Of gömul???

05. apríl 2008 klukkan 13:25
ÉG!!!! Nei ég bara trúi því ekki!!!

Svona hljómaði hugsunin hjá mér um daginn er ég las atvinnuauglýsingarí dagblaðinu.

Ég er búin að vera að sækja um vinnur á snyrtistofum... það lítur ekkert sérstaklega vel út, allavega ekki hér í Sönderborg. Ég á eftir að fara til Aabenraa en ætla nú samt að skoða betur í kringum mig hér í nágrenninu.
Auðvitað langar mig helst að vinna sem snyrtifæðingur en  ef það gengur ekki upp þá finn ég mér bara eitthvað annað - en ekki hvað?

Já ég sá sem sagt atvinnuauglýsingu í blaðinu frá löggunni. Hummm... það gæti alveg verið gaman að prófa það.
Aldurstakmark 21 árs... las áfram... umsækjendur meiga vera 27 ára en samt litið framhjá því ef þeir eru 28 ára!!!
Sem þýðir örugglega að ég sé of gömul!! Og fyrir utan það þá er ætlast til þess að umsækjendur séu í góðu formi, hehemm Skömmustulegur.. sumir búnir að sitja á rassgatinu í heilt ár og geta ekki gengið framhjá nammiskápnum án þess að gæjast "aðeins".
Kannski spurning um að hætta að velta sér uppúr þessu... eða kíkja á kynningarfundinn næsta miðvikudagskvöld og svo að hætta að velta sér uppúr þessu!!

Ég er búin að sækja um aumingjahjálp.. aftur.
Ég á að fara á fund næsta mánudag og þá á ég að vera búin að sækja um 3-4 vinnur. Og ég verð að sanna að ég hafi sótt um vinnu annað hvort með því að prenta út umsókn af netinu eða biðja um undirskrift á þeim stöðum sem ég fer sjálf á og sæki um.
Og ég á bara ekki til orð yfir hvað ég er fúl yfir því.
Ég bara veit ekkert HALLÆRISLEGRA en að ganga á stað, sækja um vinnu og fá kannski nei og þurfa svo að biðja um undirskrift/staðfestingu á að ég hafi verið þarna. Mér finnst þetta svo LOW.
Ég gerði þetta á einum stað en geri þetta aldrei aftur, ég skammaðist mín svo mikið að mig langaði að grafa mig ofaní gólfið. Hvað heldur þetta fólk á kommúninni að maður sé???

Og til að geta skilað mínu þá prentaði ég út umsóknir af netinu bara til að geta sýnt blessaðri konunni sem ég á að tala við.

Ég fer aftur í næstu viku á stofuna sem ég gæti hugsanlega leigt stól og svo á ég að skila inn upplýsingum um hvað ég hef unnið með á aðra stofu og hún sagðist ætla að hafa mig í huga ef henni vantaði einhverntímann!

Strákarnir hafa það bara fínt.
Ásbjörn er í tölvubanni og unir sér bara vel!!
Hann verður í banni þar til hann segjir eitthvað á dönsku í skólanum! Og minns er bara SVO duglegur að leika úti í staðinn. Hann meira að segja spurði mig um daginn hvort ég hafi nokkurntímann séð hann leika svona mikið úti! Ég sagðist nú halda ekki. En það er búið að vera fínasta veður undanfarið og tilvalið að vera úti að leika með bolta og drullumall.

Ég er líka að reyna að vera aktíverari úti! Fór í hjólatúr eitt kvöldið og kíkti við á Dagmar. Ég fór næstum á innsogið við að hjóla þangað en ekki alveg Hlæjandi og var voða ánægð með það! Svo verð ég að fara að drullast að kaupa kort í ræktina. Helst fyrir Þýskalandsferðina (verst hvað er stutt í hana) og ég ekki enn búin að megrast svo ég geti keypt minni sundbol! Skömmustulegur.

Jæja nóg komið af bulli...

See u soon...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Útskrifuð!

01. apríl 2008 klukkan 15:31
Jibbí... þá er þetta búið! En samt var tilfinningin frekar skrýtin er ég labbaði útúr skólanum í gær. Nú er bara óvissan framundan! Sækja um vinnur... spurning um að fá vinnu!! Allavega við þetta, ég gæti örugglega fengið hvaða vinnu sem er en mig langar að vinna sem snyrtifæðingur.

