Sólin komin!
Það er svo sem ekkert nýtt að frétta. Nú er bara einn dagur eftir í helgarfrí, ég er eins og grunnskólakrakki, þ.e.a.s ég tel niður að hverju fríi. Ég er svo útkeyrð á kvöldin að ég rotast um leið og ég leggst á koddann.
Í gær skein sólin í fyrsta skiptið í langan tíma og hún var svo hlý. Það er alveg ótrúlegt hvað ein sól getur glatt mann!!! Og í skólanum í dag var ég bara með einn kúnna allan daginn og var eini nemandinn sem mætti í dag og ég og kennarinn sátum bara úti í sólinni með kaffi og sígó!!! Þvílíkt næs.
Á morgun er skautaferð hjá Ísl.félaginu. Ég nenni ekki að fara, mig langar bara að gera ekki neitt um helgina, kannski bara pakka aðeins niður.. það er víst kominn tími á það!
En ég sé til á morgun, verð líklega komin heim rúmlega fjögur og langt verður af stað í skautaferðina tæplega fjögur! Strákarnir hefðu samt rosalega gaman af þessu og við Binni örugglega líka. Ég hef ekki skautað síðan ég var krakki, á Skagaverstúninu og í Skógræktinni. Hummm... það var nú hrikalega gaman.
Ásbjörn var á skolefest seinnipartinn í dag. Þar voru skemmtiatriði, DJ og diskó og pulsur og popp... brjálað fjör og allir mættu í grímubúning. Ekkert smá magn af krökkum þarna. Jóhann Ingi var orðinn heldur óþolinmóður að bíða eftir að Ásbjörn kæmi heim. Hann er svo húkt á stóra bróðir sínum. Það er frekar fyndið að þeir rövla og tauta alla daga meðan þeir eru saman en svo ef annar er ekki heima geta þeir ekki beðið eftir hvort öðrum! En þeir eru reyndar búnir að vera mjög fínir saman undanfarið.
Við Binni fórum á fund á þriðjudaginn hjá barnasálfræðing v/Ásbjörns. Það kom svo sem ekkert sérstakt útúr þessu, enda lítið hægt að gera. Maður getur víst ekki dregið orð útúr manneskju! En við eigum bara að halda áfram að gera það sem við höfum verið að gera, æfa dönsk orð heima og virkja hann í að hitta bekkjarfélaga sína, bjóða í heimsóknir o.þ.h. ekki pressa hann of mikið og ekki gefa of mikið eftir... hvernig fer maður að því??? Okkur finnst hann samt verða jákvæðari með hverjum deginum en samt alltaf eitthvað sem heldur honum til baka. Og svo verður líka pantaður tími hjá öðrum barnasálfræðingi sem hefur unnið með þögul börn eins og hann. Vona bara að það geti hjálpað og helst að hann brjóti sjálfur ísinn áður en hann fær tíma, því það eru allavega 1-2 mánuðir í bið til að komast að hjá honum skildist okkur. Like always... það gerist ekkert hratt hérna
.Bestu kveðjur í bili..............
. En það eru nú bara 8 vikur eftir og þá er þetta búið
. Það á reyndar að vera bara næs hjá okkur á mánudaginn, ég held ég hafi einn kúnna og svo er bara upprifjun allan daginn og svo fáum við mikið bóklegt það sem eftir er.
. En ég hlýt að finna út úr því.