Heitur dagur.
Í dag byrjuðum við á því að skoða íbúðina okkar. Hún leit nú bara ágætlega út, samt frekar ljót eldhúsinnrétting, stofan er stór og herbergin passleg, svo eru svalirnar yfirbyggðar og því hægt að gera tvö herbergi úr þeim, parketleggja þau og setja rafmagnsofn þar inn. Það búa 5-6 íslenskar fjölskyldur í einhverjum af blokkunum í kring og fínt leiksvæði fyrir utan.
Svo sótti Binni um kennitölur fyrir okkur og þá förum við að verða lögleg hérna í landinu.
Við fórum líka á ströndina í dag, æðislegt veður og stákarnir nutu sín í sjónum á meðan ég lá í sólbaði - ótrúlegt en satt.
Það var 24 stiga hiti í forsælu í dag. Strákarnir komnir með sundskýlufar og alles.
Það er svolítið fyndið að horfa yfir ströndina og komast að því að við gætum ekki týnt hvert öðru þarna, því við íslendingarnir erum álíka hvít og ísbirnir miðað við alla hina.
Á morgun stefnum við á Legoland, jibbí...., drífa það af áður en Binni byrjar í skólanum, hann byrjar næsta mánudag.
Jæja látum þetta gott heita í bili.