Dagurinn í gær var frekar hrikalegur!!!
Ég svaf illa nóttina fyrir prófdaginn, síðan breyttist klukkan um nóttina í sumartíma þannig að í rauninni fékk ég sofa klst. minna en venjulega og svo tóku prófin 6 klst. og stress allan tímann.
En þetta hafðist allt saman Hlæjandi.

Við útskriftina sem var heldur tómleg (bara 3 stelpur að útskrifast!) var skálað í kampavín og við fengum allar rós og Diploma.
Við fengum ekki einkun fyrir hverja og eina meðhöndlun sem við gerðum í gær, heldur var tekið meðaltal af öllu árinu sem mér fannst frekar fúlt því mér hefur gengið miklu betur seinni helminginn af árinu og sérstaklega í því bóklega (enda var danskan frekar takmörkuð þegar ég byrjaði í skólanum). En auðvitað er ég samt ánægð með að hafa náð öllu.

Binni, Jóhann Ingi og Gunni hennar Jónu mættu síðan á svæðið og við fórum saman út að borða í Kolding, á Mexíkanskan stað og fengum mjög góðan mat.
Ég var svo útkeyrð þegar ég kom heim að ég stein rotaðist þegar ég lagðist á koddann... það hefði getað hlaupið fílahjörð framhjá mér án þess að ég hefði rumskað Hissa.
Og svo svaf ég til hádegis í dag! Fékk alveg sjokk þegar ég vaknaði... það var sko ekki ætlunin að sofa hálfan frídaginn!!

Á morgun ætla ég síðan að ganga á staði og leita að vinnu... gaman, gaman.
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Blómið.

28. mars 2008 klukkan 21:14

Strákarnir fengu blóm með sér heim fyrir páska, svona kryddblóm sem er hægt að borða. Ásbjörn kom reyndar með fræ heim sem áttu eftir að blómstra og það var svo yndislegt að fylgjast með hvað hann hugsaði vel um blómið. Hann var reyndar við það að drekkja því svo það fengi örugglega nógan vökva til að stækka og svo dró hann gardínuna upp á hverjum morgni svo blómið fengi sól og setti nokkur DVD hulstur undir það svo það væri nær birtunni Brosandi. Bróðir hans sá varla sitt blóm þannig að mamman reyndi að passa aðeins uppá hans en svo einn daginn kom hann til mín og sagði: Hver deyjaði blómið mitt??? En við náðum reyndar að lífga það aftur við.

Ásbjörn var með vin sinn og vinkonu í heimsókn í gær. Þau sátu inní eldhúsi og voru að leira og ég náttúrulega að hlera hvað þau voru að tala um.
Ásbjörn sagði þeim m.a. að það hafi komið svoldið klikkað fyrir skólann hennar mömmu! Það kviknaði í honum. Svo var það rætt fram og til baka og svo sagði hann: eins gott að mamma mín var ekki í skólanum þegar kviknað í! Því þá hefði hún dáið!!! Gráta  Þá sögðu þau öll: já það væri hrikalegt ef mamma manns myndi deyja! Og ræddu það eitthvað áfram.
Það komu allskonar gullkorn fram hjá þeim og það var virkilega gaman að vera eins og fluga á vegg í kringum þau Brosandi.

Síðasti skóladagurinn minn var í dag Hlæjandi. Bara prófið eftir á mánudaginn. Binni var svo almennilegur að bjóða fram hjálp sína um daginn! Hann spurði hvort ég þyrfti ekki að æfa mig fyrir verklega prófið? Neee... eða jú... mig vantar eiginlega að æfa að setja eye liner og leggja rautt lakk Glottandi. Minns varð grænn í framan og bað mig bara að gleyma þessu.. haha..

Annað kvöld ætlum við að hittast nokkrar vinkonur og ég og Jóna fáum að mála stelpurnar og naglalakka og svo ætlum við á kaffihús. Þannig að við getum æft okkur í make up og haft gaman af. Mér finnst nefnilega alveg hrikalega leiðinlegt að farða.

