle að kaupa borðstofuborð, það er 90x200, úr massívri eik, fékk það á ca. 12-13,000. Svo erum við líka búin að finna sjónvarp en eigum eftir að kaupa það. Við fáum sófann og stólana á næsta miðvikudag. Svo förum við annaðhvort í dag eða á morgun að skoða þvottavél og eldhúsborð, fundum það notað á netinu. Ég var búin að finna voða flotta hillusamstæðu en svo var hún seld þegar við fórum að ath. með hana
.
Í gærkvöldi skelltum við okkur út að borða á Mongólískan veitingastað. Umm.. það var hrikalega gott og við borðuðum á okkur gat. Maður velur bara ferskt grænmeti og hrátt kjöt á disk, velur svo sósur sem notast sem krydd, réttir manni diskinn og hann steikir þetta fyrir framan mann, svo voru þarna djúpsteiktar rækjur (ég er nýfarin að borða svoleiðis!!), djúpst. kjúklingur, fiskur o.fl. og hrísgrjón. Og maður mátti borða eins mikið og maður gat í sig látið
.
Við Dagmar kíktum aðeins í búðir áðan með strákana og fórum svo smá rúnt, fundum stríðsminjasafn um fyrri heimsstyrjöldina, þ.e. þegar danir fengu þennan landshluta (Sönderborg og eh. hér í kring) aftur til baka eftir að þjóðverjar höfðu náð honum af þeim. Okkur langar að skoða það við tækifæri, örugglega mjög spennandi.
Læt þetta gott heita í bili, bless, bless...................