Og í gær var ég í fríi og fór á eina snyrtistofu og sótti um vinnu. Það eru einhverjar breytingar væntanlega á þessari stofu og þær ætla að bæta við fólki. Það eru fleiri búnar að sækja um en ég kem til greina og á að tala aftur við hana eftir 1-2 vikur. En vandamálið er að hún vil leigja út stól og ég veit ekki hvort ég sé tilbúin í það. Þá er ég eigilega bara á eigin fótum en mér finnst ég vanta reynslu til að geta það. Eina reynslan sem ég hef er úr skólanum. En eftir helgi ætla ég að sækja um á fleiri stöðum og skoða málið.

Það er búið að vera snjór hér undanfarið... hrikalegt, ég þoli ekki vetur en það er víst spáð hlýnandi... vona svo innilega að það gangi eftir.

Svo er ein afmæliskveðja:

Birta Marín litla frænka verður 2ja ára á morgun. Til hamingju með afmælið prinsessa Koss.

Annars bið ég bara vel að heilsa ykkur öllum Glottandi.

Over and out...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Spurning um að lotta!!!

21. mars 2008 klukkan 20:03

Mig dreymdi nefnilega svo skemmtilegan draum í fyrrinótt. Hann hljómar þannig að ég skeit á mig!!! Í orðsins fyllstu merkingu og það fyndna er að ég skammaðist mín bara ekkert fyrir það Glottandi og hafði ekki einu sinni tíma til að þrífa hann!!  En sem betur fer vaknaði ég nú hrein og fín og þurr... hjúkk... það hefði sko verið pínlegt Skömmustulegur, fullorðin manneskja að drulla uppá bak.
En ég hef heyrt að svona draumar boði peninga Gráðugur og það kom reyndar skemmtilega á óvart daginn eftir að ég fékk til baka frá skattinum og það besta við það er að þá sleppum við við að taka út peninga frá Íslandi, það er svo helvíti slæmt gengið núna Fýldur. En það væri nú gaman að prófa að gera lottó!!! (Ein að missa sig í græðginni). Ég kann bara ekkert að spila lottó, veit ekki einu sinni á hvaða sjónvarpsstöðvum það er og kl. hvað!
En hvað um það.

Binni kom heim frá Íslandi á miðvikudagsmorgun. Hann átti að vera kominn heim rúmlega eitt um nóttina en það var sprengjuhótun á lestarstöðinni í Köben og endaði hann á að taka tvær rútur og tvær lestar til Sönderborg og var kominn heim milli kl. 5 og 6 með rifna ferðatösku og þrjú brotin páskaegg Óákveðinn. Þannig að þetta varð hálfgerð svaðilför hjá honum.

Við erum öll í páskafríi núna og höfum bara tekið því rólega. Fórum í göngutúr í gær og Einar, Dagmar og Örn komu í mat til okkar. Svo er ég búin að sauma gardínur í herbergin hjá strákunum og braut BARA 5 nálar í saumavélinni Öskrandi. Á fyrstu nálinni hélt ég það þetta væri klaufaskapur í mér en auðvitað er ég enginn klaufi!! Ég var næstum búin að fá mér rafsuðugleraugu þegar vélin tók af stað með áfram-saum og bakki því þá brotnuðu nálarnar en svo inná milli virkaði vélin bara fínt... bölvað drasl. En svo átti ég bara tvo vængi eftir þegar síðasta nálin brotnaði svo Edda nágranni minn lánaði mér sína vél og nú eru gardínurnar komnar upp og vélin mín komin í kassa og vonandi á leið í viðgerð því ég á eftir að sauma gardínur í mitt herbergi.

Í dag fór ég með strákana á páskabingó hjá Ísl.félaginu... skítadraumurinn virkaði nú ekki þar en Ásbjörn vann samt ein verðlaun, fékk kassa af súkkulaðikanínum Brosandi og hann var svo duglegur að merkja tölurnar á sitt bingóspjald sjálfur. Jóhann Ingi var ekki eins þolinmóður og endaði á að fara bara út að leika sér.

Á morgun er Monster Truck sýning og erum við að spá í að kíkja. Þetta eru alveg huges bílar og þeir keyra yfir bíldruslur og alles, örugglega gaman að sjá þetta.

Og svo til gaman má geta þess að ég á bara eftir að fara 3 daga í skólann fyrir utan prófdaginn Hlæjandi. Ekki fleiri gistingar í Fredricia og ekki meiri keyrsla heldur meiri tími með fjölskyldunni Hlæjandi.

Ég ætla að gera aðra tilraun með að sækja um vinnur næsta fimmtudag... vona að það gangi upp.

En annars:

                     Gleðilega páska.

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Blessuð blíðan...

16. mars 2008 klukkan 20:20
O... það var svo yndislegt veður þegar ég drattaðist á fætur í morgun Glottandi. Og er ég búin að sitja úti í dag við nýja borðið mitt með kaffibolla og "ferska loftið". Og náði meira að segja að hengja út þrjár vélar!

Annars er helgin búin að vera fín. Eða byrjaði reyndar ekkert agalega vel!
Á föstudaginn skrópaði ég í skólann Skömmustulegur. Og ákvað að nota daginn og sækja um vinnur. Ég dressaði mig upp og lagði af stað í bílnum... byrjaði að fara í bankann og bíllinn var hálf skrítinn en ég hélt bara áfram. Eftir bankann varð bíllinn enn skrítnari og drap á sér nokkrum sinnum, m.a. útá miðri götu en ég náði að dröslast á fáfarnari götu og þar gaf hann alveg upp öndina Öskrandi. Einar ætlaði að koma og redda mér en þá fór bíllinn í gang og ég náði að dröslast heim og bað til þess að enginn yrði á vegi mínum svo ég þyrfti ekki að hægja á mér... og það gekk eftir og ég komst í hlað og ekkert varð úr atvinnuleit þennan daginn Fýldur. Ég gat ekki hugsað mér að fara hjólandi og koma svo laf móð inná snyrtistofurnar með horið lekandi Ullandi.
Síðan fór ég bara í vinnugallann og fór að hjálpa Einar og Dagmar að flytja.
Laugardagurinn var bara rólegur. Ásbjörn fór snemma til skólabróður síns og gisti hjá honum í Broager. Síðan komu þeir hingað í dag og léku sér saman.
Ég var voða dugleg í dag og bakaði skúffuköku og kanilsnúða og fékk heimsóknir.
Síðan kenndi Einar mér að laga bílinn... hann lagaði hann fyrir mig á föstudagskvöldið en ef það kemur eitthvað uppá á leiðinni í skólann þá get ég allavega reddað mér. Þetta er nú ekkert flókið, bara losa eina skrúfu til að taka rafgeymirinn úr sambandi!!

Svo er bara stutt vika framundan Brosandi og stutt í páskaeggin Glottandi, ég vona allavega að ég fái eitt.
Svo er páskabingó hjá Ísl.félaginu á föstudaginn og íslensk egg í vinning.. en ég vinn aldrei Óákveðinn.

Kveðjuhornið:

Elsku mamma, til hamingju með afmælið í gær  Koss.

Og elsku Ásta María, til hamingju með ferminguna Koss.

Ég man þegar ég fermdist, það var þvílíkt sport að vera komin í "fullorðinna manna tölu", þá var ég sko ekkert barn lengur og enginn réði yfir mér nema ég sjálf Svalur (eða það hélt ég allavega! hehe..).

Jæja.. læt þetta gott heita í bili.

Adios...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Karlinn á Klakanum.

13. mars 2008 klukkan 22:00
Binni fór sem sagt til Íslands í dag... og ég er pínu abbó Glottandi, ég væri sko alveg til í að vera með honum þarna -þó það sé snjór!

Þvílíkur léttir að bóklegu prófin séu búin. Ég er samt ennþá heilaþvegin eftir lesturinn, er ennþá að hlýða mér yfir í huganum en ég hef svo sem gott af því.. ég væri samt alveg til í eitthvað skemmtilegri dagdrauma Saklaus.

Síðustu tvær vikur hef ég ekki átt mér spennandi líf. Vinna, læra, éta og sofa. Ég hlakkaði svo til að setjast niður á þriðjudaginn og horfa á sjónvarpið en þá var auðvitað ekkert spennandi í því.

Sama kjaftæðið með þennan skóla.. hann er aftur að verða að þrælabúðum og búið að reka kennarann minn.  Endalaus vitleysa í gangi þarna og ég er alveg að verða BÚIN Hlæjandi.
Nýji kennarinn okkar útskrifaðist í september í fyrra og var því með mér í skólanum fyrsta hálfa árið. Mér finnst þetta frekar spes en er fegin að ég er búin með allt bóklega núna.

11 apríl fer ég í partý til "fyrrverandi" kennara míns, kveðjupartý. Henni var bannað að kveðja okkar þegar hún var rekin og má ekki koma nálægt skólanum! En þetta verður rosa stuð. Við verðum 8 eða 9 stelpur og ætlum að borða saman og drekka, og drekka og dr.. hehemm ein alveg að missa sig! Hún býr í Nordborg sem er bær innst á Als eyjunni. Það verður kannski gaman að kíkja í bæinn þar (efast samt um hann sé spennandi!). Þær ætla flestar að gista hjá henni en við Jóna búum svo stutt frá þannig að við brunum bara heim þegar fjörið er búið.

Ég fór líka í partý síðasta laugardag, útskriftarpartý hjá Stínu. Það var rosa fjör og auðvitað var kíkt í bæinn líka. Það var mjög gáfulegt... kom heim kl. 5 um nóttina og var dottandi yfir bókunum allan sunnudaginn Skömmustulegur.

Annars er nú ekkert krafsandi í fréttum!
Strákarnir eru bara hressir. Við Jóhann Ingi fórum í foreldrakaffi í skólann til Ásbjörns í dag. Þeir fengu græna köku með bleiku kremi sem bar nafnið Eitur, frekar ógirnileg að sjá, en krakkarnir voru vitlausir í hana.

Á morgun ætla ég að vera í fríi og er að spá í að ganga á staði og leita mér að vinnu. Mér kvíður fyrir bara við tilhugsunina. Mér finnst svo óþægilegt að sækja um vinnu. Standa fyrir framan bláókunnuga manneskju og ropa einhverju útúr mér og allt hitt starfsfólkið lítur við og hlustar Óákveðinn.
En maður verður víst að gera þetta, víst maður þarf að lifa á peningum!

Svo er nú eitt enn...
Við eigum von á heimsóknum. Steinar og Rakel koma 14 maí og Dísa kemur í byrjun júní. Þannig að nú get ég talið fleira niður en bara skólalokin Glottandi.  Hlakka SVOoo.. til að fá þau Hlæjandi.

Jæja best að hætta þessu "blaðri".

Risa knús...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Tölvur "#"$%$&%

11. mars 2008 klukkan 21:09
Ég var búin að skrifa slatta en það hvarf Gráta.

Ég náði báðum prófunum. Fékk 9 í fyrra prófinu sem heitir Skönhed og make up og fékk 10 í líffræði og lífefnafræði (held það heiti þetta á ísl.).

En ég nenni ekki að skrifa þessa rumsu aftur núna en skrifa aftur á fimmtudaginn!

Risa knús...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Bara....

02. mars 2008 klukkan 18:48
Að láta vita að við erum á lífi!!!
Ég hef ekki haft mikinn tíma til að tölvast síðustu viku og þannig verður það víst áfram næstu viku. Ég fer í eitt lokapróf á morgun og svo annað næsta mánudag, 10 mars.
Ég fór líka í próf síðasta miðvikudag í líffræði og einhverju svoleiðis (veit ekki alveg hvað þetta heitir á ísl.) en ég fékk 9 í því prófi og var bara nokkuð sátt. Fyrir ritgerðina sem ég gerði um Bláa lónið fékk ég 10.
Og nú er ég byrjuð að vera stressuð fyrir morgundaginn Óákveðinn.

Annars gengur lífið sinn vana gang hér hjá fjölskyldunni.
Við erum mjög ánægð hér í nýju íbúðinni... mig vantar bara að komast í að þrífa Skömmustulegur, en ég hef látið lærdóminn ganga fram fyrir það verkefni.

Ég er nú enn að venjast þessari íbúð, því hún er alveg spegilmynd við íbúðina sem við vorum í. Ég er enn að grípa í tóma veggi til að slökkva og kveikja ljós, hinum megin voru slökkvararnir á öfugum veggjum miðað við hér! Og svo er ég allavega tvisvar búin að ganga á hurðina á litla baðherberginu... veit ekki af hverju!!! Ég er bara eitthvað skrítin Ullandi.
Eitt kvöldið fór ég með hjól inní kjallara og fór upp í stigagang eins og venjulega (í  gamladaga!) byrjaði að hamast á póstkassanum og bölva af hverju í ósköpunum hann opnaðist ekki, svo las ég á kassann og sá að ég var í vitlausum stigagang! Sem betur fer rést ég ekki inná greyið fólkið sem býr á "sama stað og ég" nema í hinum stigaganginum!

Svo finn/heyri ég alveg hvernig er að búa á neðri hæð. Ekki að það trufli mig neitt en það heyrist vel þegar fólk trampar og krakkarnir á efri hæðinni slást!
Og greyið fólkið sem bjó fyrir neðan okkur: Jónki Tröll trampar svo hrikalega þegar hann labbar og þegar hann hleypur... hljómar það eins og fílahjörð.

Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna.... ætla að lesa "aðeins" yfir glósurnar.

Þar til næst..........
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Kominn tími á nýja færslu..

22. febrúar 2008 klukkan 17:23
Nú er allt farið að róast hjá okkur. Búin að koma okkur ágætlega fyrir og ekkert margir kassar eftir til að tæma.
Flutningarnir gengu mjög vel, við fengum góða hjálp hjá góðum vinum, KÆRAR ÞAKKIR ÖLL SÖMUL Brosandi.

Við höfðum síðan helgina og mánudaginn til að ganga frá hinni íbúðinni. Ó my god, það var nú meira brjálæðið... en það hafðist... fjúfff...
Hér kemur sagan af svaðilförinni:
Binni fór að kaupa málningu á föstudaginn... en það lokaði kl. 15,00 og við fengum enga málningu. Þannig að það var hamast við að þrífa skápa og skúffur og gólflista og allt það.
Á mánudeginum hömuðust Binni og Elsa við að mála en svo kláraðist málningin sem átti að fara á herbergin... Binni keypti nýja og hélt áfram að mála og komst þá að því að hann fékk vitlaust gljástig OG það var búið að loka búllunni þannig að 60% af herberginu var með gljástig 5 en 40% með gljástig 10 og það var ekki hægt að laga því Binni fór í upptökupróf á þriðjudagsmorgninum og enginn tími til að mála aftur. Á meðan hömuðumst við Elsa við að skrúbba upp málningarslettur af gólfinu og gólflistum og við skúruðum okkur út korter í sýningu á íbúðinni Óákveðinn. Það var allt samþykkt í íbúðinni nema herbergið með vitlausa litnum og þurfum við að borga málningu og vinnu á því herbergi Óákveðinn. Binni hafði ekki tíma til að kíkja í bók alla helgina en fékk síðan að vita í dag að hann náði prófinu Hlæjandi.

Ég ákvað í dag að vera rosa góð kærasta!!! Keypti gjöf handa karlinum.
Hann er endalaust búinn að vera að tala um topplyklasett... ég spurði hann fyrir jólin hvað okkur vantaði til að geta gefið hugmyndir um jólagjöf handa okkur... þá var svarið t.d. alltaf TOPPLYKLASETT...

Ok ég keypti þetta fína topplyklasett í gjöf fyrir hann á leiðinni heim úr skólanum. Kom heim, lagði bílnum, steig út, leit inní skottið á bílnum... það fyrsta sem ég sá var kassi af NÁKVÆMLEGA eins topplyklasetti og ég var að kaupa Öskrandi..... hvað með allt þetta topplyklatal???
Ég gaf honum þetta nú samt og hann verður bara að skipta því og velja eitthvað sem hann á ekki!!! En ég fékk nú samt punkt fyrir viðleytni!!!

Binni fór til bæklunarlæknis í gær. Læknirinn sagði löppina ekki líta vel út og sagði að það væri best fyrir hann að fara í aðgerð og láta stytta sinar eða eitthvað og það á að draga úr verkjum eða losa hann við verkina en á móti kemur að hann getur þá minna hreyft hana. En það er örugglega allt betra en svona endalausir verkir.

Það er brjálað að gera í skólanum hjá mér, ég er þar alla daga þessar vikurnar og fer í þrjú próf á næstu þremur vikum og 31 mars verður verklegt lokapróf og útskrift.

Jæja læt þetta gott heita í bili...

Risa knús....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Á ég að segja þér svoldið?

14. febrúar 2008 klukkan 20:45
Það er ekki fyndið!
Það var einu sinni risaeðla (stundum górilla). Hún fékk ekkert að borða og ekkert að drekka og hún dó!!!
Þetta er aðal sagan hjá litlu moldvörpunni minni þessa dagana. Honum finnst þetta rosalega merkilegt.
Ég er orðin nokkuð sannfærð um að barnið hafi verið moldvarpa í fyrralífi!
Það má ekki skína ljósglæta í augun á honum eftir að hann vaknar á morgnana svo hann borðar morgunmatinn sinn með sólgleraugu, umvafinn í jarðlitað teppi!!!

------------------------------------------------------------------------------
Kúkur:

Námsefnið undanfarna viku er búið að mjög áhugavert! Mikið grín og mikið gaman.
Við vorum að læra um þarmana Öskrandi og upp komu allskonar kúkasögur og pælingar. Við ræddum meðal annars um vöðvana sem þarmarnir stjórnast af. Hluti af þessum vöðva stjórnum við ekki sjálf en hinum hlutanum stjórnum við og getum þá m.a. haldið í okkur... upp að vissu marki. Þar fóru aðal umræðurnar af stað Glottandi. Þessum vöðva getum við ekki stjórnað ef maður fær til dæmis drullu... þá kemur það bara þegar það kemur! Og svo stundum gerist það ef fólk er búið að halda í sér lengi, lengi, lengi og þá getur það gerst að maður hafi ekki lengur stjórn á vöðvanum og blobbs... úpps....
Svo ræddum við það líka að þegar maður heldur lengi í sér þá rotnar kúkurinn bara á meðan og þar af leiðandi verður lyktin enn verri...
Og svo ræddum við líka að það er fullt af fólki sem getur bara kúkað heima hjá sér. Þá heldur það kannski í sér í fleiri klst. eða daga og á meðan rotnar þetta bara og fyrir utan hvað þetta er óhollt fyrir þarmana.
En ef maður pælir í þessu þá kúka allir og það kúkar enginn góðri lykt, ég meina, það kemur alltaf skítalykt hjá öllum.. af hverju ætli þetta sé svona vandræðalegt?
Og enn ein pæling...
Ég las einu sinni að okkur er kennt hvaða lykt er góð og hvaða lykt er vond. Sjáið bara dýrin, þau þefa af kúknum sínum án þess að gretta sig, þeim var ekki kennt að kúkalykt er vond!

En já.. kennslustundin fór nú alveg líka í dýpri og innihaldsríkari umræður, en þetta er samt svo fyndið.
Fólk segir alveg óhikað: ég ætla að fara að pissa!
En ég hef aldrei heyrt: ég ætla að fara kúka!
En þetta eru jafn mikilvægir hlutir fyrir líkamann.

Nóg um kúk.

----------------------------------------------------------------------------


Ég veit ekkert hvenær við erum næst í netsambandi. Síminn á að vera kominn í nýju íbúðina eftir kl.16 á morgun. En ég hef bara svo litla trú á því að það standist. Við þurftum að bíða svo margar vikur eftir að fá það hingað í "gömlu" íbúðina. En það kemur þá bara skemmtilega á óvart ef þatta stendst hjá þessu blessaða símafyrirtæki.

Ég er búin að vera að pakka í allan dag... þetta er endalaust Óákveðinn. Elsa kom og hjálpaði mér, enginn smá munur að fá svona hjálp. Ég væri ekki búin með helminginn af þessu ef hún hefði ekki komið.
Við fáum lyklana milli 11 og 12 á morgun. Jibbý... Hlæjandi.

Og þetta er strax byrjað: Þú mátt ekki koma inní herbergið mitt!!! OG VIÐ ERUM EKKI EINU SINNI FLUTT!!!

Jæja ég er alveg að kúka á mig....
Svo best að hætta áður en ég missi stjórn á vöðvunum Hlæjandi.






Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan